Fréttatíminn - 11.03.2011, Blaðsíða 54
Lestu
þessa strax!
Spennusagan Dávaldurinn eftir
Lars Kepler er komin í kilju
Ein umtalaðasta og mest selda
spennusaga sem út hefur komið
á Norðurlöndum á síðustu árum
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
„Algjörlega upp á tíu
í hrolli og spennu.“
Jenný Anna Baldursdóttir / eyjan.is
Mergjaður
sálfræðitryllir!
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
E itt af mikilvægustu verkefnum
stjórnlagaráðs, ef
það kemst á lagg
irnar, verður að fjalla
um kjördæmaskipan
og kosningar til Al
þingis. Það hefur
verið hefð fyrir því
að hafa slík ákvæði
mjög ítarleg í stjórn
arskrá Íslands. Svo
er einnig hjá hinum
norrænu ríkjunum.
Allur gangur er þó
á þessu. Í sumum
grannríkjum okkar,
t.d. Þýskalandi eða
Hollandi, kveður
stjórnarskrá aðeins á um að kosn
ingar skuli vera leynilegar og lýð
ræðislegar. Hvort sem sagt verður
meira eða minna um þetta í stjórn
arskrá okkar er einsýnt að stjórn
lagaráðið verður að hugsa málið
til enda, þ.e. að kveða ekki aðeins
á um stjórnarskrárákvæðin heldur
gera líka drög að frv. til kosninga
laga sem falli að nýjum stjórnar
skrárákvæðum. Svo hefur verið
gert þegar þessum ákvæðum hefur
verið breytt í stjórnarskránni áður.
Grunnspurningarnar sem taka
þarf afstöðu til eru þessar:
• Á vægi atkvæða að vera jafnt,
óháð búsetu?
• Á landið að vera eitt kjördæmi?
• Á að velja þingmenn að einhverju
leyti með persónukjöri?
Þátttakendur í þjóðfundinum sem
haldinn var í fyrrahaust svöruðu
þessu almennt játandi. Fjallað mun
verða um spurningarnar í þessum
pistli og öðrum sem koma síðar.
Byrjum á þeirri fyrstu.
Hvert er misvægið?
Þegar talað er um atkvæðamisvægi
er oftast horft til tölu kjósenda að
baki hverju þingsæti. Síðan er fund
ið hlutfall þessarar kjósendatölu í
því kjördæmi þar sem talan er hæst
og þess þar sem hún er lægst. Við
getum nefnt þetta hlutfall misvægis
hlutfall. Því aðeins að hlutfallið sé
nálægt einum er hægt að tala um
jafnt vægi atkvæða. Í síðustu kosn
ingum til Alþingis var þetta hlut
fall rétt rúmlega tveir. Samkvæmt
ákvæðum gildandi stjórnarskrár
mun eitt þingsæti færast við næstu
kosningar og draga
úr misvæginu. Mis
vægishlutfallið verð
ur þá 1,81,9. Það er
minna misvægi en
elstu menn muna.
Fyrir kjördæma
breytinguna 1987
var misvægishlut
fallið iðulega 45.
Misvægið minnkaði
nokkuð við breyt
inguna þá en síðan
seig aftur á ógæfu
hliðina þar til bætt
var úr skák á ný
með stjórnarskrár
breytingu 1999. Að
óbreyttu mun hlut
fallið haldast áfram
um eða rétt undir tveimur.
Á hitt er að líta að það hefur verið
fullur pólitískur jöfnuður allt síð
an 1987 í þeim skilningi að þing
f lokkarnir hafa hlotið rétta tölu
þingmanna miðað við landsfylgi.
Misvægi atkvæða hefur því fyrst
og fremst birst í því að flokkarnir
þurfa að taka við þingmannsefnum
úr fámennum kjördæmum á kostn
að þess að fá þá þaðan sem fylgið
er meira. Verst hefur þetta bitnað
á Framsóknarflokknum. Nefna má
sem dæmi að hann fékk aðeins einn
af 34 þingmönnum höfuðborgar
kjördæmanna þriggja í kosningun
um 2007 á sama tíma og hann fékk
þrjá þingmenn af tíu í Norðaustur
kjördæmi.
Hvers vegna að hafa misvægi?
Meginrökin sem færð eru fyrir
misvægi atkvæða eru þau að lands
byggðarfólk hafi lakari aðgang að
stjórnkerfinu en þeir sem búa á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta eigi að
bæta upp með fleiri þingmönnum.
