Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 75

Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 75
dægurmál 55Helgin 11.-13. mars 2011 Á hljómgrunnur.is er að finna aðgengi- legt yfirlit yfir tónlistarviðburði sem eru fram undan. Rokk, djass, popp, klassík og allt þar á milli. Föstudagur 11. mars Tríó Reykjavíkur Kjarvalsstaðir kl. 12.15 Með einstöku samstarfi sínu bjóða Tríó Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur upp á hádegistónleika. Aðgangur ókeypis. Karlakór Dalvíkur Salurinn, Kópavogi kl. 20.30 Queen og Bítlarnir Karlakór Dalvíkur, ásamt Matta Matt og rokkhljómsveit, flytur lög Bítlanna og Queen í rokkuðum útsetningum Guðmundar Óla Gunnarssonar, stjórnanda kórsins. Aðgangur 3.300 kr. Varsjárbandalagið Café Rósenberg kl. 22 Varsjárbandalagið spilar tónlist ættaða frá Austur-Evrópu, gyðingatónlist, balkanmúsík, Goran Bregóvitsj, sækir í smiðju Gylfa Ægis- sonar auk frumsamins efnis. Mars Attacks-Festival Sódóma Reykjavík kl. 22.00 X-977 og Tuborg kynna: Mars Attack, tveggja daga tónlistarveislu á Sódómu Reykjavík helgina 11.-12. mars. Cliff Clavin, Valdimar Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar, Insol, Legend Noise, XIII, Endless Dark, Reason to Believe, Benny Crespo’s Gang, Vicky, Blaz Roca, Sing For Me Sandra. Miðaverð í forsölu er fárán- legt, 1.500 krónur armbandið sem gildir báða dagana. Miðasala fer fram í Levi´s í Smárlind og Kringlunni. Laugardagur 12. mars Íslenski flautukórinn Menningarhúsið Hof kl. 17 Íslenski flautukórinn hefur vakið athygli fyrir frumflutning á nýrri tónlist þar sem hann hefur komið fram m.a. á tónlistarhátíðunum Norrænum músíkdögum og Myrkum músík- dögum. Gestir flautukórsins á tónleikunum verða norðlenskir flautuleikarar og nem- endur auk Páls Barna Szabó á fagott og Þórarins Stefánssonar á píanó. Einleikari í flautukonsertinum Lux er Melkorka Ólafs- dóttir og stjórnandi er Hallfríður Ólafsdóttir, leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Aðgangur 2.500 kr. Karlakór Dalvíkur Salurinn, Kópavogi kl. 20.30 Queen og Bítlarnir Karlakór Dalvíkur, ásamt Matta Matt og rokkhljómsveit. Aðgangur 3.300 kr. Varsjárbandalagið Café Rósenberg kl. 22 Varsjárbandalagið spilar tónlist ættaða frá Austur-Evrópu, gyðingatónlist, balkanmúsík, Goran Bregóvitsj, sækir í smiðju Gylfa Ægis- sonar auk frumsamins efnis. sunnudagur 13. mars Töfrahurð: Tobbi Túba og klassískt diskótek Salurinn, Kópavogi kl. 13 Að kynnast borgarhljóðum, efnisskrá sem er byggð upp í kringum slagverk. Krakk- arnir munu kynnast sögu þess og hinum endalausu möguleikum ásláttarhljóðfæra með hlustun, leikjum og dönsum. Sögu- maður Sigurþór Heimisson, Kammerhópur „Sheherazade“, dansarar úr Listdansskóla Íslands og Skólahljómsveit Kópavogs ásamt Össuri Geirssyni. Aðgangur 1.500 kr. Dorothea Höjgaard Dam Café Rósenberg kl. 20 Dorthea er færeysk tónlistarkona með íðilfagra rödd! Hún hefur komið víða fram með gítarinn sinn og hefur haldið tónleika í Kanada, Danmörku, Noregi, á Færeyjum og Íslandi. Hún er að vinna að sinni fyrstu sólóplötu. Aðgangur 1.000 kr. HD FITNESS HD fitness æfingakerfið fer fram í heitum sal og byggist á rólegum styrktaræfingum ásamt djúpum teygjum. Eingöngu er unnið með eigin líkamsþyngd. HD fitness-kerfið er byggt á æfingum sem stjörnur á borð við Jennifer Aniston og Gwyneth Palthrow iðka. Sérstakar áherslur eru á styrkingu djúpvöðva í kvið og baki og djúpar teygjuæfingar sem lengja og styrkja alla vöðva líkamans. Hitinn í salnum auðveldar að ná djúpum teygjum og líkaminn hitnar fljótt og vel. HD fitness-kerfið er hannað af Ágústu Johnson, Önnu Eiríksdóttur og Helgu Lind Björgvinsdóttur. 6-vikna námskeið Þjálfun 2x í viku Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningu, verð og skráningu finnur þú á www.hreyfing.is Ný námskeið að hefjast. Heitt djúpvöðva fitness (HD fitness) er glænýtt æfingakerfi fyrir þær sem sækjast eftir tónuðum líkama og tígulegu fasi B jörn Thorodd-sen og Stórsveit Reykjavíkur blása til stórtónleika í Salnum í Kópavogi á sunnudag- inn. Kanadíski stjór- nandinn dr. Richard Gillis kemur til landsins sérstaklega til að stjórna sveitinni á sunnudaginn. Egill Ólafsson verður sérstakur gestur á tón- leikunum. Dr. Gillis útsetti tón- list Björns sem kom út á diski í Kanada ekki alls fyrir löngu en disknum hefur verið vel tekið ytra og hann fékk meðal annars fjórar stjörnur af fimm í stærsta dagblaði Winnipeg. Tónlistin sem Björn og Stórsveitin flytja á sunnudaginn er vægast sagt fjölbreytt en boðið verður upp á þjóðlög, jazz, blús, funk, surf og standarda. Tónlistina hefur Björn sett saman en Gillis útsett fyrir stórsveit. Björn Thoroddsen hefur verið atkvæðamik- ill í íslensku tónlistarlífi undanfarin þrjátíu ár en á síðustu árum töluvert starfað í útlöndum og leikið með mörgum heimsþekktum tónlist- armönnum, ásamt því að vera í forsvari fyrir íslensku hljómsveitinni Guitar Islancio. Richard Gillis er af vestur-íslenskum ættum en auk þess að vera stjórnandi Stórsveitar Winnipeg-borgar er hann prófessor við Uni- versity of Manitoba og trompetleikari á heims- mælikvarða. Stórsveit Reykjavíkur þarfnast vart kynn- ingar enda löngu búin að sanna tilverurétt sinn og er skipuð mörgum af allra bestu hljóðfæra- leikurum landsins. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og er aðgangur ókeypis. Guðrún spjallar um Sýni guðrún Kristjánsdóttir verður með listamannaspjall í Gall- eríi Ágúst á morgun, laugardag. Spjallið er í tengslum við sýningu á prentverkum hennar, sem kallast SÝNI, í galleríinu. Guðrún ræðir við Jóhann Ludwig torfa- son en hann vann með Guðrúnu að grafík-seríunni SNJÓPRENT sem er einnig á sýningunni. Spjallið hefst kl. 14 og Jóhann og Guðrún munu ræða nálgun Guðrúnar við prentmiðilinn, sam- starfið og hvað eina sem gestum dettur í hug að spyrja um. Snjóprent Guðrúnar er á sýningunni í Galleríi Ágúst. Egill Ólafs heimsækir Björn Thoroddsen í Salinn Björn Thoroddsen og Richard Gillis í góðum fíling.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.