Fréttatíminn - 25.11.2011, Side 26
B ótox og fylliefni. Nýjasta nýtt í þeim heimi er að nota
bótox og fylliefni til að „yngja
upp“ hendur, á appelsínuhúðina
og jafnvel til að hjálpa fólki sem
gnístir tönnum. Bótoxi er meira
að segja sprautað í handarkrika
til að sporna gegn svitamyndun
þar.
Með fylliefnum má til dæm-
is hækka augabrúnir, minnka
hrukkur á hálsi, lyfta munn-
vikum, jafna gagnaugu, draga
úr kónganefjum, móta kjálka,
minnka bauga undir augum,
mýkja harða hökudrætti og þá
er aðeins búið að nefna andlit-
ið. Þetta er allt tíundað í banda-
ríska tímaritinu New Beauty, tvö
hundruð síðna tímariti með fegr-
unarráðum – og auglýsingum og
kynningum bandarískra lýta-
lækna aukalega. En hvað gera
íslenskar konur? Vilja þær bótox?
Stöðugt fleiri í bótox
á Íslandi
„Já, við finnum vaxandi áhuga
hér á landi; á bótoxi, fylliefnum
og fegrunaraðgerðum almennt,
rétt eins og annars staðar í
heiminum,“ segir Ágúst Birgis-
son, lýtalæknir í Dómus Medica.
Hann hefur mikla reynslu af lýta-
og fegrunaraðgerðum, lærði
skurðlækningar í Bandaríkjun-
um og bæklunarskurðlækningar
og lýtalækningar í Noregi.
„Botox er ekki fylliefni,“ seg-
ir Ágúst og leiðréttir útbreidd-
an misskilning. „Bótox lamar
vöðva svo ekki sé hægt að mynda
hrukkur. Þannig að bótox sest á
taugavöðvamótin og hindrar boð
til hans og vöðvinn virkar ekki.
Bótox er því sett þar sem ein-
staklingur vill koma í veg fyrir
að hrukkur myndist, eins og til
dæmis í enni.“
Og hann kannast vel við að
bótox sé notað við mikilli svita-
myndun. „Eitt til tvö prósent
Íslendinga eiga við að stríða
gríðarlega svitamyndun í hand-
arkrika. Þá er hægt að sprauta
bótoxi í þá og lama taugarnar
þannig að fólk hættir að mynda
svita þar,“ segir hann. „Ég hef gert
dálítið af þessu og það virkar þræl-
vel. Eini gallinn er að þetta er dýrt
og hið opinbera tekur ekki lengur
þátt í að niðurgreiða aðgerðirnar
vegna sparnaðar.“
Vill ekki daðurslaust andlit
Ágúst segir mikilvægt að fólk verði
ekki svipbrigðalaust við bótox-notk-
un. „Fólk á að halda sínum jákvæðu
einkennum, geta lyft augabrúnum
og daðrað og það allt,“ segir hann
í léttum tóni. „Í stórum skömmt-
um getur bótox verið hættulegt.
Þetta er eitt öflugasta eitur sem við
þekkjum og því ekki hættulaust.
En í þessum skömmtum sem við
lýtalæknar notum í fegrunarskyni
er lítil hætta á ferðum. Það geta þó
greinst staðbundin einkenni; svo
sem blæðing og jafnvel verkir á
svæðinu þar sem bótoxið er sett.“
Já, hann segir bótox ekki aðeins
notað í fegrunarskyni heldur einnig
í lækningaskyni. „Það er til dæmis
notað til að lama stóra vöðva hjá
spastískum börnum og þeim sem
eldri eru. Þá nota læknar miklu
stærri skammta.“ Spurður hversu
gamlar konur, og enn sem komið
er einstaka karlar, séu þegar leitað
er til hans, segir hann það misjafnt.
„Svona eftir 35 ára aldur og uppúr
þó helst.“
Bótox lamar en fylliefnin laga
Ágúst bendir á að á meðan bótox
lami séu fylliefni notuð til að lyfta
húðinni. „Þessi efni eru oft notuð
saman. Bótox er notað til að fyrir-
byggja hrukkur, en þegar hrukkan
er komin grípum við til fylliefnis til
að fylla upp í hana.“ Hann segir mis-
jafnt hve lengi efnin endast. Yfirleitt
sé endingin um sex til átta mánuðir.
