Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 54
20 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
R akel er mikil jólakona og hefur jólaundirbúninginn snemma, er til að mynda
búin að baka makkarónukökurnar
núna þrisvar sinnum og hafa þær
klárast fljótt og vel í hvert sinn.
Hún er líka búin að setja upp
nokkrar seríur og baka piparkökur
og gera piparkökuhús. Rakel nýtur
þess að standa í jólaundirbúningi
með börnunum fjórum og þau
elska það líka,“ segir Arnar og
sjálfur segist hann taka því rólega
og lætur sér nægja að fylgjast með
og njóta afurðanna.
„Við setjum strax í byrjun
aðventu seríur og ljós í glugga og
kransa á hurðir, sem við vefum
sjálf úr ilmandi greni,“ segir
Rakel og bætir við að þau skreyti
húsið snemma í desember og setji
upp jólatréð viku fyrir jólin. „Við
vöndumst því þegar við bjuggum
í Boston að vera ekki að bíða fram
á síðasta dag með að setja upp
jólatréð. Það ríkir mikil gleði þegar
UndirbúningUr á aðventu
Rakel Halldórsdóttir og Arnar Bjarnason í Frú Laugu. „Í desember höfum við tvíreykt hangilæri uppi við í eldhúsinu og skerum
okkur bita þegar okkur langar í, borðum mandarínur og piparkökur, allt ýtir þetta undir jólastemninguna og baðar húsið
jólailmi,“ segir Rakel.
Aðventan er tími
matar og samveru
Hjónin Rakel Halldórsdóttir og Arnar Bjarnason í versluninni Frú Laugu njóta aðventunnar með
fjölskyldunni við gerð piparkökuhúsa og fleira og að sjálfsögðu við matargerð.
það er gert, mikið um gleðióp og
hlátrasköll. Við höfum það fyrir
hefð að fara með börnin á jólatón-
leika Sinfóníunnar um miðjan
desember og ýtir það undir jóla-
stemninguna. Í desember höfum
við tvíreykt hangilæri uppi við í eld-
húsinu og skerum okkur bita þegar
okkur langar í, borðum mandarínur
og piparkökur, allt ýtir þetta undir
jólastemninguna og baðar húsið
jólailmi,“ segir Rakel.
Það er þó ekki bara heimilið og
börnin sem njóta athygli Rakelar og
Arnars yfir jólin því þau reka einnig
verslunina Frú Laugu þar sem þau
selja meðal annars vörur beint frá
bónda. Þar er að sjálfsögðu mikið
um að vera fyrir jólin.
„Frú Lauga verður með ýmislegt
góðgæti á boðstólum fyrir jólin.
Til viðbótar við hinar hefðbundnu
vörur verður í boði dásamlegt laufa-
brauð og jólabrauð, hangikjöt af
ýmsum gerðum, til dæmis tvíreykt
sem er vinsælt fyrir jólin, girnilegar
steikur af ýmsum toga og margt
fleira. Þá fáum við frá Ítalíu góm-
sætar blóðappelsínur, Panettone-
jólakökur og Torrone-jólasælgæti,
sem okkur þykir allt ómissandi
fyrir jólin eftir að hafa búið á Ítalíu,“
segir Arnar.
En hvað er á borðum hjá Arnari
og Rakel á jólunum?
„Við erum ekki með neina fasta
reglu þar um, erum alltaf að prófa
eitthvað nýtt. Síðustu jól höfum við
haft rjúpu, hreindýr, önd og fleira.
Meðlætið er örlítið hefðbundn-
ara, til að mynda er Waldorf-salat-
ið ómissandi, ofnbakað rótargræn-
meti með hlynsírópi og rósmarín og
rósmarínsteiktar gulrætur. Eftir-
rétturinn er einnig hefðbundinn,
sérstaklega rjómalagaður Ris a la
mande, með volgri berjasósu og fær
heppinn möndluhafi fallega gjöf frá
jólasveininum, yfirleitt skemmti-
legt, nýtt spil sem öll fjölskyldan
getur glaðst við að spila saman um
jólin. Eini fasti liðurinn er þó soðinn
lax með rjómalagaðri kokteilsósu
sem Rakel vandist á sínu heimili og
höfum í forrétt, “ segja hjónin.
uppskRiftiR fRá Rakel og aRnaRi
Makkarónur með
súkkulaði
¾ bolli sykur
2,5 bollar fínt kókosmjöl
3 stórar eggjahvítur
250 grömm gróft saxað 70% Amedei
súkkulaði
1 tsk. vanilludropar
smávegis sjávarsalt
Hitið ofn í 175°C (blástur – snúið plötunni
við þegar kökurnar eru hálfbakaðar ef
ekki er blástursstilling á ofninum). Setjið
bökunarpappír á ofnplötu. Blandið
saman sykri, kókos, eggjahvítum,
súkkulaði, vanillu og salti með höndum
í stórri skál. Blandan á að vera svo
blaut að hún haldist rétt saman (ekki
of þurr, ekki of blaut, eggjahvítum er
fjölgað ef þarf.) Búið til litlar kúlur, u.þ.b.
