Fréttatíminn - 25.11.2011, Page 66
32 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
J órunn, sem rak dúka- og sængurveraverslun á horninu á Skólavörðustíg
og Njálsgötu, gaf mér fyrsta gler-
fuglinn minn þegar ég var barn. Þá
var ég að bera út Morgunblaðið og
Dagblaðið. Þetta varð kveikjan að
því að ég tók við að safna þessum
fuglum. Ég reyndi að eignast einn
nýjan árlega, en þeir voru fátíðir
á þessum tíma og ekki alltaf fáan-
legir,“ segir Stella Sigurgeirsdóttir
myndlistarkona sem hefur gamalt
íslenskt jólatré á stofuborðinu,
skreytt fuglum, perlum og kertum.
„Jóhann maðurinn minn kom
með þetta tré í búið, svo það má
segja að það sameini okkur en því
tengjast margar minningar og var
eina jólatré okkar fyrstu búskapar-
árin.“
Stella býr í gömlu fallegu húsi í
Litla-Skerjagarðinum og jólaskraut
liðinna tíma virðist eiga þar vel
við. Stella, sem er mikilll safnari,
dregur jólaskrautið smám saman
fram yfir aðventuna og hverjum
einasta hlut fylgir saga, þar á
meðal babúskujólasveininum sem
stendur í glugga undir tveimur
jólastjörnum.
„Þessi hefur ætíð vakið mikla
Jólaskrautið
Maðurinn minn kom með þetta tré í búið
svo það má segja að það sameini okkur;
því tengjast margar minningar og það var
okkar eina jólatré fyrstu búskaparárin.
Fyrsti glerfuglinn frá Jórunni
Á heimili Stellu Sigurgeirsdóttur myndlistarkonu er að finna heilmikið af fallegu
jólaskrauti sem hvert um sig segir sína sögu.
lukku, sérstaklega hjá börnum.
Það er svo gaman að taka hann í
sundur og segja má margar sögur
með honum og af.“
Salka Þorgerður, 4 ára dóttir
Stellu, er farin að átta sig betur
á jólunum og fyllist kæti þegar
mamma hennar dregur upp
skrautið. „Hún vildi náttúrulega fá
allt skrautið upp undireins,” segir
Stella brosandi á meðan Salka
hrærir í jólagrautnum á leikfanga-
ferðaeldavél sem mamma hennar
býr til og framleiðir undir vöru-
heitinu Slowstars.
„Sjálf er ég mikið jólabarn, geri
mikið úr aðventunni og bý mikið
til. Stundum geri ég jóladagatöl úr
gömlum eldspýtustokkum, það er
svo einfalt og skemmtilegt og eng-
inn þörf á að vera búin að fylla á
allt 1.desember, heldur geta hlutir
bara birst þegar á líður. Mestu
skiptir þó að skreyta með ljósum
og hafa það notalegt með góðu
fólki á þessum dimmasta tíma
ársins. Ég reyni til dæmis alltaf að
búa til sörur og borða þær fyrir jól
og ég bý alltaf til jólakort.“
Aðventuna þessi jólin mun Stella
þó að miklu leyti eyða í jógastell-
ingum, þar sem hún og Eva Rún
Þorgeirsdóttir munu kynna bók
þeirra, Auður og gamla tréð, þar
sem börnum er kennt jóga í gegn-
um fallega sögu. „Já, við verðum
um allan bæ með upplestur og
fáum krakkana til að leika dýr og
gera jógastellingar með okkur.“
Salka 4 ára eldar jólagrautinn á ferðaeldavélinni sem mamma hennar bjó til.
kristín Eva
Þórhallsdóttir
heimili@frettatiminn.is
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar