Fréttatíminn - 25.11.2011, Page 48
14 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
H jónin Hulda Sveins og Hrafn Jónsson reka saman hönnunar- og
handverksfyrirtækið Raven
Design í Reykjanesbæ. Þau
hafa haganlega gert upp 100
ára gamalt fjós þar sem þau
búa og vinna við hönnun
sína. „Við búum til yfir 80
vörur og allt verður þetta til
hérna heima í Njarðvík,“ segir
Hulda. Hjá Raven Design er
gert skart úr leðri og plexí,
ostabakkar, servíettuhringir
og glasabakkar úr hömruðu
plexígleri fyrir heimilið. „Við
búum til nýjan jólaóróa ár
hvert og höfum gert síðan
2004,“ bætir Hulda við. Nýjasti
jólaóróinn heitir Kærleikur
og er í laginu eins og hjarta.
Þau hafa nýlokið við að hanna
kertastjaka og jólatré í tveim-
ur stærðum sem væru prýði á
íslenskum heimilum.
Heilsukoddinn Keilir er
verkefni þeirra hjóna sem val-
ið hefur verið af Íslandsstofu
sem verkefni til útflutnings.
„Aðeins 8 fyrirtæki eru valin
hverju sinni. Okkar viðskipta-
hugmynd er heilsukoddi sem
ég hannaði og kalla Keilir
en nafnið kemur frá tveimur
keilum sem styðja við höfuð-
og vangasvæðið,“ segir Hulda.
Koddinn vann til alþjóðlegra
verðlauna „EUWIIN – Special
Nomination Award“ í Helsinki
2009 og er til sölu í verslunum
Svefns og Heilsu, í Leifsstöð
og hjá Heilsuhóteli Íslands.
Raven Design Hönnunarfyrirtæki í reykjanesbæ
Hönnun í aldargömlu fjósi
arionbanki.is — 444 7000
Finnur þú ekki
réttu jólagjöfina
fyrir starfsfólkið?
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar
sem er. Þú velur fjárhæðina, starfsmaðurinn
velur gjöfina. Gjafakortin eru án endurgjalds
til fyrirtækja fram að jólum.
Komdu í næsta útibú Arion banka eða
pantaðu gjafakortin á vef bankans.
Jólahlaðborð í Húsa-
smiðjunni í Skútuvogi
b lómaval er komið í jóla-búninginn enda byrja jólin í Blómavali“, segir Linda
Björk Gunnlaugsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Blómavals.
Jólalandið í Skútuvogi á fastan
sess í hjörtum margra lands-
manna enda verið fastur liður í jól-
unum undanfarin 23 ár: „Jólaland-
ið í ár er sérstaklega spennandi
fyrir börnin þar sem hægt er að
ganga inn í helli og fylgjast með
jólasveinunum undirbúa jólin.
Upplifunin er ævintýraleg. Við
verðum með ýmsar uppákomur
fyrir börn um hverja helgi í Jóla-
landinu í Skútuvoginum,“ segir
Linda Björk og heldur áfram: „Þar
á meðal koma Skoppa og Skrítla,
Solla stirða og Íþróttaálfurinn úr
Latabæ og Tóti tannálfur á stað-
inn ásamt Jólasveinum.“
Mikið úrval jólavöru
Jólastjörnurnar eru ómissandi
í jólahaldinu og fást þær á mjög
hagstæðu verði í Blómavali um
land allt. Mikið úrval er af fal-
legri jólavöru í öllum verslunum
Blómavals kringum landið meðal
annars amerísku RAZ vörurnar.
Gjafavöruúrvalið hefur aldrei
verið meira og mikið af nýjum
spennandi vörum.
