Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Page 72

Fréttatíminn - 07.10.2011, Page 72
HELGARBLAÐ Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is Hrósið … ... fær Tristran Arnar Beck, níu ára strákur í Reykjanesbæ, sem bjargaði heimili ömmu sinnar um síðustu helgi þegar eldur í kamínu fór úr böndunum. Mugison á toppinn Mugison fór beint á topp Tónlist- ans, lista Félags hljómplötuútgef- enda yfir mest seldu diska lands- ins, í síðustu viku. Haglél, diskur Mugisons, er sá fyrsti sem hann gefur út með íslenskum textum og var hans beðið með mikilli eftirvæntingu. Mugison skaut frumraun Of Monsters and Men, My Head Is an Animal, ref fyrir rass en sá diskur hafði verið eina viku í toppsætinu. Of Monters and Men er þó enn með mest spilaða lagið í íslensku útvarpi því áttundu vikuna í röð er lag þeirra Little Talks á toppi Laga- listans.-óhþ Hönnun við höfnina Hönnunargalleríið Netagerðin Work & Shop var opnað í gær, fimmtudag, við Nýlendugötu 14. Sjö konur eru þar með vinnustof- ur sem nú eru opnar þannig að fólk getur keypt milliðalaust af þeim. Úrvalið er fjölbreytt: textíl- vörur, skartgripir, ljósmyndir og hlutir fyrir heimilið. Konurnar á bak við Netagerðina eru Bryndís Bolladóttir textíl- hönnuður, Anna María Sigur- jónsdóttir ljósmyndari, Sigga Heimis iðnhönnuður, Helga Guðrún Vilmundardóttir og Árný Þórarinsdóttir sem starfa undir nafninu Stáss, Olga Hrafnsdóttir og Elísabet Jónsdóttir sem starfa undir nafninu Volki. Húsið hefur undanfarin ár verið kallað Libo- rius-húsið en nafnið Netagerðin er dregið af því að þar var í fjöldamörg ár Netagerð Reykdals Jónssonar. Nick Cave-veisla í Hörpu Kvikmyndaveisla til heiðurs Nick Cave and the Bad Seeds hefst í Hörpu á mánudag. Þrjár heim- ildarmyndir um Cave og félaga munu þá rúlla daglangt frá klukkan 10 til 18 í Flóa-salnum á jarðhæð Hörpu í eina viku. Myndirnar eru hluti af heimild- armyndaröð í fjórtán hlutum um þessa mögnuðu hljómsveit og eru eftir enska listafólkið Jane Pollard og Iain Forsyth. Sýning- arnar eru hluti af ráðstefnunni You are in control, en þar eru í kastljósinu nýjustu straumar og stefnur í hinum skapandi og list- ræna hluta stafræna heimsins. Pollard og Forsyth eru einmitt gestir ráðstefnunnar. arionbanki.is – 444 7000 ÍS LE N SK A S IA .IS A R I 5 66 90 1 0/ 11 „Enga verðtryggingu, takk.“ Hvað skiptir þig máli? Nú getur þú tekið óverðtryggt íbúðalán til 25 eða 40 ára með föstum 6,45% vöxtum til fimm ára. Kynntu þér málið á arionbanki.is. Tinna Björk Baldvinsdóttir, 38 ára.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.