Fréttatíminn - 11.03.2011, Side 2
Er þinn
auður í góðum
höndum?
Okkar viðskiptavinir velja
óháðan aðila sem hefur skynsemi
og áhættumeðvitund að leiðarljósi.
Komdu með séreignarsparnaðinn
til Auðar.
Borgartúni 29
S. 585 6500
www.audur.is
É g get staðfest það að tilboði frá okkur var hafnað. Annars tjái ég mig ekki um þetta mál,“ segir Rakel Sveins-
dóttir hjá Creditinfo Group, spurð um tilboð
sem félagið gerði í Capacent í síðasta mánuði.
Heimildir Fréttatímans herma að tilboðið hafi
hljóðað upp á tæpar þrjú hundruð milljónir
eða tífalt hærri upphæð en starfsmennirnir
fyrrverandi borguðu fyrir rekstur Capacents
fyrir nokkrum mánuðum, rétt áður en félagið
fór á hausinn undir nafninu GH1 ehf. Starfs-
mennirnir borguðu þrjátíu milljónir fyrir
reksturinn og skildu skuldir upp á hundruð
miljóna eftir í hinu gjaldþrota félagi.
Guðrún Helga Brynleifsdóttir, skipta-
stjóri þrotabús GH1 ehf., hefur farið fram á
lögbann á notkun nafnsins Capacent og er
það mál fyrir dómstólum eftir að sýslumað-
urinn í Reykjavík hafnaði lögbannsbeiðn-
inni. Jafnframt hefur Guðrún Helga krafist
innsetningar á eignum félagsins fyrir dómi.
Fréttablaðið greindi jafnframt frá því í síðustu
viku að hún vildi lögreglurannsókn á kaup-
unum síðastliðið haust.
Guðrún Helga segir í samtali við Fréttatím-
ann að hún muni krefjast riftunar á kaupum
fyrrverandi starfsmanna á rekstri Capacents
fyrir dómi um leið og þau tvö mál, sem nú eru
til umfjöllunar hjá dómstólum, eru til lykta
leitt. Hún telur kaupverðið alltof lágt enda
segist hún vera studd af tveimur kauptilboð-
um sem séu margfalt hærri og áþekk að upp-
hæðum. Hún vill þó ekki gefa upp nöfn þeirra
sem lagt hafa fram tilboð né heldur upphæðir.
Eins og áður sagði er Creditinfo með annað
tilboðið og eftir því sem Fréttatíminn kemst
næst er hitt tilboðið frá tveimur fyrrverandi
framkvæmdastjórum Íslandsbanka sem er
stærsti kröfuhafinn í þrotabú GH1. Það tilboð
er í þrotabúið sjálft og getur Guðrún Helga
því ekki tekið afstöðu til þess fyrr en til þess
kemur að búið vinni riftunarmál gegn starfs-
mönnunum fyrrverandi.
oskar@frettatiminn.is
Tífalt hærra tilboði
í Capacent hafnað
Fyrrum starfsmenn Capacent, sem keyptu rekstur félagsins síðastliðið haust á umdeildan hátt, rétt
áður en það fór í gjaldþrot, höfnuðu tilboði í félagið frá Creditinfo. Skiptastjóri þrotabúsins vill rifta
kaupunum og hefur farið fram á lögbann á notkun nafnsins Capacent.
viðskipti
Kaup fyrrverandi starfsmanna Capacents á rekstri félagsins eru meira en lítið umdeild.
Hún telur
kaupverðið
alltof lágt
enda segist
hún vera
studd af
tveimur kaup-
tilboðum sem
séu marg-
falt hærri
og áþekk að
upphæðum.
Rakel Sveinsdóttir
hjá Creditinfo
Group segir sitt
fyrirtæki hafa
lagt inn tilboð í
Capacent sem hafi
verið hafnað.
ferðalög Mótorhjólaklúbbar
Mætir í fullum Hells Angels-herklæðum í Leifsstöð
Forsprakki MC Iceland kemur frá Danmörku á föstudag, merktur Hells Angels í bak og fyrir.
Í slenska mótorhjólagengið MC Iceland hefur öðlast inngöngu
í Hells Angels. Búið er að merkja
félagsheimili gengisins í Hafnar-
firði upp á nýtt og að því er Frétta-
tíminn kemst næst hafa meðlimir
MC Iceland dvalið í Danmörku
undanfarna daga þar sem þeir
hafa fengið Hells Angels-merk-
ingar á jakka sína. Stefnan mun
svo vera að þeir gangi í fullum
skrúða undir forystu foringja síns,
Einars „Boom“ Marteinssonar, í
gegnum Leifsstöð í dag, föstudag.
Einar vildi ekki tjá sig um málið,
þegar Fréttatíminn náði tali af
honum í Kaupmannahöfn, að öðru
leyti en því að hann væri staddur
í kóngsins Köben. Lögreglan á
Suðurnesjum mun ekki verða með
sérstakan viðbúnað vegna komu
MC Iceland-manna til landsins.
„Samtökin eru ekki ólögleg þannig
að við aðhöfumst ekki neitt nema
þeir brjóti af sér,“ hljómaði svarið
frá lögrelgunni.
