Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 8
N B. Sendi kr. 45 og jafna það næst ef Guð lofar. Kr. Jóh.“ Svo segir í niðurlagi skilagreinar til Star, sem
Kr. Jóhannesson sendir frá Eyrarbakka 15.
október árið 1903. Skilagreinin er meðal
ýmissa gagna sem komið hafa í ljós innan
úr veggjum og gólfum hins sögufræga húss
Kirkjuhvols við Kirkjutorg 4 í Reykjavík.
Fasteignafélagið Þórsgarður, sem nýverið
keypti húsnæðið, vinnur að endurbótum.
Næsta vor er fyrirhugað að tilbúnar verði í
því allt að tuttugu hótelíbúðir. Meira leigu-
húsnæði mun sjá um rekstur þeirra.
Jón Sveinsson trésmiður hóf byggingu
Kirkjuhvols árið 1899 og lauk henni árið
1901. Húsið er í hjarta Reykjavíkur, sunnan
Dómkirkjunnar og skáhalt á Alþingis-
húsið. Hið veglega hús var fyrsta íbúðarhús
Reykjavíkur þar sem komið var fyrir mið-
stöðvarhitun. Alþýðulestarfélag Reykjavík-
ur opnaði þar lessal árið 1901 og starfrækti
í nokkur ár.
Á þriðja áratug liðinnar aldar komst
Kirkjuhvoll í eigu bræðranna Herlufs og
Arreboe Clausen. Þá var húsið lengi í eigu
athafnamannanna Silla og Valda. Ýmis
skrifstofu- og verslunarstarfsemi hefur
verið í húsinu í gegnum árin en á jarðhæð
þess nú eru Pelsinn og Vínbarinn.
Við hina gagngeru endurnýjun innviða
hússins kemur ýmislegt í ljós, fleira en fyrr-
nefnd skilagrein sem getur meðal annars
um greiðslu læknisvottorðs, sem kostaði
10 krónur, og annarra kostnaðarliða, meðal
annars endurgreiðslu til Gísla Gíslasonar.
Úr einum veggnum komu Stjórnartíðindi
ársins 1905. Þar er fremst auglýsing frá
nýstofnuðu Stjórnarráði Íslands þar sem
H. Hafstein, ráðherra Íslands, auglýsir
kosningu til Alþingis vegna láts Páls Briem,
alþingismanns Akureyrarkaupstaðar. „Því
þarf,“ eins og segir þar, „að efna til kosn-
inga til Alþingis vegna hins látna þing-
manns.“
Neðar á síðunni auglýsir Hannes ráð-
herra að frá 23. mars 1905 skuli úr gildi
fallnar auglýsingar Stjórnarráðsins frá fyrra
ári um sóttkvíar Norðurísafjarðarsýslu
(skrifað svo) og Ísafjarðarkaupstaðar vegna
mislinga. Önnur auglýsing vekur einnig
athygli en laust er þetta herrans ár til um-
sóknar Stokkseyrarprestakall og tekið fram
að prestsekkjan njóti eftirlauna af brauðinu,
krónur 181 og 58 aurar.
Fleira kom úr gólfum og veggjum en
sandur sem notaður hefur verið til einangr-
unar, þar á meðal passamynd karlmanns
tekin á stofu Jóns Sæmundssonar. Þess
utan er ýmislegt sem vitnar um rekstur í
húsinu og þjónustu sem veitt var. Meðal
þess eru vörunótur frá Silla og Valda, rúðu-
strikuð bókhaldsblöð, þýskur innkaupa-
listi, vörulisti yfir íþróttavörur og umslag
til Árna Sighvatssonar frá Rexo í Chicago,
„The Lively Magazine of Photography.“
Tvær nótur eru einnig stílaðar á sama Árna
Sighvatsson frá Verzlun Jes Simsen, báðar
frá árinu 1930. Á Árna eru einnig stíluð
Stjórnartíðindi ársins 1929. Þeir sem í hús-
inu bjuggu eða störfuðu nýttu sér þjónustu
Björnsbakarís. Um það vitna nótur frá árinu
1927.
Þótt Vínbarinn sé rekinn um þessar
mundir á jarðhæð hins merka húss voru
menn öðru vísi þenkjandi þar á þriðja tug
liðinnar aldar. Um það vitnar blaðið Templar
frá árinu 1930 sem Brynleifur Tobiasson rit-
stýrði. Á forsíðu þess er rætt um þingsálykt-
unartillögu um áfengisvarnir en stúkufrétt-
ir eru inni í blaðinu, innlendar sem erlendar.