„Stundum lengur.“
Ágúst segir bótox dýrt. „Já, gall-
inn við efnið er hversu dýrt er að
nota það og þess vegna getur fólk
yfirleitt ekki notað bótox á sex
mánaða fresti,“ segir hann. „Það
má jafnvel segja að verðið komi í
veg fyrir að fólk geti notað efnin að
staðaldri.“ Hvert skipti kosti um og
yfir 55 þúsund krónum.
Greint var frá í DV í mars að
Fertug kona segir að hún óttist ekki að eldast þótt hún láti sprauta fylliefnum í
andlit sitt til að fela hrukkur. Hún hefur tvisvar farið og segir það sárt og útlitið
ekki gott rétt á meðan, enda blæði úr hverri stungu. Marin í nokkra daga á eftir,
en ofsalega sátt við árangurinn. Hún segir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir frá.
„Ég vil eldast fallega“
FYRIR
EFTIR
FYRIR
EFTIR
FYRIR
EFTIR
FYRIR
EFTIR
FYRIR
EFTIR
Hér er vandræðastjarnan,
Lindsay Lohan, fyrir fimm
árum og svo í dag.
Mikið var talað um
þegar ungstirnið Hillary Duff
„skipti um“ tennur.
Madonna hefur breyst í
tímanna rás. Hér er hún fyrir
23 árum og svo nú.
Svo gullfalleg en var þó ekki
sátt. Lara Flynn Boyle fyrr og nú.
Myndir/gettyimages
Nicole Kidman árið 1996 og nú.
Bótox, fylliefni og lýtaaðgerðir er meðal þess mest
umtalaðasta þegar Hollywood-stjörnur ber á góma.
Hvað kom fyrir Nicole Kidman, Löru-Flynn Boyle,
Cher, Madonnu samkvæmt slúðurmiðlum? Hvað
notuðu J.Lo og Heather Locklear?
Kvikmyndastjörnurnar þurfa ekki einu sinni að vera
á fimmtugs- og sextugsaldri í leit að því sem gerir að
þær virðast yngri. Þær yngri leita líka að staðlaðri
fegurð. Hvaða stökkbreyting hefur orðið á Lindsay
Lohan, Ashlee Simpson og Hillary Duff? Sagt er
bótox og fylliefni. Já, og auðvitað bara almennar lýta-
aðgerðir í tilfellum sumra þeirra. En einhverjir myndu
vilja halda því fram að þær heyri til öfgahóps þegar
fegrunaraðgerðir eru annars vegar.
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur á Heilsustöðinni
í Kópavogi, segir útlitsdýrkun mjög þekkt vandamál.
Helst virðist sem allir þurfi að vera steyptir í sama
mótið í Hollywood. „Þekkt er að tískufyrirmyndir sem
þessar geta haft skaðleg áhrif.“ Þá getur sókn í fegrun-
araðgerðir orðið fíkn.
„Það er með þessa fíkn eins og aðrar að fólk er
gjarnan í afneitun og réttlætir aðgerðirnar fyrir sjálfu
sér. Tilfinning mín er sú að hjá þessum stjörnum séu
bótox og fylliefni ekki lengur feimnnismál,“ segir
hún. „Það boðar ekki gott líti ungar stúlkur sem eru
óánægðar með sig á fegrunaraðgerðir sem sjálfsagðan
hlut og útlitið það sem þurfi að breyta til að bæta lífið.
En sé sjálfsvirðingin lítil og sjálfsmyndin í molum eru
fegrunaraðgerðir ekki lausnin. Þá þarf að vinna að
rótum vandans en ekki laga útlitseinkenni.“ - gag
M
argar konur sem vilja bæta
útlit sitt velja að sprauta fylli-
efnum undir húð sína. Hyal-
uronic er eitt þessara efna.
Íslensk kona um fertugt lýsir
því þegar hún lá á bekk erlends snyrtifræðings
sem bar deyfiefni á húðina áður en hún stakk
allt andlit hennar út með örmjórri nál á heimili
sínu á höfuðborgarsvæðinu.
„Stungurnar eru svo ógeðslega vondar.
Þetta eru um hundrað þéttar stungur. Tilfinn-
ingin er þó ekki lík tattúveringu því nálastung-
ur tattúveringar eru í húðina en þessu efni er
sprautað undir hana,“ segir hún segir hún með
reynslu á báðum sviðum.
