Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 2
Kristinn Þ. Geirsson, aðstoðarfor-
stjóri Nýherja, segir að Guðnýju
Jennýju Ásmundsdóttur landsliðs-
markverði hafi verið boðið að taka
við starfi deildarstjóra hagdeildar
Nýherja þar sem hann væri á leið
í fæðingarorlof. Deildarstjórinn,
sem er kona, hafi sett þau skilyrði
vegna aðstæðna sinna að Guðný
Jenný yrði þá að setja handbolt-
ann á hilluna, annars missti hún af
áætlanagerð fyrirtækisins og gæti
ekki gert þær að ári.
„Við vildum bjóða henni starfið
og leyfa henni að velja, frekar en að
bjóða henni það ekki.“ Kristinn seg-
ir að Guðný Jenný hafi sagt deildar-
stjóranum að hún vildi ekki bakka
út úr landsliðinu. „Þar af leiðandi
rennur henni starfið úr
greipum.“
HSÍ hefði frekar
mælt með starfinu
Kristinn segir að síðar
hafi skýrst að ekki yrðu
næg verkefni á nýju ári í
bókhaldinu og eftir yfir-
legu hafi verið ákveðið
að segja Guðnýju Jen-
nýju upp. „Við vildum
undirbúa hana [fyrir
uppsögn á nýju ári], en hún kaus
þá að hætta strax og við borguðum
henni uppsagnarfrestinn.“
Kristinn bendir á að Nýherji sé
einn af styrktaraðilum kvenna-
landsliðsins í handbolta. Hann
hafi setið fund með
Árna Þór og Einari
Þorvarðarsyni frá HSÍ vegna upp-
sagnarinnar. „Einar sagði nú með-
al annars við mig að ef hann hefði
vitað að þetta væru valkostirnir
fyrir hana hefði hann hvatt hana
til að taka starfið.“ - gag
Bæjarfulltrúar hækka í launum
Níu milljónir í að fella
ráðhúsaspir
Tæpar níu milljónir króna kostar að fella aspir við Ráð-
húsið í Reykjavík og planta nýjum trjám í staðinn. Þetta
kemur fram í svari garðyrkjustjóra borgarinnar við
fyrirspurn borgarfulltrúa Vinstri grænna og Sjálfstæðis-
flokks í borgarráði. Efniskostnaður er áætlaður frá 800
þúsundum króna upp í eina milljón króna. Þá er kostn-
aður við undirbúning og hönnun tvær milljónir króna, en
sá kostnaður nær einnig til annarra svæða borgarinnar.
„Það er eins og þessi meirihluti skilji ekki mikilvægi þess
að forgangsraða skattfé almennings. Það er eins og
hann haldi að [borgin] sé dótakassi hans,“ segir Sóley
Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. Hún skilji að
það þurfi á endanum að skipta um þessi tré en á meðan
borgin berjist í bökkum við að reka grunnþjónustu sé
það ekki réttlætanlegt. „Þetta er eitt dæmi um það hvað
meirihlutinn er ófókuseraður.“ - gag
atvinna afdrifarík landsliðsferð
Nýherji rak markvörð sem
vildi á heimsmeistaramót
Guðnýju Jennýju Ásmundsdóttur var boðin stöðuhækkun eftir fjögurra ára starf hjá Nýherja
en aðeins gegn því að hætta í landsliðinu í handbolta. Það vildi hún ekki. Henni var sagt upp
störfum. Framkvæmdastjóri og formaður landsliðsnefndar kvenna vilja ekki tjá sig, hagsmunir
sambandsins eru miklir.
Nýherji er einn bakhjarla kvennalandsliðsins í handbolta
Vildu leyfa Guðnýju Jennýju að velja á milli starfsins og boltans
Aðstoðarforstjóri
Nýherja segir að Einar
Þorvarðarson, fyrrum
landsliðshetjan og
markvörður, hefði hvatt
markvörð kvennalands-
liðsins til að gefa liðið
upp á bátinn hefði hann
vitað að annars missti
hún vinnuna.