Þar kemur meðal annars fram að Stór-
stúkuþingið verði haldið í júní og að reglan
hafi orðið 50 ára í Noregi. Auk auglýsinga á
baksíðu eru bindindisfréttir á baksíðunni.
Þess utan kom í ljós Stjórnarskrá og frum-
varp til aukalaga fyrir undirstúkur undir
lögsögu Stórstúku Íslands – gefin út af Stór-
stúku Íslands og prentuð í prentsmiðjunni
Gutenberg 1924.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
KirKjuhvoll uNNið að eNdurNýjuN og breytiNgum
Gögnin koma innan úr
veggjum og gólfum hússins
Skilagrein frá árinu 1903 og Stjórnartíðindi frá 1905 eru meðal gagna sem komið hafa í ljós við
endurnýjun hins sögfræga húss. Bindindisblöð Stórstúkunnar hafa leynst ofan við Vínbarinn.
Opnaðar verða hótelíbúðir í húsinu næsta sumar.
Ýmsir pappírar sem vitna um starfsemi í Kirkjuhvoli komu innan úr veggjum og gólfi hússins. Unnið er að endurbótum en
ráðgert er að opna þar allt að tuttugu hótelíbúðir næsta sumar.
Þeir sem
í húsinu
bjuggu
eða
störfuðu
nýttu sér
þjónustu
Björns-
bakarís.
Um það
vitna
nótur
frá árinu
1927.
Íbúar Holtsbúðar fluttir
á Vífilsstaði
Allir íbúar hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar
í Garðabæ hafa verið fluttir þaðan á Vífils-
staðaspítala. Aðbúnaður á heimilinu þótti
ófullnægjandi og var gagnrýndur í skýrslu
Landlæknisembættisins, eins og Fréttatíminn
greindi frá fyrr á þessu ári. Holtsbúð stendur
nú auð. Gert er ráð fyrir því að nýtt hjúkr-
unarheimili verði tekið í notkun í Sjálands-
hverfi árið 2013. Fram kom í viðtali við Björn
Zoëga, forstjóra Landspítalans, í Frétta-
blaðinu, að samningur hefði verið gerður við
Garðabæ um afnot af Vífilsstöðum þangað til.
Íbúarnir sem fluttust frá Holtsbúð eru 39, allt
eldra fólk sem margt þarf mikillar hjúkrunar
við. Í nýja hjúkrunarheimilinu í Sjálandshverfi
verður rými fyrir 60 heimilismenn. - jh
Byggingarkostnaður
hækkar
Byggingarkostnaður hækkaði lítillega í
nóvember eða sem nemur um 0,2 prósent
frá fyrri mánuði. Verð á innlendu efni
lækkaði um 1,3 prósent en verð á innfluttu
efni hækkaði um 2,5 prósent. Vinnuhluti vísi-
tölunnar sem og verð fyrir vélar, flutning og
orkunotkun stóð í stað milli mánaða, að því
er Hagstofan greinir frá. Byggingarvísitalan
hefur hækkað um 10,7 prósent undanfarna
12 mánuði. Hækkunin skýrist helst af mikilli
hækkun vinnuliðar vísitölunnar. Í kjölfar
kjarasamninganna á almennum vinnumark-
aði fyrr á árinu hefur vinnuliðurinn hækkað
um tæp 20 prósent undanfarna 12 mánuði.
Á sama tíma hefur innlent efni hækkað um 8
prósent og innflutt um 7 prósent. - jh
Gengi krónunnar
veikist
Gengi krónunnar hefur veikst að
undanförnu. Það veiktist töluvert á
þriðjudaginn og kostaði evran þá rétt
rúmar 160 krónur. Veikingin gekk þó
að hluta til baka. Veikingin hélt áfram á
miðvikudag og kostaði Bandaríkjadoll-
ar þá tæpar 119 krónur, evran rúmlega
159,5 krónur og pundið rúmlega 185
krónur. Í lok október kostaði dollarinn
rúmlega 112 krónur. Skýringin er, að
mati Greiningar Íslandsbanka, líklega
einna helst árstíðabundin sveifla
í gjaldeyrisflæði til og frá landinu,
nú þegar innflæði gjaldeyris vegna
ferðamanna fjarar út samhliða því sem
útflæði eykst vegna jólaverslunar. - jh
Taktu stjórnina með
Tímon tímaskráningarkerfi
www.timon.is
VILTU VITA Í
HVAÐ TÍMINN FER?
FÍ
T
O
N
/
S
ÍA
Veggskraut fyrir alla sem elska falleg eldhús!
Eldhúsdagatalið 2012
Pantanir og nánari upplýsingar á www.jola.is
8 fréttir Helgin 25.-27. nóvember 2011