Fréttatíminn - 25.11.2011, Side 10
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Jónas heiðursborgari Kópavogs
Fasteignir risaviðskipti í miðbænum
Hriflu-villa Kára fór á 110 milljónir
Heiðursorðuhafi í Val keypti glæsihýsi Kára Stefánssonar við Hávallagötu og borgaði rúmar
hundrað milljónir í peningum fyrir.
i ngólfur Friðjónsson, framkvæmda-stjóri löginnheimtu Frjálsa fjárfest-ingabankans, hefur fest kaup á hinu
fræga húsi Hamragörðum sem stendur
við Hávallagötu. Ingólfur, sem var
sæmdur heiðursorðu íþróttafélagsins
Vals árið 2008, greiddi 110 milljónir fyrir
húsið í peningum. Samkvæmt kaup-
samningi þarf núverandi eigandi, félagið
Hávallagata 24, sem er aftur í eigu Kára
Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfða-
greiningar, að aflétta 30 milljóna króna
láni á eigninni fyrir lok janúar á næsta
ári. Húsið hefur verið á sölu frá því í vor
og hafa mörg tilboð borist í það. Eftir
því sem Fréttatíminn kemst næst var þó
aldrei inni í myndinni hjá Kára að selja
fyrir lægri upphæð en Ingólfur borgar
fyrir það.
Ljóst er að ekki mun væsa um Ingólf
við Hávallagötuna. Húsið er 329 fermetr-
ar og sérlega reisulegt. Það er teiknað
af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara
ríkisins, árið 1941. Upphaflega var húsið
ætlað skólastjóra Samvinnuskólans. Sá
var á þeim tíma sjálfur Jónas frá Hriflu
og bjó hann í húsinu til dauðadags. Félag
Kára keypti húsið af Elfari Aðalsteins-
syni, syni Alla ríka á Eskifirði, árið 2002.
Samkvæmt kaupsamningi mun Kári
afhenda húsið í lok janúar á næsta ári
– eða eftir rúma tvo mánuði. Þá mun
hann væntanlega flytja með fjölskyldu
sína upp í Fagraþing í Kópavogi þar
sem hann hefur undanfarin ár staðið
í byggingarframkvæmdum. Reyndar
þótti yfirvöldum í Kóapvogi hann taka
sér fulllangan tíma í verkið á tímabili og
hótaði honum dagsektum. Ekki hefur
þó aðgerðarleysi verið fyrir að fara hjá
Kára í Kópavoginum að undanförnu því
húsið, sem er rúmir 500 fermetrar, hefur
flogið upp. Það er sérstakt í útliti og
teiknað af Hlédísi Sveinsdóttur arkitekt,
dóttur Sveins Eyjólfssonar fyrrverandi
blaðaútgefanda.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@ frettatiminn.is
Hávallagata 24 hefur hýst
ekki ómerkari menn en
Jónas frá Hriflu og Kára
Stefánsson.
Ingólfur Friðjónsson.
Listasmiðja fyrir börn
Börnum, 5-9 ára, verður boðið að spreyta
sig á eigin listsköpun eftir að hafa skoðað
valin verk á sýningunni Þá og nú í Lista-
safni Íslands við Fríkirkjuveg næstkomandi
sunnudag, 27, nóvember, í fylgd Ásgerðar
Júlíusdóttur listfræðings. Nokkur verk
á sýningunni verða skoðuð sérstaklega
þar sem höfðað verður til ímyndunarafls
barnanna og sögur sagðar. Að spjallinu
loknu fer í gang listsmiðja þar sem börnin
fá tækifæri til að skapa og túlka það sem
fyrir augu bar. Foreldrum jafnt og yngri
eða eldri systkinum er einnig velkomið
að taka þátt. Sætafjöldi er takmarkaður
en skráning fer fram í afgreiðslu safnsins
við Fríkirkjuveg 7 og í síma 515 9600 til
dagsins í dag, föstudags. - jh
Rafrænar greiðslur hjá
borginni
Allir greiðsluseðlar frá Reykjavíkurborg
verða sendir rafrænt í heimabanka frá
og með næstu mánaðamótum og ekki
prentaðir út fyrir aðra en einstaklinga
sem náð hafa 67 ára aldri og fyrirtæki.
