Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 73
allir eru löngu hættir í pólitík.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra,
sá framliðnum bregða fyrir á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins. Eðlilega kannski
þar sem litli bróðir hans er formaður
Sálarrannsóknarfélagsins.
Organistinn 0 stig
Nágrannarnir urðu margir hverjur
alveg brjálaðir og það rigndi yfir okkur
kvörtunum. Einn hótaði að flytja
endanlega úr hverfinu ef þessu linnti ekki.
Hörður Áskelsson, organisti í
Hallgrímskirkju, stuðaði nágranna
kirkjunnar á Skólavörðuholti þegar hann
lék Eurovisionstefið á kirkjuklukkurnar
svo undir tók í hverfinu.
Í bullandi mínus
Gott og vel, ég er búinn að tapa öllum
peningunum mínum en sem ég hef meiri
áhyggjur af er að lánið hækkar bara og
hækkar og hækkar.
Útvarpsmaðurinn Frosti Logason, oftast
kenndur við hljómsveitina Mínus, og
vilja menn nú meina að hann beri nú
sannarlega viðurnefnið Frosti í Mínus
með rentu, steig fram í vikunni og vakti
athygli á vonlausri stöðu sinni sem
lántaka sem stendur 110 prósenta leiðin
ekki til boða.
Já en Ólafur er svo frábær
Ég er viss um að Ragna
Árnadóttir yrði fínn
forseti.
Hrannar B. Arnarsson,
aðstoðarmaður
forsætisráðherra, virðist
vera orðinn jafn leiður
á Ólafi Ragnari Grímssyni og Jóhanna
Sigurðardóttir og hefur fundið arftaka.
Takk, nú sofum við
miklu betur!
Byssubardaginn í
Bryggjuhverfi er ekki með
mínu samþykki. Ef ég hefði
stjórnað þessu hefði þetta
aldrei farið svona því ég
er alfarið á móti því að
almenningi sé stefnt í hættu.
Ríkharður Ríkharðsson, forseti
mótorhjólaklúbbsins Outlaws,
hafnar aðild skjaldsveina sinna
að skotárás í Bryggjuhverfinu.
Vikan sem Var
viðhorf 37Helgin 25.-27. nóvember 2011
Ó, hve ljúft er að kaupa...
Ég hefði viljað kaupa meira en var
búin að kaupa svo mikið að ég varð að
stoppa. Ég bíð bara spennt eftir því að
kíkja aftur.
Ágústa Alda Traustadóttir, fastakúnni í
Lindex, réði sér ekki fyrir innkaupakæti í
samtali við DV.
Þeirra peningar eru betri
Það er góðra gjalda vert ef RÚV er hætt
að birta þann ósmekklega áróður sem
LÍÚ hefur ausið yfir landsmenn, en það
er umhugsunarefni að það skuli ekki
gerast fyrr en óbreyttir borgarar vilja fá
að svara í sömu mynt.
Einar Steingrímsson, stærðfræðingur,
fór í lítið einkastríð við Ríkisútvarpið
sem tók ekki í mál að birta auglýsingu
frá honum sem „borgara“ sem andsvar
við auglýsingum LÍÚ sem hafa ómað í
útvarpi allra landsmanna.
Þeir síðustu munu
fyrstir verða
Hún haslar sér völl sem
raunverulegur keppandi
um formannsstólinn og
stimplar sig rækilega
inn í forystusveit
flokksins.
Birgir Guðmundsson,
stjórnmálafræðingur, útskýrir hvernig
Hanna Birna Kristjánsdóttir vann
sigur með því að tapa fyrir Bjarna
Benediktssyni í formannskjöri
Sjálfstæðisflokksins.
Draugagangur í Höllinni
Eitt var það að út á við að minnsta kosti
voru aðalmennirnir á þessum fundi
grafnir upp úr pólitískum katakombum,
menn einsog Davíð Oddsson, Geir
H. Haarde, Sturla Böðvarsson, Björn
Bjarnason og Friðrik Sophusson, sem
KlassísKt meistaraverK
Myndskreytt útgáfa með öllum þekktustu sögunum
úr hinu mikla safni gríska sagnaþularins Esóps.
Frábærlega skemmtilegar sögur sem gleðja og þroska í senn.
Klassískt meistaraverk fyrir börn á öllum aldri.
Dæmisögur Esóps
SKRUDDA
Gott verð ...
HRING-
borðstofusett
Kirsuberjavið
ur, þvermál 1
50 cm,
og 8 stólar: 2
75.000 kr.
Sjá: listinn.is
/husgogn.ht
m
LED lýsing
Loftljós, la
mpar og sjál
f-
límandi dí
óðuljósborð
ar
Sjá: listinn
.is/lysing.htm
BILTURA
hægindastóll
Leður hæg
indastóll
á snúnings
fæti: 75.000
kr.
Sjá: listinn
.is/husgogn
.htm
SKRAUT-
LISTAR
Mikið úrva
l, gott verð.
Sjá: listinn.i
s/skrautlistar.
htm
GÓLF-
LISTAR
Okkar sérg
rein, gott úrv
al,
sérsmíðum
eftir málum
.
ÚTSALA-ÚT
SALA:
Maghony gó
lflistar
350 kr. mete
rinn
LISTINN
Akral ind 7 • 201 Kópavogi • S: 564-4666 • www.l ist inn.is