Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 54
Lestu þessa strax! Spennusagan Dávaldurinn eftir Lars Kepler er komin í kilju Ein umtalaðasta og mest selda spennusaga sem út hefur komið á Norðurlöndum á síðustu árum Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn „Algjörlega upp á tíu í hrolli og spennu.“ Jenný Anna Baldursdóttir / eyjan.is Mergjaður sálfræðitryllir! www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu E itt af mikil­vægustu verkefnum stjórnlagaráðs, ef það kemst á lagg­ irnar, verður að fjalla um kjördæmaskipan og kosningar til Al­ þingis. Það hefur verið hefð fyrir því að hafa slík ákvæði mjög ítarleg í stjórn­ arskrá Íslands. Svo er einnig hjá hinum norrænu ríkjunum. Allur gangur er þó á þessu. Í sumum grannríkjum okkar, t.d. Þýskalandi eða Hollandi, kveður stjórnarskrá aðeins á um að kosn­ ingar skuli vera leynilegar og lýð­ ræðislegar. Hvort sem sagt verður meira eða minna um þetta í stjórn­ arskrá okkar er einsýnt að stjórn­ lagaráðið verður að hugsa málið til enda, þ.e. að kveða ekki aðeins á um stjórnarskrárákvæðin heldur gera líka drög að frv. til kosninga­ laga sem falli að nýjum stjórnar­ skrárákvæðum. Svo hefur verið gert þegar þessum ákvæðum hefur verið breytt í stjórnarskránni áður. Grunnspurningarnar sem taka þarf afstöðu til eru þessar: • Á vægi atkvæða að vera jafnt, óháð búsetu? • Á landið að vera eitt kjördæmi? • Á að velja þingmenn að einhverju leyti með persónukjöri? Þátttakendur í þjóðfundinum sem haldinn var í fyrrahaust svöruðu þessu almennt játandi. Fjallað mun verða um spurningarnar í þessum pistli og öðrum sem koma síðar. Byrjum á þeirri fyrstu. Hvert er misvægið? Þegar talað er um atkvæðamisvægi er oftast horft til tölu kjósenda að baki hverju þingsæti. Síðan er fund­ ið hlutfall þessarar kjósendatölu í því kjördæmi þar sem talan er hæst og þess þar sem hún er lægst. Við getum nefnt þetta hlutfall misvægis­ hlutfall. Því aðeins að hlutfallið sé nálægt einum er hægt að tala um jafnt vægi atkvæða. Í síðustu kosn­ ingum til Alþingis var þetta hlut­ fall rétt rúmlega tveir. Samkvæmt ákvæðum gildandi stjórnarskrár mun eitt þingsæti færast við næstu kosningar og draga úr misvæginu. Mis­ vægishlutfallið verð­ ur þá 1,8­1,9. Það er minna misvægi en elstu menn muna. Fyrir kjördæma­ breytinguna 1987 var misvægishlut­ fallið iðulega 4­5. Misvægið minnkaði nokkuð við breyt­ inguna þá en síðan seig aftur á ógæfu­ hliðina þar til bætt var úr skák á ný með stjórnarskrár­ breytingu 1999. Að óbreyttu mun hlut­ fallið haldast áfram um eða rétt undir tveimur. Á hitt er að líta að það hefur verið fullur pólitískur jöfnuður allt síð­ an 1987 í þeim skilningi að þing­ f lokkarnir hafa hlotið rétta tölu þingmanna miðað við landsfylgi. Misvægi atkvæða hefur því fyrst og fremst birst í því að flokkarnir þurfa að taka við þingmannsefnum úr fámennum kjördæmum á kostn­ að þess að fá þá þaðan sem fylgið er meira. Verst hefur þetta bitnað á Framsóknarflokknum. Nefna má sem dæmi að hann fékk aðeins einn af 34 þingmönnum höfuðborgar­ kjördæmanna þriggja í kosningun­ um 2007 á sama tíma og hann fékk þrjá þingmenn af tíu í Norðaustur­ kjördæmi. Hvers vegna að hafa misvægi? Meginrökin sem færð eru fyrir misvægi atkvæða eru þau að lands­ byggðarfólk hafi lakari aðgang að stjórnkerfinu