Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 76

Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 76
Ábyrgð á heimilishaldi, innkaupum stórum og smáum og öllu sem slíku fylgir hefur í áranna rás fremur hvílt á mínum betri helmingi en mér. Þó reyni ég af fremsta megni af taka þátt, fara með í búðir og taka afstöðu þegar um er beðið. Stundum hef ég enga skoðun en fyrir kemur að ég beiti frestandi neitunarvaldi, humma hlutina fram af mér. Þetta þýðir auðvitað að meira er á konuna lagt en mig. Ég fer í humáttina þegar hún skoðar og semur. Sjaldgæft er að ég setji mig upp á móti ákvörðun hennar enda hefur hún ágætan smekk fyrir okkur bæði. Þess vegna er leitun að hlut á heimilinu sem ég hef valið eða haft frumkvæði að kaupum. Auðveldara er þó fyrir hana að eiga viðskiptin ef mér líst vel á þau – sem er, sem betur fer, yfirleitt raunin. Stundum vel ég að bíða úti í bíl meðan konan skreppur í verslun, ef mat mitt er það að ég hafi ekkert fram að færa. Þá finn ég mér það til afsökunar að þurfa að leggja betur eða megi ekki missa af fréttum í útvarpinu. Hún þarf því að ýmsu að hyggja og stundum að hafa hraðann á. Það hefur því komið fyrir að sú góða kona hefur verið nokkuð annars hugar þegar út úr búðinni er komið. Annað hvort man hún ekki hvar ég stoppaði eða veit það ekki, hafi ég lagt bílnum eftir að hún fór inn. Þótt hún sé af ættum frumkvöðla og athafnaskálda í reksti og þjónustu bifreiða er hún ekki að setja sérstaklega á sig smáatriði í útliti heimilisbíla okkar. Veit svona nokkurn veginn hvernig þeir líta út og hver litur þeirra er. Það hefur því komið fyrir, oftar en einu sinni, að hún hefur gert tilraun til að komast inn í svipaða bíla eða að minnsta kosti gengið að þeim áður en hún áttar sig á því að ekki er um bílinn okkar að ræða. Stöku sinnum hefur hún undið sér út og sest formálalaust í farþegasæti bíls, svipaðs útlits og okkar, og lítt skilið af hverju eiginmaðurinn rekur ekki í gírinn og ekur af stað – þar til hún lítur á við- komandi ökumann og sér að það er alls ekki sá sem hún hét eilífðartryggð við alt- arið á sínum tíma. Hún hefur þá kvatt við- komandi snarlega, mann sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, og fundið réttan kall og bíl í næsta eða þarnæsta stæði. Svipað á við í venjulegri matvöruversl- un við helgarinnkaup. Þar lendir það frekar á henni, eins og annað, að velja mat og það sem til heimilisrekstrar þarf. Ég er frekar í hlutverki kerrustjóra, ýti slíku hjólatóli á eftir henni svo hún geti lagt þar það sem valið er. Komi það fyrir að ég gleymi mér og fylgi ekki nægilega vel í fótspor konunnar, eða hverfi í annan hugarheim til að stytta Bónustímann, hendir það stöku sinnum að frúin raðar ómeðvitað vörunum í körfu hjá öðrum kalli sem ráfar á eftir annarri konu, við- líka meðvitundarlítill. Það er ekki fyrr en kona þess manns áttar sig á því að tvær eru að fylla sömu körfu að gripið er til skyndiaðgerða, kallarnir vaktir af draum- Kerrumenn í kæli Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Á Te ik ni ng /H ar i VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. WWW.SENA.IS/JACKANDJILL FULLT AF VINNINGUM: BÍÓMIÐAR TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA! SENDU SMS SKEYTIÐ ESL JAJ Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! 9. HVER VINNUR! FJÖLDI AUKAVINNINGA VILTU VINNA MIÐA? Staðreyndir um kosti og galla háspennuloftlína og jarðstrengja, stefnumótun erlendis og umfjöllun hér heima. Kynntu þér málið á www.landsnet.is/linurogstrengir Upplýsingavefur um loftlínur og jarðstrengi 40 viðhorf Helgin 25.-27. nóvember 2011
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.