M arkverði kvennalands-liðsins í handbolta, Guð-nýju Jennýju Ásmunds-
dóttir, var stillt upp við vegg á
vinnustað sínum og sagt að velja á
milli landsliðsins eða vinnunnar.
Hún hafði unnið í fjögur ár hjá
Nýherja og var boðin stöðuhækk-
un í nýrri deild gegn því að hætta í
landsliðinu. Hún kaus landsliðið og
var stuttu síðar sagt upp störfum í
gömlu deildinni.
Guðný Jenný vildi ekki tjá sig
um málið. Það vildi Einar Þor-
varðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ, ekki heldur
gera og vísaði á formann
landsliðsnefndar
kvenna, þar sem auð-
veldara væri fyrir að
hann tjái sig um þetta
mál. Formaðurinn hefði
verið á fundi sambands-
ins og Nýherja í kjölfar
uppsagnarinnar. „Ég
þarf að vinna með svo
mörgum fyrirtækjum
og samstarfsaðilum,
því hagsmunir sam-
bandsins eru miklir
líka.“
Spurður
hvort sam-
bandið geti ekki
staðið með Guð-
nýju Jennýju,
svarar hann „Jú,
jú, við stóðum
með henni og fórum
með henni á fund. Við
gerðum það.“
Árni Þór Árnason
er formaður landslið-
snefndar kvenna og
hann svaraði spurður um
hvernig sambandið hefði
tekið á málinu: „Ég er ekki
tilbúinn að tjá mig um það.
Ég sé ekki að það sé hægt
að leysa þetta í dagblöðum
og fjölmiðlum.“ Árni Þór vill
meina að ekki passi að tjá sig
um málið. Ekki náðist í lands-
liðsþjálfarann, Ágúst Jóhannsson.
Árni svarar góðlátlega spurður
hvort hann vilji ekki tjá sig um
málið vegna fjárhagslegra hags-
muna sambandsins að spurningin
sé „nastý“ [kvikindisleg]: „Það
er mjög erfitt að segja til um hvað
samtök geta beitt sér. Allir okkar
leikmenn á Íslandi eru í vinnu
einhvers staðar og þurfa að njóta
skilnings og stuðnings. [...] En
þetta er ekki mál sem ég get tjáð
mig um og vil ekki.“
Guðný er markvörður í landslið-
inu og hefur spilað fimmtán leiki
með því. Landsliðið tekur þátt í
Heimsmeistaramóti kvenna í hand-
bolta í Brasilíu, sem hefst í byrjun
desember.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Spurning hvort Nýherji hefði getað fundið betri lausn en að reka
landsliðsmarkvörðinn? VR kaus Nýherja meðal fjörutíu fyrir-
tækja til fyrirmyndar 2011. Ljósmynd/Hari
Guðný Jenný Ás-
mundsdóttir ákvað
að vera heldur
í landsliðinu í
handbolta en að
þiggja stöðu-
hækkun. Hún
missti fyrra starf
sitt fyrir vikið.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Laun þeirra sem starfa í nefndum,
ráðum og stjórnum hjá Hafnarfjarð-
arbæ verða hækkuð um 4,25 prósent
aftur til 1. júní, um 3,5 prósent 1.
mars og 3,25 prósent ári síðar. Full-
trúar á föstum mánaðarlaunum fá
eingreiðslu í desember og febrúar.
Hafnarfjarðarbær er meðal sveitar-
félaga sem hafa átt erfitt með að ná
endum saman.
„Þetta er nú ekki stór hluti af rekstri bæjarins. Við ráðum við
að greiða kjarasamningsbundnar hækkanir við allt okkar starfs-
fólk og þetta mun ekki breyta því eða raska á nokkurn hátt,“ segir
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri. Laun þessa hóps hafi verið
lækkuð um 10 prósent í kjölfar hrunsins og fryst. Sanngjarnt sé að
almenna kjarasamningshækkunin nái líka til þessa hóps. - gag
Guðmundur
Rúnar
Árnason.
