Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Page 73

Fréttatíminn - 25.11.2011, Page 73
allir eru löngu hættir í pólitík. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sá framliðnum bregða fyrir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Eðlilega kannski þar sem litli bróðir hans er formaður Sálarrannsóknarfélagsins. Organistinn 0 stig Nágrannarnir urðu margir hverjur alveg brjálaðir og það rigndi yfir okkur kvörtunum. Einn hótaði að flytja endanlega úr hverfinu ef þessu linnti ekki. Hörður Áskelsson, organisti í Hallgrímskirkju, stuðaði nágranna kirkjunnar á Skólavörðuholti þegar hann lék Eurovisionstefið á kirkjuklukkurnar svo undir tók í hverfinu. Í bullandi mínus Gott og vel, ég er búinn að tapa öllum peningunum mínum en sem ég hef meiri áhyggjur af er að lánið hækkar bara og hækkar og hækkar. Útvarpsmaðurinn Frosti Logason, oftast kenndur við hljómsveitina Mínus, og vilja menn nú meina að hann beri nú sannarlega viðurnefnið Frosti í Mínus með rentu, steig fram í vikunni og vakti athygli á vonlausri stöðu sinni sem lántaka sem stendur 110 prósenta leiðin ekki til boða. Já en Ólafur er svo frábær Ég er viss um að Ragna Árnadóttir yrði fínn forseti. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, virðist vera orðinn jafn leiður á Ólafi Ragnari Grímssyni og Jóhanna Sigurðardóttir og hefur fundið arftaka. Takk, nú sofum við miklu betur! Byssubardaginn í Bryggjuhverfi er ekki með mínu samþykki. Ef ég hefði stjórnað þessu hefði þetta aldrei farið svona því ég er alfarið á móti því að almenningi sé stefnt í hættu. Ríkharður Ríkharðsson, forseti mótorhjólaklúbbsins Outlaws, hafnar aðild skjaldsveina sinna að skotárás í Bryggjuhverfinu.  Vikan sem Var viðhorf 37Helgin 25.-27. nóvember 2011 Ó, hve ljúft er að kaupa... Ég hefði viljað kaupa meira en var búin að kaupa svo mikið að ég varð að stoppa. Ég bíð bara spennt eftir því að kíkja aftur. Ágústa Alda Traustadóttir, fastakúnni í Lindex, réði sér ekki fyrir innkaupakæti í samtali við DV. Þeirra peningar eru betri Það er góðra gjalda vert ef RÚV er hætt að birta þann ósmekklega áróður sem LÍÚ hefur ausið yfir landsmenn, en það er umhugsunarefni að það skuli ekki gerast fyrr en óbreyttir borgarar vilja fá að svara í sömu mynt. Einar Steingrímsson, stærðfræðingur, fór í lítið einkastríð við Ríkisútvarpið sem tók ekki í mál að birta auglýsingu frá honum sem „borgara“ sem andsvar við auglýsingum LÍÚ sem hafa ómað í útvarpi allra landsmanna. Þeir síðustu munu fyrstir verða Hún haslar sér völl sem raunverulegur keppandi um formannsstólinn og stimplar sig rækilega inn í forystusveit flokksins. Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur, útskýrir hvernig Hanna Birna Kristjánsdóttir vann sigur með því að tapa fyrir Bjarna Benediktssyni í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins. Draugagangur í Höllinni Eitt var það að út á við að minnsta kosti voru aðalmennirnir á þessum fundi grafnir upp úr pólitískum katakombum, menn einsog Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Sturla Böðvarsson, Björn Bjarnason og Friðrik Sophusson, sem KlassísKt meistaraverK Myndskreytt útgáfa með öllum þekktustu sögunum úr hinu mikla safni gríska sagnaþularins Esóps. Frábærlega skemmtilegar sögur sem gleðja og þroska í senn. Klassískt meistaraverk fyrir börn á öllum aldri. Dæmisögur Esóps SKRUDDA Gott verð ... HRING- borðstofusett Kirsuberjavið ur, þvermál 1 50 cm, og 8 stólar: 2 75.000 kr. Sjá: listinn.is /husgogn.ht m LED lýsing Loftljós, la mpar og sjál f- límandi dí óðuljósborð ar Sjá: listinn .is/lysing.htm BILTURA hægindastóll Leður hæg indastóll á snúnings fæti: 75.000 kr. Sjá: listinn .is/husgogn .htm SKRAUT- LISTAR Mikið úrva l, gott verð. Sjá: listinn.i s/skrautlistar. htm GÓLF- LISTAR Okkar sérg rein, gott úrv al, sérsmíðum eftir málum . ÚTSALA-ÚT SALA: Maghony gó lflistar 350 kr. mete rinn LISTINN Akral ind 7 • 201 Kópavogi • S: 564-4666 • www.l ist inn.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.