Mannréttindi, þ.m.t. kosninga
réttur, eiga að vera jöfn fyrir alla.
Á aðstöðumun verður að taka með
öðrum hætti. Ef réttlæta á misjafn
an atkvæðarétt með ójafnri aðstöðu
hlýtur að vakna sú spurning hvort
þá eigi ekki að taka tillit til annarra
þátta líka. Hvað með að fatlaðir
hefðu sérstakt atkvæðavægi eða að
foreldrar fengju aukið atkvæðavægi
í umboði barna sinna? Þessa hugs
un má leiða ad absurdum, á henni
verður enginn endir.
Rökin um að aðkoma að valdinu
fari þverrandi eftir fjarlægð frá höf
uðborginni eru líka hæpin. Hvað
skyldu íbúar í jaðarbyggðum höfuð
borgarsvæðisins oft verða varir við
þingmenn sína? Ef fjarlægðarrökin
eiga að gilda þyrfti að útfæra þau
í þaula. Eru einhver rök fyrir því
að atkvæðavægi tvöfaldist við það
eitt að flytjast fimm kílómetra eða
svo í gegnum Hvalfjarðargöngin?
Þeir sem búa rétt norðan þeirra,
örskammt frá höfuðborginni, hafa
meira atkvæðavægi en aðrir, líka
þeir sem búa fjærst henni, svo sem
á Langanesi.
Sagt er að misvægi atkvæða sé
ekki séríslenskt fyrirbæri. Það er
rétt að hluta þótt á því sé allur gang
ur. Af grannríkjunum er Noregur
það land sem líkist okkur helst í
þessum efnum. Noregur er langur
og mjór og höfuðstaðurinn því sem
næst í jaðri annars endans. Ætla
mætti að þá lægi beint við að mis
muna eftir fjarlægð frá Ósló. Svo
er ekki gert, heldur er miðað við
fólk og fjöll sem mælikvarða. Þing
sætum í Stórþinginu er skipt á milli
kjördæma, fylkjanna, þannig að
flatarmál mælt í ferkílómetrum er
margfaldað með 1,8 og íbúatölunni
bætt við. Sú vísitala sem þannig
fæst er notuð til að útdeila þingsæt
unum 169. Hvernig stuðullinn 1,8
er fenginn er hulin ráðgáta. Þessar
reiknikúnstir Norðmanna leiða til
nokkurs misvægis en ekki í sama
heildarmæli og hjá okkur. Til gam
ans má geta þess að væri Ísland eitt
fylkja Noregs (sem sumum þætti
ekki amalegt nú á þessum síðustu
og verstu tímum!) og þingsætum
bætt við handa okkur í Stórþinginu,
fengjum við 16 sæti af alls 185 eftir
formúlunni, en ekki nema 11 af 180
ef íbúatalan ein yrði látin ráða.
Tíminn er kominn
Kosningaeftirlitsstofnun Öryggis
og samvinnustofnunar Evrópu kom
með þá ábendingu eftir þingkosn
ingarnar 2009 að „tími sé kominn til
að íhuga lagaákvæði um skiptingu
þingsæta í því skyni að tryggja jöfn
uð milli kjósenda“. Skýrar verður
það ekki sagt.
Fræg eru ummæli hins reynda
bandaríska hæstaréttardómara Earl
Warren um atkvæðajöfnuð: „Þing
menn eru fulltrúar fyrir fólk, ekki
tré eða ekrur. Þingmenn eru valdir
af kjósendum, hvorki af býlum né
borgum né heldur af atvinnuhags
munum.“
Í næsta pistli fjalla ég um skipan
kjördæmamála.
34 viðhorf Helgin 11.-13. mars 2011
Þorkell Helgason
stærðfræðingur, var kjörinn á
stjórnlagaþing
Kosningaeftirlitsstofnun Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu kom með þá ábendingu eftir þingkosningarnar
2009 að „tími sé kominn til að íhuga lagaákvæði um skipt-
ingu þingsæta í því skyni að tryggja jöfnuð milli kjósenda“.
Skýrar verður það ekki sagt.
Jöfnun atkvæðisréttar
Atkvæði fólks eða fjalla?
–einfalt og ódýrt
TILBOÐ MÁNAÐARINS
GULI MIÐINN
20% AFSLÁTTUR
AF ALLRI LÍNUNNI
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is
TILBOÐIÐ GILDIR ÚT MARS