Fréttatíminn - 25.11.2011, Page 98
Plötudómar dr. gunna
mesópótamía
Sykur
Í fremstu röð
Hljómsveitin Sykur mætir
reffileg og örugg til leiks
á annarri plötu sinni
með sprellfjöruga og
skemmtilega nýja söng-
konu sem heitir Agnes
Björt Andradóttir. Hún er
góð bæði sem sexí-díva
og sakleysis-popprödd
og brestur í fimmta
gír með mótor-munn
þegar síst varir. Sykur
er poppað syntaband,
stílhreint og eitís og meira
eins og Sonus Futurae,
OMD og Human League
en Bloodgroup og FM
Belfast. Hér kunna menn
til verka og búa til dúndur
grípandi popp. Messy Hair,
Reykjavík og Shed Those
Tears hljóta að bruna upp
alla hugsanlega lista á
næstunni. Restin er gæða
„albúm trakks“, Curling
og 7 AM eru til dæmis
snilldar-gáfumannapopp
með bleika þverslaufu.
Það er opinbert: Sykur er
kominn í fremstu röð!
Þú ert ekki sá sem ég
valdi
Gímaldin & félagar
Sjúskað og
spennandi
Gímaldin (Gísli Magnús-
son) hefur sett saman
kombó til að flytja lögin 14
á þessari plötu. Kombóið
er losaralega ferskt
og skröltir á gíturum,
trommum og allskonar
hljóðáleggi af sjúskuðu
öruggi. Gísli syngur ekki
ósvipað og Megas pabbi
sinn svo platan hljómar
dálítið eins og Megas að
fronta þjóðlagaproggút-
gáfuna af The Fall. Mörg
frábær lög má hér finna og
nokkur ekki eins frábær.
Sum fara troðninga og
skipta um stefnu á miðri
leið – önnur eru hefð-
bundnari – og sílspikaðir
textarnir ýta undir hina
listrænu leikgleði. Um-
slagið er hins vegar frekar
glatað og vonlaust að
lesa textana. Þeir eru þó
á heimasíðu Gimaldin svo
maður reddar sér. Þetta er
spennandi plata sem vex
með hverri hlustun.
land míns föður
Einar Scheving
Eldgamla
Ísafold
Þetta er sálumessa
Einars til heiðurs pabba
sínum, Árna Scheving
tónlistarmanni. Um leið er
platan óður til Eldgömlu
Ísafoldar, hins dásamlega
Íslands, sem margir sjá í
hillingum þegar þeir dvelja
í útlöndum. Við erum að
tala um Ísland fortíðar-
innar sem finna má fyrir
í gegnum svart/hvítar
ljósmyndir og ævagamlar
vögguvísur og þjóðlög.
Einar og meðreiðarsveinar
úr úrvalsdeild spinna til
skiptis í kringum gamla
stöffið og spila frum-
samin lög Einars við ljóð
þjóðskáldanna, sem fólk
eins og KK, Ragnheiður
Gröndal og sjálfur Raggi
Bjarna syngja. Þetta
passar gríðarvel saman
og útkoman er angurvær
og seiðmögnuð. Flottar og
vandaðar umbúðir ramma
svo inn hinn gullfallega
pakka.
E f fólk missir atvinnu sína er hætt við því að það einangr-ist og hætti að umgangast
aðra. Við því hefur verið brugðist
á ýmsan hátt og ein skemmtileg
aðferð er að haldin hafa verið söng-
námskeið fyrir atvinnuleitendur
hjá Hlutverkasetrinu í samvinnu
við söngskólann Domus Vox.
Það er söngleikjastjarnan
Maríus Sverrisson sem æfir kór-
ana, en hann hefur verið búsettur
í útlöndum í sautján ár og komið
fram víða um Evrópu og í Banda-
ríkjunum.
„Ég hef dvalið hér heima síðasta
árið og elska að vera hér,“ segir
Maríus. „Mér finnst stórkostleg
hugmynd að bjóða upp á þessi
söngnámskeið. Við höfum verið
með fjörutíu manna kóra – svo fær
alltaf einn og einn atvinnu og það
getur bæði fengið mig til að brosa
og tárast: Gott að fólk fái vinnu
en ekki gott fyrir kórinn að missa
frábæra rödd!“
Maríus segir kóranámskeiðin
hafa gert mjög mikið fyrir fólk í
atvinnuleit. „Þetta eykur sjálfs-
traust þeirra, hjálpar þeim að
mynda ný tengsl, lyftir anda og
sál og hvetur fólk til að fara út í
lífið. Söngur er svo heillandi. Við
höfum verið með blandað tónlist-
arprógramm og fæstir þeirra sem
komið hafa á námskeiðin hafa áður
sungið með kór. Þetta er annað
námskeiðið okkar og ef þátttakan
verður áfram svona góð verðum
við með námskeið eftir áramótin.