Töluvert var fjallað um það í
fjölmiðlum um síðustu helgi að
norska lögreglan stöðvaði för átta
manna úr MC Iceland á Gardermo-
en-flugvelli við Ósló á föstudaginn
var. Talið var að þeir væru á leið
í vígsluathöfn hjá hinum norska
armi Hells Angels og voru þeir
stoppaðir í flugstöðinni. Þeim var
haldið í einangrun fram á sunnu-
dagskvöld þegar þeir voru sendir
heim til Íslands. Ítarleg fréttaskýr-
ing um meðferð lögreglunnar á
núverandi rannsóknarheimildum
sem varða einkalíf fólks er á síðum
14, 16 og 18. -óhþ Einar „Boom“ Marteinsson er forsprakki hinna íslensku Hells
Angels-samtaka. Ljósmynd/Hari
Samtökin
eru ekki
ólögleg
þannig að
við aðhöf-
umst ekki
neitt ...
Kaupþingsmenn
lausir úr haldi
Öllum þeim sem handteknir voru í
fyrradag af bresku efnahagsbrotadeildinni
og embætti sérstaks saksóknara hér vegna
rannsóknar á málefnum Kaupþings, alls
níu manns, var sleppt eftir yfirheyrslur í
fyrrakvöld. Tryggingar var krafist en ekki
gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir mönnunum.
Breska efnahagsbrotadeildin, SFO, hand-
tók Sigurð Einarsson, fyrrum starfandi
stjórnarformann Kaupþings, Ármann
Þorvaldsson, fyrrum forstjóra Kaup-
thing Singer & Friedlander, Guðna Níels
Aðalsteinsson, fyrrum framkvæmda-
stjóra fjárstýringar Kaupþings, Robert
Tchenguiz, stærsta einstaka skuldara
Kaupþings, og bróður hans og samstarfs-
félaga, Vincent Tchenguiz, auk tveggja
einstaklinga sem tengjast og hafa starfað
með Tchenguiz-bræðrum. Sérstakur
saksóknari á Íslandi handtók Bjarka H.
Diego, fyrrum framkvæmdastjóra út-
lánasviðs Kaupþings, og Guðmund Þór
Gunnarsson, viðskiptastjóra á útlánasviði
Kaupþings. Yfirheyrslur héldu áfram hjá
sérstökum saksóknara í gær. -jh
Tíunda „Food and Fun“ hátíðin
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra var
ein af þeim sem opnuðu tíundu „Food
and Fun“ matarhátíðina sem stendur til
sunnudagsins 13. mars. „Hátíðin er ein af
skrautfjöðrunum í vetrarferðamennsku
í Reykjavík og hefur fyrir löngu skapað
sér alþjóðlegan sess. Sextán veitinga-
hús taka þátt í hátíðinni að þessu sinni.
Fyrirkomulagið verður með nýjum hætti.
Veitingahúsunum verður skipt í þrjá
riðla. Stór dómnefnd mun borða á öllum
veitingastöðunum og velja eitt veitinga-
hús úr hverjum riðli,“ segir í tilkynningu
iðnaðarráðuneytisins. Gestakokkar
veitingahúsanna þriggja munu svo keppa
um titilinn „Matreiðslumeistari Food and
Fun 2011“.
Hafnar 87 milljarða kröfu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað
463 milljóna punda, rúmlega 87 milljarða
króna, kröfu dótturfélags Kaupþings á
eyjunni Mön í bú Kaupþings banka, að því
er mbl.is greinir frá. Krafan var lögð fram
á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar sem
Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á
Íslandi, gaf í september 2007. Samkvæmt
ábyrgðaryfirlýsingunni ábyrgðist Kaup-
þing banki hf. lögmætar skuldbindingar
Kaupthing Singer & Friedlander Isle of Man
Limited sem ekki fengjust greiddar með
eignum félagsins á Mön. Yfirlýsingin var
gefin út í tengslum við áform bankans á
Mön um að kaupa fjármálafyrirtæki þar og
færa þannig út kvíarnar. Slitastjórn Kaup-
þings hafnaði kröfunni og taldi að Ingólfur
Helgason hefði farið út fyrir umboð sitt
þegar hann skrifaði undir ábyrgðaryfir-
lýsinguna. Héraðsdómur tók undir þetta
og sagði að ekkert í gögnum málsins benti
til þess að stjórn Kaupþings hefði haft
vitneskju um yfirlýsinguna. -jh
Gnarr með persónutöfra en Jóhanna ekki
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er helst talin vera
ákveðin (26,9%) og standa við eigin sannfæringu (26,6%). 5,4%
töldu hana vera í tengslum við almenning og 1,8% töldu hana
gædda persónutöfrum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem
MMR birtir á síðu sinni. Tæpur þiðjungur þeirra sem tóku afstöðu
sögðu Jón Gnarr borgarstjóra gæddan persónutöfrum (29,5%)
eða heiðarlegan (28,8%) og um fjórðungur sagði hann í tengslum
við almenning (23,7%). Um og yfir fimm prósent þeirra sem tóku
afstöðu töldu Jón sterkan einstakling (5,6%) eða ákveðinn (5,0%).
Þá sögðu 36,6% þeirra sem tóku afstöðu Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra
vera ákveðinn, 29,2% töldu hann sterkan einstakling. Tæpur fimmtungur þeirra sem
tóku afstöðu sögðu Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, gæddan
persónutöfrum (19,4%) og 17,1% sagði Bjarna vera sterkan einstakling. -jh
2 fréttir Helgin 11.-13. mars 2011