2 cm í þvermál, með höndunum og
setjið á bökunarpappírinn. Bakað þar til
kúlurnar verða ljósgylltar (15 mín u.þ.b.).
Kökurnar teknar af plötunni og settar
á kökuvír um leið og þær koma úr ofn-
inum. Geymast í nokkra daga í loftþéttu
boxi. Uppskriftin gefur 26-28 kökur.
Biskottur
(ítalskar tvíbökur) með þreföldu súkku-
laði
6 msk. smjör (við stofuhita)
2 bollar hveiti
½ bolli ósætt kakóduft
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. sjávarsalt
1 bolli sykur
1 stórt egg
1 bolli möndlur (gróft saxaðar, mega
vera með eða án hýðis)
1/2 - 1 bolli gróft saxað 70% Amedei
súkkulaði
100 grömm 70% súkkulaði til að hjúpa
kökurnar að hálfu (brætt yfir vatnsbaði)
Hitið ofn í 175°C (blástur – snúið plötunni
við þegar kökurnar eru hálfbakaðar
ef ekki er blástursstilling á ofninum).
Smyrjið og stráið hveiti yfir bökunar-
plötu. Blandið saman hveiti, kakódufti,
matarsóda og salti í skál. Þeytið saman
smjör og sykur í hrærivél þar það til
verður létt og ljóst. Blandið eggjum
við smjörið og sykurinn (þeytið eitt í
einu saman við). Bætið hveitiblöndu út
í – þeytið í stíft deig. Hrærið möndlur og
súkkulaði út í. Setjið deigið á bökunar-
plötuna (mótið brauðhleif úr því, u.þ.b.
36 X 10 cm, nokkuð flatan). Bakið þar
til hleifurinn er nokkuð stinnur, um 25
mín. Takið hleifinn út og látið kólna í 5
mín. Lækkið ofnhitann í 150°C. Notið
beittan hníf og skerið deigið í 2,5 cm
þykkar sneiðar. Leggið kökusneiðarnar
á bökunarpappír á bökunarplötu. Bakið
þar til kökurnar eru stökkar en þó örlítið
mjúkar í miðjunni, u.þ.b. 8 mín. Látið
kökurnar kólna.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og
stingið öðrum endanum á hverri köku
ofan í súkkulaðið þannig að annar
endinn verði hjúpaður súkkulaði. Látið
kólna á smjörpappír.
Gómsætur súkkulaði-
eggjapúns með chili
(fyrir 12 manns)
2 l nýmjólk (lífræn, ófitusprengd frá
Biobú best)
1 og ¾ bollar sykur
½ tsk. sjávarsalt
1 vanillustöng
4 kanilstangir
12 eggjarauður (landnámshænuegg eða
brúnegg best)
150 grömm 70% Amedei súkkulaði,
brætt
80 grömm Amedei mjólkursúkkulaði,
brætt
2 bollar rjómi (sveitarjómi eða lífrænn
rjómi bestir)
1 bolli koníak (ef vill)
smávegis múskathneta rifin, til skrauts
og bragðauka
rauður chilipipar (saxaður smátt, án
fræja)
Hitið mjólk, sykur og salt með vanillu-
stöng og kanilstöngum í stórum potti
yfir meðalhita, hrærið þar til sykurinn
er bráðnaður og blandan er heit í gegn.
Takið af hita og látið standa í hálfa klst.
Þeytið eggjarauðurnar í skál þar til þær
verða ljósar og léttar, um 2 mín. Þeytið
1 bolla af mjólkurblöndunni saman við
(látið mjólkurblönduna renna saman við
í mjórri bunu meðan þeytt er). Þeytið
afganginn af eggjablöndunni saman við
afganginn af mjólkurblöndunni. Hitið
í potti yfir meðalhita, hrærið stöðugt
í, um 6 mín. (gætið þess að ekki komi
upp suða). Takið pottinn af hita. Bætið
70% og mjólkursúkkulaði í blönduna
og hrærið þar til súkkulaðið hefur allt
bráðnað. Takið vanillu og kanilstangir úr
blöndunni. Setjið blönduna í stóra skál
í ísbaði (ískalt vatn í enn stærri
skál undir) og látið kólna,
hrærið oft í á meðan
blandan kólnar.
Léttþeytið rjómann.
Hellið kældri
eggjapúnsblönd-
unni í stóra, fallega
skál, og bætið við
koníaki ef vill. Ef
blandan er þykk
má bæta mjólk út
í til að þynna
hana. Setjið
þeytta
rjómann
ofan á
og rifna
múskat-
hnetu og
fínt sax-
aðan chili
þar ofan
á. Berið
strax fram
mmmmm…