Í dag, föstudag, ljúkum við nám-
skeiðinu með litlum stofutónleik-
um í Domus Vox að Laugavegi 114
klukkan 18.“
Maríus fyllti fyrir skemmstu
tvívegis Café Rósenberg, þar sem
hann flutti djass- og söngleikja-
tónlist ásamt Agnari Má Magn-
ússyni píanista og fleiri tónlistar-
mönnum. Og hann er ekki alveg
hættur: „,Nei, ég mun syngja á
aðventutónleikum Domus Vox, sem
haldnir verða í Hallgrímskirkju 14.
desember,“ segir hann. „Ég er svo
mikið jólabarn að ég fer nú ekki að
láta mig hverfa frá landinu mínu
svona rétt fyrir jólin!“ -AKM
Söngur lyftir
anda og sál at-
vinnuleitenda
Fólk í atvinnuleit hefur sungið saman á námskeiði Hlutverkaset-
urs í samvinnu við söngskólann Domus Vox.
tónlEikar maríus svErrisson stýrir kór og syngur
Maríus Sverrisson kórstjóri og söngvari er fluttur
heim eftir sautján ára veru í útlöndum. Ljósmynd/Hari
Kjóll Pippu
fáanlegur
Tískuvefsíðan Net-a-
Porter hefur hafið sölu á
samskonar brúðar-
meyjarkjól og Pippa
Middleton klæddist við brúðkaup
systur sinnar síðastliðin maí þegar
Vilhjálmur Bretaprins gekk að eiga
Kate Middleton. Pippa vakti óskipta
athygli þá og hefur kjóllinn rokið út.
Upphaflegi kjóllinn kemur frá tísku-
húsinu Alexander McQueen en eftir-
líkingarnar vitaskuld annarstaðar frá
og eru mun ódýrari en við mátti búast.
Aðstandendur síðunnar sjá fram á að
kjóllinn muni seljast upp á skömmum
tíma og hvetja konur til að fjárfesta í
draumakjólnum sem fyrst. -kp
Jeffrey Campbell
fyrir stráka
Skófyrirtækið Jeffrey Campbell, sem
hefur verið svo vinsælt meðal stelpna
hér á landi síðustu mánuði, tilkynnti á
miðvikudaginn síðasta að skólína fyrir
karlmenn sé væntanleg í næsta mán-
uði. Línan mun heita The Damned og
hefur fyrirtækið þegar kynnt nokkur
pör. Þau eru litrík, öðruvísi og fjöl-
breytileg og þeir sem til þekkja sjá að
innblástur er fenginn frá eldri hönnun
á skóm fyrirtækisins. -kp
LYON BONN
VERONA PARÍS
PISA TORINO
RÍN MILANO
OSLO BASEL
VALENCIA VÍN
ROMA ASPEN
BOSTON DELUX
BONN NICE
RÍN DELUX
90tegundirsófa!þér
Veldu
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Mismunandi útfærslur og áklæði
hafa áhrif á endanlegt verð.
1. Veldu GeRÐ oG lenGd - 90 ÚTFÆRSluR í boÐi
2. Veldu áklÆÐi oG liT / Tau eÐa leÐuR.
YFiR 2300 miSmunandi áklÆÐi oG liTiR í boÐi
3. Veldu aRma - 6 GeRÐiR í boÐi
4. Veldu FÆTuR - TRé, jáRn, kRÓm o.Fl.
Patti verslun er húsgagnaverslun með 30 ára reynslu
að baki á eigin framleiðslu á sófum, sófasettum,
hornsófum og tungusófum nákvæmlega eftir máli og
óskum hvers og eins.
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Be
tr
i S
to
fa
n
H Ú S G Ö G N
basel
nice Torino dallas
Valencia Vín aspen basel París lux
boston
Torino
30ár
a
REY
NSL
A
VERÐDÆMI - TORINO SÓFI
2 SÆTI + 2 TUNGUR kR. 368.850
2 SÆTI + TUNGA 245.900
2 SÆTI + HORN +2 SÆTI kR. 317.900
Gæðií gegn
Leitið upplýsing á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
F éttatímanum er dreift á heimili á
höfuðborgar-svæðinu og Akureyri og í lausa-
d eifingu um allt land. Dreifing á bæklingum
og fylgiblöðum með Fréttatímanum er
hagkvæmur kostur.
62 dægurmál Helgin 25.-27. nóvember 2011