Jólin kosta 38
þúsund á mann
Jólaverslunin í ár mun vaxa
um 2,5 prósent að nafnvirði
frá síðasta ári, samkvæmt
spá Rannsóknarseturs
verslunarinnar. Samkvæmt
henni verður jólaverslun í
ár um það bil 13,5 milljarðar
króna sem er aukning um
1,5 milljarð króna frá síðustu
jólum. Vegna verðlagsáhrifa
mun veltan hins vegar
dragast saman um 2 prósent
að raunvirði. Þrátt fyrir sam-
drátt er óhætt að tala um
hægfara bata jólaverslunar,
segir Greining Íslandsbanka,
en á síðasta ári dróst velta
jólaverslunar saman um
3 prósent að raunvirði og
um 4 prósent árið 2009.
Árið 2008, fyrstu jólin eftir
hrun, dróst veltan hinsvegar
saman um tæp 20 prósent
að raunvirði. Áætlað er að
hver maður verji um það bil
38 þúsund krónum í innkaup
sem tengjast jólunum. - jh
Haraldur F. Gíslason furðar sig á aðbúnaði leikskóla-
kennara í Reykjavík. Mynd/Hari
leikskólaMál forMaður félags leikskólakennara spyr uM öryggi barna á leikskóluM borgarinnar
Úldinn fiskur í leikskólum Reykjavíkur?
„Hvaða fiskur er í Reykjavík,“ er yfir-
skrift bréfs Haraldar F. Gíslasonar,
formanns Félags leikskólakennara,
til Jóns Gnarr borgarstjóra þar sem
hann bendir á bága stöðu leikskóla-
kennara Reykjavíkur. Bréfið var
ritað 24. október. Í því stendur að á
fundum um landið hafi hann heyrt og
undrast að leikskólakennarar í borg-
inni segi að þeir fái ekki að undirbúa
sig fyrir kennsluna. Hvergi á landinu
sé staðan slík. Fari starfsmaður frá
til undirbúnings verði annar að koma
í staðinn. Við Fréttatímann segir
hann að á því virðist vera misbrestur.
„Ég velti því fyrir mér hvort
borgarfulltrúar vilji hafa það á sam-
viskunni að öryggi barna sé teflt í
hættu,“ segir hann. Í bréfinu stendur
að leikskóladeild með 23 börnum og
einungis tvo starfsmenn geti ekki
gætt lágmarksöryggis barna, hvað þá
sinnt faglegri kennslu. „Er verið að
bíða eftir því að alvarlegt slys verði á
vakt undirmannaðrar deildar? Þegar
deildir eru undirmannaðar verður að
senda börn heim sem því nemur.“
Haraldur spyr í bréfinu hvort rétt
sé að aðeins megi ráða í 40 prósenta
afleysingar veikist starfsmaður leik-
skóla til lengri tíma. Haraldur biður
borgarstjóra um að láta fiskinn ekki
úldna meira. Hann segir við Frétta-
tímann að einu viðbrögðin sem
við bréfinu séu símtal frá Oddnýju
Sturludóttur og póstur frá Evu Ein-
arsdóttur borgarfulltrúum.
Eva segir ástandið í leikskólunum
ekki eins alvarlegt og Haraldur vilji
meina. Í nýrri fjárhagsáætlun er gert
ráð fyrir því að leikskólar geti betur
mætt því þegar starfsfólk veikist til
langs tíma svo mannekla komi ekki
niður á faglega starfi þeirra.
Gefðu gjöf sem gleður, gjöf sem kítlar bragðlaukana
Gjafakort á Nítjánda veitingastað er alveg tilvalið í jólapakkann
2 fréttir Helgin 25.-27. nóvember 2011