Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 36
2 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
É g var 10 ára gamall og sá vatna-karfa synda um í baðkerinu hjá móðursystur minni á aðfangadag,
var mjög brugðið og komst svo að því að
þetta var jólamaturinn,” segir Óttar Norð-
fjörð rithöfundur sem dvaldi ásamt fjöl-
skyldu sinni í Tékklandi á jólunum árið
1990.
„Í innlöndum, þar sem systir mömmu
bjó, er hefð fyrir því að borða fisk á jólun-
um, enda munaðarvara fyrir þá sem búa
langt frá hafinu. Hann er keyptur lifandi
daginn áður og geymdur í baðkarinu fram
á aðfangadag. Við fengum líka einhvern
fisk í hlaupi í forrétt, að mig minnir, sem
ég var ekkert sérstaklega hrifinn af. Ég
var bara barn og vildi alls ekki hafa fisk í
jólamatinn og eflaust hafði það áhrif á mig
að hafa séð fiskinn í baðkarinu fyrr um
daginn. Það er eitthvað sem situr í mér.
Minning um dökkan svamlandi fiskinn
er sterk og ég, borgarbarnið, var óvanur
þessu návígi við dýrin sem maður borðar.”
En jólin liðu og áramótin tóku við. „Á
þessum tíma var bannað að skjóta upp
flugeldum í Tékklandi en ég fékk þó að
fara út á svalir og horfa yfir til Póllands
og flugeldum var skotið á loft. Ekkert
heyrðist í sprengjunum í fjarska og þetta
gamalárskvöld ríkti þögn. Ég var mjög
vonsvikinn 10 ára drengur þau jólin og
áramót.“
Það sem heillaði Óttar mest þá voru
hins vegar jólamarkaðir sem þau heim-
sóttu. „Það þótti mér mjög flott. Ótal
viðarkofar á stóru torgi þar sem hægt var
að fá heitt kakó og skoða og kaupa fallegt
handverk. Hin evrópska jólamarkaðshefð
er mjög falleg og heillandi og höfðaði vel
til mín þegar ég var 10 ára,“ segir Óttar.
„Í dag viðurkenni ég að ég myndi ekki
slá hendinni á móti vatnakarfa á jólunum.
Í minni fjölskyldu tíðkast að halda tékk-
nesk jól á Þorláksmessu þar sem móðir
mín er tékknesk og þá borðum við alltaf
fisk.”
M ér finnst áberandi þessi tilfinning að upplifa jólin eins og þau voru hér áður fyrr,“ segir Berta Björk Heiðarsdótt-
ir, blómaskreytir í Blómagallerínu við Haga-
mel, aðspurð um hvað hæst beri í jólaskreyt-
ingum í ár. „Við erum að nota eitthvað sem við
höfum séð áður, en kannski á nýjan hátt og þar
er hrátt útlit, efniviður úr náttúrunni og mjúkar
línur áberandi,“ segir Berta. Hún setti saman
í aðventukrans sem henni þykir lýsandi fyrir
tískusveifluna í ár. Hann er úr könglum úr ís-
lenskum skógi, eini og lyngi. „Auk þess notaði
ég gamaldags köflóttan borða og smá lopaband
með honum.“ Útlit hans er gamaldags, hlýlegt
og norrænt, ef svo má að orði komast. Kertin
eru háglansandi og líta út eins og jólakúlur.
„Þetta eru svakalega sparileg kerti, svona
glansandi, en ég sá mikið af þessum kertum á
sýningum í haust.“
Berta ráðleggur þeim sem vilja útbúa sína
eigin kransa að nota hefðbundnar aðferðir eins
og að vefja þá með greni og leita út í náttúruna
eftir könglum.
Eldvarnir eru einnig mikilvægar í kringum
aðventukransinn og er hægt að fá sérstök stæði
fyrir kertin sem stungið er í kransinn sem um-
lykur þau og heldur frá efninu. „Gæta þarf þess
að láta efnið ekki vera of nálægt kertunum og
láta þau standa upp úr, og láta svo skynsemina
ráða för og fylgjast vel með logandi kertum.“
AðventukrAnsinn
Mér finnst áberandi þessi tilfinning að upp-
lifa jólin eins og þau voru hér áður fyrr.
Eins og heima
hjá mömmuAfturhvarf og hlýleiki
einkenna
jólaskreyt-
ingar í ár og
eru aðventu-
kransarnir
þar engin
undan-
tekning.
einstök jól
Jólamaturinn
svamlaði í baðinu
Óttar Norðfjörð rithöfundur hélt jól í Tékklandi þegar hann var 10 ára gamall.
Hin evrópska
jólamarkaðs-
hefð er mjög
falleg og
heillandi og
höfðaði vel til
mín þegar ég
var 10 ára.
óttar norðfjörð rifjar upp þegar hann fór til Tékklands 10 ára gamall og fékk fisk í jólamatinn. Það þótti honum ekki fýsilegt
auk þess sem fiskurinn var geymdur lifandi inn á baðherbergi fram á aðfangadagskvöld.
FA
B
R
IK
A
N
NÝ SENDING AF
UMBRA VÖRUM
KAUPTÚNI OG KRINGLUNNI
www.tekk.is
MARKEL myndarammi
2.900 kr. stk,
FISH HOTEL
vasi/gullfiskabúr
6.500 kr. stk,
BIRDSEYE snagi
3.750 kr.
WALLFLUTTER
veggskraut
20 stk. í kassa
5.900 kr.
FLO
myndarammi
3.950 kr.
TRIGEM
skartgripa-
4.800 kr.