„Snyrtifræðingurinn fyllti í áhyggjuhrukkur
milli augna og blævæng – ef svo má segja
– meðfram augum og um allt andlitið til að
gefa upplyftingu. Eftir meðferðina þarf ég að
drekka 10 glös af vatni á dag í 10 vikur. Ég
má ekki fara í gufu eða annað þvíumlíkt því
efnið dregur í sig vatn og þenst út,“ segir hún.
„Þetta efni er ekki eins og Botox sem sprautað
er í vöðva. Þetta efni frískar aðeins húðina,“
segir hún.
„Ég grét úr sársauka þessa klukkustund
sem meðferðin tók. Fimm mínútum eftir
stungurnar var útlitið mitt hreint óhugnan-
legt. Ég leit í spegil og sá hundrað stungur
og blóðdropa út um allt andlit. Ég var rauð og
flekkótt. Í kjölfarið kom mar undir augu og
við kjálkabein, en það er mjög persónubundið
hvar og hvort andlitið merst,“ segir hún aðeins
nokkrum dögum eftir meðferðina. Enn má
sjá votta fyrir mari á andliti hennar, sem hún
þekur andlitsfarða.
Hún segir að þetta sé í annað sinn sem hún
fer í slíka fegrunarmeðferð. „Ég geri þetta
af því að þetta fríkkar húðina og gerir mann
frísklegri í skammdeginu. Efnið gefur húðinni
ljóma og grynnkar hrukkur,“ segir hún og
viðurkennir að hún myndi ekki segja hvaða
vinkonu sem er frá ákvörðun sinni.
„Ég segi aðeins þeim sem höndla að heyra
það. Því miður eru sumar konur fullar af for-
dómum gegn fegrunaraðgerðum. Hér á landi
tala konur ekki um það fari þær í svona upp-
lyftingu. Í Bandaríkjunum er þetta hins vegar
mál málanna og hægt að kaupa bótox í versl-
unarmiðstöðum,“ segir hún.
„Það voru áhyggjuhrukkurnar milli augn-
anna sem komu mér af stað. Mér finnst þetta
áhugaverð leið til að líta betur út án þess að
fara lengra inn á braut fegrunaraðgerða. Núna
lít ég svo á að þetta sé eins og að fara í litun.
Ég lita hárið þegar komin er rót og set í hrukk-
ur þegar þær myndast. Þetta er nú mín leið til
að laga útlitið þegar krem virka ekki lengur og
hrukkur myndast.“
Hún segist þó ekki hlynnt því að afmá ellina.
„Og ekki vil ég líta út eins og dúkka. Ég vil
eldast, en fallega.“
Sækjast eftir því að vera steyptar í sama form
Öfgabólgnar kvikmyndastjörnur óheppilegar fyrirmyndir ungra, óöruggra kvenna.
Bótox og fylliefni
verða æ vinsælli
Bótox er ekki bara fyrir Hollywood-stjörnur. Efnið er notað
svo fólk hætti að gnísta tönnum, sprautað í stífa vöðva
spastískra til að lama þá og jú, einnig í enni og aðra staði til
fegrunar. Lýtalæknar finna fyrir vaxandi áhuga landans á
bótoxi og fylliefnum til að koma í veg fyrir hrukkur eða afmá.
Ágúst Birgisson leiðir lesendur Fréttatímans í allan bótox-
sannleikann.
Hvað er
hyaluronic?
Ekki þarf að
ofnæmisprófa
hyaluronic
áður en því er
sprautað í húð,
sem þykja góðar
fréttir í heimi
fegrunarað-
gerða. Þá þarf
ekki að bíða
í átta vikur
eftir niðurstöðu
ofnæmisprófa
áður en látið er
til skarar skríða.
Úlitinu breytt. Fertug kona vill
vera frískleg í skammdeginu og
hefur tvisvar farið í fylliefnameðferð.
Myndin er sviðsett. Mynd/gettyimages
www.noatun.is
Pantaðu veisluna þína á
Tækifærisveislur
Sush
i
Mexí
kósk
t
Ítalsk
t
Smur
brauðGala Aust
urlen
skt
Spæn
skt
Brauð
tertu
r
26 fegrunaraðgerðir Helgin 25.-27. nóvember 2011