Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 82

Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 82
46 matur og drykkur Helgin 25.-27. nóvember 2011 Vetrarost- arnir eru bragðmiklir með ákveð- ið bragð sem kallast á við þann mat sem við erum að borða á þessum árstíma.“ Dalahringur er nýr og bragðmildur hvítmygluostur. Lögun ostsins gerir það að verkum að hann þroskast hraðar en aðrir sambærilegir mygluostar á markaðnum. Gríptu með þér Dalahring í næstu verslun. Fallegt og fræðandi! Með myndum og nöfnum á yfir 200 ávaxta-, græmetis- og kryddtegundum, baunum, hnetum og berjum – bæði vel þekktum og framandi. Skemmtilegt að skoða fyrir unga sem aldna. Eldhúsdagatalið 2012 Pantanir og nánari upplýsingar á www.jola.is MATSEÐILL LEIKHÚS- Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is Fo r r é t t u r Aða l r é t t i r Laxatvenna – reyktur og grafinn lax Bleikja & humar með hollandaise sósu E f t i r r é t t u r Þriggja rétta máltíð á 4.900 kr. Jack Daniel’s súkkulaðikaka Djúpsteiktur ís og súkkulaði- hjúpuð jarðarber Brasserað fennell, kartöflu- stappa og ostrusveppir eða... Grillað Lambafille Með rófutvennu, sveppakartöflum og bláberja anís kjötsósu J ólakonfektið þarf ekki að vera úr súkkulaði eins og Eirný Sigurðar-dóttir hjá Búrinu í Nóatúni sýnir og sannar þar sem hún er með stútfulla verslun af ostakonfekti, eins og hún kallar alla þá sérpöntuðu osta sem Búrið hefur að geyma. „Sennilega hef ég aldrei haft jafn- mikið af sérpöntuðum ostum í versluninni og núna þessi jól,“ segir Eirný. Víkur þá talinu að hlutverki osta í jólahefðinni. „Það er ákveðnir ostar sem haldast í hendur við jólahefðina í mismunandi löndum, eins og til dæmis Stillton í Englandi og hefur hann nánast verið órjúfanlegur þáttur af minni jólahefð. Þó er aldrei að vita nema mig langi í eitthvað allt annað í ár.“ En hvað skal hafa á borðum? „Á þessum árstíma erum við með opið hús, við erum búin að prýða heimili okkar og gjarnan er gestkvæmt og við viljum geta boðið upp á eitthvað gott. Hefðbundið er að hafa smákökur og flatkökur á borðum, en osturinn á einnig vel við. Þá er hægt að velja góðan ostbita og láta hann standa undir fallegum kúpli og þar getur hann verið allan daginn. Með honum er tilvalið að hafa góðar hnetur og jafnvel þurrkaða ávexti. En hneturnar henta sérstaklega vel með ostunum því þær ýta undir þann hnetukeim sem finnst í ostinum,“ segir Eirný og viðurkennir að sjálf sé hún mikil hnetukerling og finnist þær eiga sérstak- lega vel við á jólunum. „Ég elska hnetur með ostinum, og ef maður er kunnugur hnetunum sínum nær maður rétta hnetu- tóninum fram.“ Hvaða ostar eiga vel við á jólunum? „Vetrarostarnir eru bragðmiklir með ákveðið bragð sem kallast á við þann mat sem við erum að borða á þessum árs- tíma. Reyktir ostar tóna vel við reykta kjötið og gráðostarnir eru góðir í sósuna með rjúpunni. Rjómakenndu brie-ostarnir týnast hinsvegar örlítið með öllum þessum bragðsterka mat, þó brie sé að sjálfsögðu alltaf góður. Svo er geitaosturinn skemmti- legur kostur og nú þegar fólk er að gera hlutina sjálft og jafnvel reykja sitt eigið kjöt er hann kjörinn inn í rúllur af heimareyktu kjöti.“ Annars segir Eirný að fólk þurfi að hugsa aðeins hvert tilefnið sé. Á osturinn að standa á borði fyrir gesti og gangandi eða standa á jólahlaðborðið með hangi- kjötinu? „Við hér í Búrinu tökum vel á móti fólki og ráðleggjum því hvaða ostar eiga við hverju sinni.“ Jólaostarnir streyma nú að og Búrið er að fyllast af góðgæti. Þann 10. desember ætlar Eirný svo að láta gamlan draum rætast og halda jólamarkað. Hann verður haldinn hér í Nótatúni milli klukkan 12 og 16 á Terra madre deginum í samstarfi við Beint frá býli og Slowfood.“ Þar verður heilmikið af góðgæti á borðum, nautakjöt, ostar, hrökkkex og ýmislegt fleira.“ En er ekki hætt við að borða yfir sig af öllu þessu góðgæti? „Maður á ekki að borða of mikið. Nautnin er fólgin í því að fá sér einn lítinn mola og leyfa bragðinu að byggjast upp,“ segir Eirný. Leyfum bragðinu að byggjast upp Um jólin tekur fólk á móti gestum og gangandi, hefur prýtt híbýli sín og vill bjóða upp á eitthvað gott. Ef ostar verða fyrir valinu, hefur Eirný Sigurðardóttir í Búrinu ráð undir rifi hverju.  oStakonfEkt Jólaostabakki með ítölskum Gorgonzola, Appenzeller frá Sviss, og franskur Brie Maxim. Bakki sem er kjörinn til að bera fram eftir kvöldmat, þegar líður á aðfangadagskvöld eða gamlárskvöld.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.