Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 76

Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 76
56 dægurmál Helgin 11.-13. mars 2011  Plötuhorn Dr. Gunna Finger of God (toes of Paul McCartney)  Sigurður Eyberg Á fyrstu sólóplötu söngvarans í Deep Jimi & The Zep Creams spriklar hann eins og kálfur að vori, frjáls af bási gamla rokksins. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er hægri hönd Sigurður á plötunni, spilar og tekur upp, og hefur eflaust haft nokkuð að segja. Sigurður er lærður leikari, traustur söngvari sem notar námið í söngnum, syngur ensku textana eins og hann meini þá. Lögin eru gítar-, hljóðgervla- og tölvut- rommuknúin, kraftmikil og tilraunaglöð, en samt yfirveguð og fullorðins. Manni detta stundum í hug jafn ólíkir áhrifavaldar og Bowie, Beck og Bill Nelson, en útkoman er lunkinn Eyberg – glöð tilraun sem gengur upp. Emilio Estevez  Fist fokkers Úlfur A. Einarsson (gítar & rödd) og Kári Einars- son (trommur) eru Fist fokkers. Þeir eru skyldir böndum eins og Reykjavík! og Swords of Chaos; syngja helst ekki heldur væla og öskra og hamast á hljóðfærunum í galsa. Hamagangur Fist fokkers er þó útreiknaður og allt gengur upp í undarlega þéttri heild miðað við að þetta eru nú bara tvö hljóðfæri. Hin frábæra Brak-útgáfa gefur út fyrstu plötuna, átta stuttar en myndarlegar slettur. Enn skemmtilegra væri ef bandið syngi á íslensku og um eitthvað sem máli skiptir, því kaldhæðnishjal um ameríska leikara og U2 er dálítið búið. Innihald myndi þykkja rokkslett- urnar. Different Gear, Still Speeding  Beady Eye Hér er „vitlausari bróðirinn í Oasis“ aðal driffjöðrin og hefur fengið tvo fyrrum Oasis-meðlimi með sér. Sopið er af sömu vin og áður: Bítlunum, Stóns og hinu sixtís- stöffinu og kryddað með nútímasándi. Stundum eru líkindin yfirþyrmandi, Lennon-áhrifin heyrast langar leiðir í „The Roller“ og „Beatles & Stones“ er kalkipappírsteiknað upp úr „My Generation“ The Who. Maður fyrirgefur þetta þó, enda sjálfur sýktur af sama Bítlaæðinu, og eftir- líkingin er jú einlægasta form smjaðursins. Það er léttara yfir þessu en hefur verið lengi hjá Oasis og meiri spilagleði og meira fjör. Þetta er því hress- andi bítlarokk og Liam er ekkert ber á bakinu. Pr akka rinn Rík ul eg a mynd- skReytt Bráðskemmtileg prakkarasaga Astridar Lindgren um Emil í Kattholti loksins fáanleg afturVilborg Dagbjartsdóttir þýddi Hverfisgata 56 Borðapantanir: 552 1630 Opið: sun.-fim. 18:00-22:00 fös. og lau. 18:00-23:00 www.austurindia.is Eftirlæti Mógúlkeisaranna Lambaskankar Raan Manjara- bat er spennandi nýjung, hægeldaðir í ljúffengri blöndu af kanil, kardimommum, negul, broddkúmmíni, chillí, tómötum og garam masala, sannkallað lostæti á nýjum matseðli okkar. Besta fáanlega hráefnið og sérinnflutt krydd frá Indlandi. Matgæðingar fullyrða að Austur-Indíafjelagið sé eitt fremsta veitingahús landsins - og ekki að ástæðulausu. Lostæti á nýjum matseðli RAAN MANJARABAT a ð kunna samningatækni getur nýst manni á ótrúlegustu stöðum. Eftir fyrsta kúrsinn okkar fórum við nokkur saman í ísbúð og þegar af- greiðslukonan nefndi verðið spurðum við hvort það væri hennar fyrsta boð. Það er fyrsta reglan, að hafna alltaf fyrsta boði,“ segir Steingrímur Árnason hlæjandi en hann er einn liðsmanna Háskólans í Reykjavík sem nú eru staddir á heimsmeistaramóti í samningatækni í Leipzig í Þýskalandi. Þriggja manna lið Háskólans í Reykjavík var valið ásamt tólf öðrum háskólaliðum úr öllum heimsálfum til að taka þátt í keppninni. Liðin eru metin eftir því hversu vel þeim gengur að tryggja sínum sjónarmiðum brautargengi og hversu hagstæð niður- staðan er fyrir báða aðila og áframhaldandi samskipti þeirra. „Heildarvirði samningsins er það sem mestu skiptir. Ef þú valtar yfir viðsemjanda þinn getur þú skorað hátt en hann lágt. Hins vegar skiptir máli að ná svokölluðum sameiginlegum stigum sem gefin eru fyrir að finna hagstæða lausn fyrir báða aðila.“ Steingrímur segir að íslenskt viðskiptaumhverfi hefði gott af því að tileinka sér slíkt viðhorf. „Við erum þannig gerð að okk- ur þykir við best í heim og þá er ágætt að stíga tvö skref aftur á bak og reyna að finna sameiginlega hagsmuni. Afdrifaríkir samningar um Icesave eru nærtækt dæmi sem sanna mikilvægi þess að standa faglega að samn- ingum í stað þess að láta pólitísk tengsl ráða því hvaða fólk leysir mikilvæg verkefni fyrir hönd þjóðarinnar.“ Í keppninni fá liðin dæmi um deilur eða viðskipti og eiga að nálgast hagstæða niðurstöðu. „Tæknin reynir á menningarlæsi og ýmis sálfræðileg atriði og það er ekki sama við hvern er samið. Við fáum stig fyrir framkomu og þurfum að kynna okkur samn- ingavenjur ólíkra landa. Japanir eru til dæmis þekktir fyrir að beita þögninni enda felst mikil virðing í henni. Bandaríkjamenn verða aftur á móti óþreyjufullir eftir um það bil þrjátíu sekúndna þögn.“ Steingrímur segir liðsmenn spennta að taka þátt og stefna að góðri hvíld fyrir samninga helgarinnar. –ÞT Höfnum alltaf fyrsta boði Íslendingar spreyta sig í fyrsta sinn á heimsmeistaramóti í samningatækni.  MEnntaMÁl SaMnInGatÆKnI Lið Háskólans í Reykjavík etur kappi við sterkustu háskóla heims á sviði samningatækni sem fram fer í Leipzig í Þýskalandi um helgina. Frá vinstri: Steingrímur Árnason, Helen Neely og Aldís Guðný Sigurðardóttir fyrirliði liðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.