en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Þetta eigi að bæta upp með fleiri þingmönnum. Mannréttindi, þ.m.t. kosninga­ réttur, eiga að vera jöfn fyrir alla. Á aðstöðumun verður að taka með öðrum hætti. Ef réttlæta á misjafn­ an atkvæðarétt með ójafnri aðstöðu hlýtur að vakna sú spurning hvort þá eigi ekki að taka tillit til annarra þátta líka. Hvað með að fatlaðir hefðu sérstakt atkvæðavægi eða að foreldrar fengju aukið atkvæðavægi í umboði barna sinna? Þessa hugs­ un má leiða ad absurdum, á henni verður enginn endir. Rökin um að aðkoma að valdinu fari þverrandi eftir fjarlægð frá höf­ uðborginni eru líka hæpin. Hvað skyldu íbúar í jaðarbyggðum höfuð­ borgarsvæðisins oft verða varir við þingmenn sína? Ef fjarlægðarrökin eiga að gilda þyrfti að útfæra þau í þaula. Eru einhver rök fyrir því að atkvæðavægi tvöfaldist við það eitt að flytjast fimm kílómetra eða svo í gegnum Hvalfjarðargöngin? Þeir sem búa rétt norðan þeirra, örskammt frá höfuðborginni, hafa meira atkvæðavægi en aðrir, líka þeir sem búa fjærst henni, svo sem á Langanesi. Sagt er að misvægi atkvæða sé ekki séríslenskt fyrirbæri. Það er rétt að hluta þótt á því sé allur gang­ ur. Af grannríkjunum er Noregur það land sem líkist okkur helst í þessum efnum. Noregur er langur og mjór og höfuðstaðurinn því sem næst í jaðri annars endans. Ætla mætti að þá lægi beint við að mis­ muna eftir fjarlægð frá Ósló. Svo er ekki gert, heldur er miðað við fólk og fjöll sem mælikvarða. Þing­ sætum í Stórþinginu er skipt á milli kjördæma, fylkjanna, þannig að flatarmál mælt í ferkílómetrum er margfaldað með 1,8 og íbúatölunni bætt við. Sú vísitala sem þannig fæst er notuð til að útdeila þingsæt­ unum 169. Hvernig stuðullinn 1,8 er fenginn er hulin ráðgáta. Þessar reiknikúnstir Norðmanna leiða til nokkurs misvægis en ekki í sama heildarmæli og hjá okkur. Til gam­ ans má geta þess að væri Ísland eitt fylkja Noregs (sem sumum þætti ekki amalegt nú á þessum síðustu og verstu tímum!) og þingsætum bætt við handa okkur í Stórþinginu, fengjum við 16 sæti af alls 185 eftir formúlunni, en ekki nema 11 af 180 ef íbúatalan ein yrði látin ráða. Tíminn er kominn Kosningaeftirlitsstofnun Öryggis­ og samvinnustofnunar Evrópu kom með þá ábendingu eftir þingkosn­ ingarnar 2009 að „tími sé kominn til að íhuga lagaákvæði um skiptingu þingsæta í því skyni að tryggja jöfn­ uð milli kjósenda“. Skýrar verður það ekki sagt. Fræg eru ummæli hins reynda bandaríska hæstaréttardómara Earl Warren um atkvæðajöfnuð: „Þing­ menn eru fulltrúar fyrir fólk, ekki tré eða ekrur. Þingmenn eru valdir af kjósendum, hvorki af býlum né borgum né heldur af atvinnuhags­ munum.“ Í næsta pistli fjalla ég um skipan kjördæmamála. 34 viðhorf Helgin 11.-13. mars 2011 Þorkell Helgason stærðfræðingur, var kjörinn á stjórnlagaþing Kosningaeftirlitsstofnun Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu kom með þá ábendingu eftir þingkosningarnar 2009 að „tími sé kominn til að íhuga lagaákvæði um skipt- ingu þingsæta í því skyni að tryggja jöfnuð milli kjósenda“. Skýrar verður það ekki sagt. Jöfnun atkvæðisréttar Atkvæði fólks eða fjalla? –einfalt og ódýrt TILBOÐ MÁNAÐARINS GULI MIÐINN 20% AFSLÁTTUR AF ALLRI LÍNUNNI Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is TILBOÐIÐ GILDIR ÚT MARS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.