Hægt er að óska eftir því sérstaklega að
fá útprentaðan seðil í Rafrænni Reykjavík.
Reykjavíkurborg hætti að senda út prent-
aða greiðsluseðla vegna fasteignagjalda
árið 2010. Hefur það sparað borginni um
280 þúsund heimsendingar á útprentuðum
reikningum. Með breytingunni nú er gert
ráð fyrir að um 200 þúsund greiðsluseðlar
sparist til viðbótar. Sparnaður vegna þessa
nemur 40-45 milljónum króna á ári. - jh
Bæjarstjórn Kópavogs hefur ákveðið að
gera Jónas Ingimundarson píanóleikara
að heiðursborgara Kópavogs. Með því
vill bæjarstjórn sýna honum þakklæti
fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar,
menningar og tónlistaruppeldis. Jónas
hefur frá árinu 1994 starfað sem tón-
listarráðunautur Kópavogs og var einn
helsti hvatamaður þess að Salurinn,
tónlistarhús Kópavogs, var byggt. Þrír
Kópavogsbúar hafa áður verið gerðir
heiðursborgararar, hjónin Finnbogi Rútur Valdemarsson og Hulda Jakobsdóttir, fyrr-
verandi bæjarstjórar, árið 1976 og Sigfús Halldórsson tónskáld árið 1994. Bæjarstjórn
hyggst heiðra Jónas með móttöku í Salnum 4. desember. - jh
Dómsmál lögbannskraFa Horns á Dv
Fallið frá lögbannskröfu á DV
Fjárfestingafélagið Horn, sem er að
fullu í eigu Landsbankans, hefur fallið
frá lögbannskröfu á hendur DV. Þetta
var ákveðið á mánudag, stuttu áður en
taka átti málið til aðalmeðferðar hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur. Forsaga máls-
ins er sú að Horn fékk lögbannskröfu á
DV samþykkta til að koma í veg fyrir að
blaðið birti fréttir upp úr fundargerðum
Horns, sem DV hafði undir höndum, þar
sem það gæti kostað félagið milljarða.
Jafnframt vildu forsvarsmenn Horns fá
gögnin afhent aftur en því var neitað.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir
í samtali við Fréttatímann að þessi
niðurstaða sé ánægjuleg en hann líti
tilraun Horns til þöggunar alvarlegum
augum. „Það er náttúrlega ekki eðlilegt
að einhver pótintáti hjá Sýslumanni geti
bara sí svona skellt lögbanni á okkur,
þaggað niður í okkur og skaðað okkur
fjárhagslega. Síðan draga menn bara
mál til baka þegar þeim hentar,“ segir
Reynir og bætir við að DV eigi eftir að
ákveða hvort sóttar verða skaðabætur
á hendur Horns vegna „þeirra búsifja
sem blaðið varð fyrir vegna lögbanns-
kröfunnar.“ Reynir Traustason, ritstjóri DV. Ljósmynd/Hari
Það er nátt-
úrlega ekki
eðlilegt að ein-
hver pótintáti
hjá Sýslu-
manni geti
bara sí svona
skellt lögbanni
á okkur.
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Góðir posar á hagstæðum kjörum
Þjónusta allan sólarhringinn
Viðskiptavinir á landsbyggðinni fá senda posa
sér að kostnaðarlausu
Mundu að panta posa fyrir jólaverslunina
á www.borgun.is eða í síma 560 1600.
Alltaf nóg að
gera fyrir jólin!
Lj
ós
m
yn
d/
va
lu
r.
is
10 fréttir Helgin 25.-27. nóvember 2011