Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 8
Þú færð meira, meira eða
miklu meira í Vodafone Gull.
0 kr. úr heimasíma
í heimasíma og
fullt af mínútum
í farsíma
Skráðu þig í 1414 strax í dag
vodafone.is
Berbatov-ættin mun eiga
sinn fulltrúa á Íslandi um
helgina. Alþjóðlegi meistarinn
Kiprian Berbatov keppir á MP
Reykjavíkurskákmótinu.
Garpur Birgisson fékk nikótíneitrun þegar hann stakk upp í sig notuðum poka af munntóbaki sem hann fann á glámbekk Hér er
hann með móður sinni, Björt Ólafsdóttur.
Skák Stórmót um helgina
Berbatov til Íslands
Búlgarskt ungstirni tekur þátt í MP Reykjavíkurskákmótinu um helgina.
B úlgarinn Berbatov verður á Ís-landi um helgina. Ekki er þó um að ræða knattspyrnukappann Di-
mitar Berbatov, sem leikur með Manc-
hester United, enda sá upptekinn við að
spila bikarleik gegn Arsenal á morgun,
laugardag, heldur fjórtán ára bróðurson
hans, Kiprian Berbatov, sem tekur þátt í
MP Reykjavíkurskákmótinu.
Berbatov, sem var aðeins ellefu ára
þegar hann varð alþjóðlegur meistari,
þykir með efnilegri skákmönnum í
Evrópu nú um stundir. Hann er sem
stendur í öðru sæti á heimslista skák-
manna undir fjórtán ára aldri og vann
sér nýlega sæti í ólympíuliði Búlgara.
Berbatov hefur unnið heimsmeistara-
titla í unglingaflokkum en þekktastur er
þó sigur hans á sterku alþjóðlegu móti
á Spáni í fyrra þar sem fjöldinn allur af
stórmeisturum laut í lægra haldri fyrir
ungstirninu.
MP Reykjavíkurskákmótið hófst
á miðvikudaginn. Meðal þekktra
stórmeistara sem taka þátt í því eru
Englendingurinn Luke McShane, Bos-
níumaðurinn Ivan Sokolov og hinn
úkraínski Evgenij Miroshnichenko. -óhþ
heilBrigðiSmál SlyS
h ann virtist mjög hræddur og leið alveg herfilega. Líklega hefur hann verið með miklar ofskynj-
anir því það var eins og hann sæi okkur
mjög skringilega og fór úr einu fanginu
í annað. Í ljós kom að um eitrun var að
ræða og púlsinn hafði rokið upp úr öllu
valdi,“ segir Björt Ólafsdóttir, móðir
hins eins árs gamla Garps Birgissonar
sem varð fyrir því óláni á dögunum að
veikjast heiftarlega eftir að hafa stungið
upp í sig poka af munntóbaki.
„Einhverjir vinir frænda hans höfðu
búið sér til „snus“ úr íslensku neftóbaki
sem þeir pökkuðu inn í tepoka. Mér er
sagt að þetta sé mjög algengt þar sem
„snus“ er ekki selt á Íslandi. Einhver
hafði svo lagt notaðan poka frá sér á
glámbekk þar sem hann komst í það.“
Björt var á hælunum á syni sínum þegar
atvikið átti sér stað og gat strax brugðist
við með því að fjarlægja tóbakið úr
munninum á drengnum.
„Líklega hefur hann bara verið með
tóbakið uppi í sér í tvær sekúndur og
mér finnst mjög ólíklegt að eitthvað hafi
komist ofan í maga. Við skoluðum munn-
inn á honum strax og settum hann undir
kranann en eins og áhrifin eiga að vera
þá er frásogið mest í slímhúð í munni.
Það þarf ekki að vera þar lengi til að hafa
mikil áhrif.“
Í fyrstu héldu foreldrar drengsins að
honum hefði ekki orðið meint af þar sem
tóbakið náðist út úr honum undir eins.
Klukkutíma síðar fór áhrifanna að gæta.
„Við héldum að þetta yrði allt í lagi úr
því að við komum honum strax undir
kranann. Allt í einu var eins og hann yrði
fárveikur. Við foreldrar hans fengum al-
gjört sjokk en amma hans hringdi í 112
og var gefið samband við eitrunarmið-
stöðina. Þegar við mættum með hann á
barnaspítalann hafði eitrunarmiðstöðin
undirbúið læknana sem tóku á móti
okkur,“ segir Björt þakklát fyrir góð og
skilvirk vinnubrögð á spítalanum.
Garpur var undir eftirliti yfir nóttina
því hætta var á að hann vaknaði upp
með ofskynjanir eða að púlsinn félli.
Ástand hans var ekki metið alvarlegt og
hann hefur nú náð sér að fullu.
Kolbeinn Guðmundsson læknir,
sem annaðist drenginn á Barnaspítala
Hringsins, segir að aðeins lítið magn af
nikótíni þurfi til að valda litlum börnum
miklum skaða.
„Ung börn geta dáið við inntöku um
það bil þriggja sígarettustubba. Það er
í raun ótrúlegt að ekki verði fleiri svona
slys. Nikótín er mjög eitrað efni og það
er ágætis áminning til fólks að þetta eru
eiturstubbar sem hent er á jörðina úti
um allt og því auðveldara fyrir börn að
nálgast en munn- og neftóbak.“
Hann bendir á að í þessu tilviki hafi
tóbakið verið jafnvel enn hættulegra
en venjulegt „snus“ þar sem það var í
heimagerðum og ólöglegum umbúðum.
„Nikótínið fer fljótt út í blóðið. Helstu
áhrif þess á börn eru mikil örvun, hár
púls og ofskynjanir en þau geta líka
sokkið niður í hægan hjartslátt og blóð-
þrýsting. Það er helsta hættan.“
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Ung börn geta
dáið við inn-
töku um það bil
þriggja sígar-
ettustubba. Það
er í raun ótrúlegt
að ekki verði
fleiri svona slys.
Nikótín er mjög
eitrað efni og
það er ágætis
áminning til
fólks að þetta
eru eiturstubbar
sem hent er á
jörðina úti um
allt ...
Eins árs barn fékk of-
skynjanir af munntóbaki
Lítill drengur fékk nikótíneitrun þegar hann stakk upp í sig íslensku munntóbaki sem pakkað hafði
verið í heimatilbúnar umbúðir.
8 fréttir Helgin 11.-13. mars 2011