„Við eigum landsins mesta
úrval af allskyns skreytingaefni
og auðvitað er jólagrenið komið
í hús,“ segir Linda Björk. „Við
erum með sérfræðinga í hverri
verslun sem ráðleggja hvaða
skreytingaefni hentar best og
koma með nýjar hugmyndir af
skreytingum í hverri viku. Kerti
og servíettur eru í miklu úrvali og
jólalitirnir í ár eru mjög spenn-
andi.“
Linda Björk segir Blóma-
verkstæðið framleiða mikið af
skreytingum sem fást á mjög
góðu verði. „Þar er meðal annars
að finna mikið úrval af aðventu-
krönsum, kertaskreytingum,
hýasintuskreytingum og öðrum
fallegum jólaskreytingum. Við
erum einnig með sérstakar
skreytingar með „kertaljósi sem
gengur fyrir batteríi” sem hentar
vel inná dvalarheimili og sjúkra-
hús þar sem ekki má vera með
venjuleg kerti.“
Blómaverkstæðið framleiðir
einnig mikið úrval af leiðisskreyt-
ingum á mjög góðu verði auk þess
sem mikið úrval er til af ljósum
og kertum á leiði.
eitt mesta úrvalið af ljósa-
seríum
Blómaval og Húsasmiðjan bjóða
eitt mesta úrval landsins af ljósa-
seríum – bæði úti- og inniseríum
– og þar ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
„Jólatréin eru að koma í búðir
og verður hægt að sjá úrval trjáa í
verslunum Blómavals frá og með
aðventuhelginni,“ segir Linda
Björk, „og munum við bjóða uppá
íslensk tré í miklu úrvali bæði
furu og rauðgreni, ásamt því að
bjóða innfluttan normannsþin frá
Danmörku. Þegar líða tekur nær
jólum þá er orðið ómissandi að
kaupa rauða túlipana í vasa – það
setur punktinn yfir i-ið í jóla-
stemmingunni.“
Verslanir Blómavals eru um
land allt: í Skútuvogi, Grafarholti,
Reykjanesbæ, Selfossi, Egilsstöð-
um, Akureyri, Dalvík, Ísafirði,
Akranesi og ný verslun í Hafnar-
firði. Einnig er úrval af vörum úr
Blómavali í verslunum Húsasmiðj-
unnar um land allt.
Kynning jólalandi í blómavali
Jólin byrja í Blómavali
Þ að er ekki aðeins Jóla-landið í Blómavali í Skútuvogi, sem gleður
börnin þessa dagana og undir-
strikar að jólin eru á næsta leiti,
því líkt og undanfarin ár er boðið
upp á jólahlaðborð í Kaffi Garði
í Húsasmiðjunni og Blómavali í
Skútuvoginum. Þarna gefst gest-
um og gangandi færi á að setjast
niður og njóta frábærra veitinga á
góðu verði eða aðeins kr. 1.290,- á
mann, sem telst hóflegt miðað við
það sem gengur og gerist í dag.
Á matseðli Jólahlaðborðs
Húsasmiðjunnar og Blómavals
í Skútuvogi eru heitir og kaldir
réttir. Þar á meðal má nefna ekta
svínapörusteik, Bayonnesskinku,
reyktar medisterpylsur, kjúk-
lingalæri, sveitapaté, kalda sjávar-
rétti, (rækjur, túnfiskur, reyktur
lax), síldarsalat með karrí, síldar-
salat með rauðrófum, marineraða
síld, rúgbrauð, flatkökur og
snittubrauð.
Meðlæti er líka í úrvali, eða
brúnaðar kartöflur, kartöflusalat,
kartöflustrá, heit brún sósa, epla-
salat, ferskt salat, grænar baunir
og kokteilssósa.
Það er tilvalið eftir eril dagsins
að ljúka verslunarferðinni með
því að setjast niður í Kaffi Garði í
Skútuvoginum, því jólahlaðborðið
er til reiðu alla daga frá klukkan
18 til 20, og verðið, er sem fyrr
segir, aðeins kr. 1.290,- á mann.
Jólalandið í
Blómavali í
Skútuvogi er
ómissandi
viðkomustaður
fyrir börnin í
aðdraganda
jólanna.