Fréttatíminn - 11.03.2011, Page 6
GOLF
KORT
IÐ VEI
TIR
40% A
FSLÁT
T
AF GO
LFVÖ
LLUM
UMHV
ERFIS
ÍSLAN
D
AUK A
NNAR
RA GL
ÆSILE
GRA F
RÍÐIN
DA
GOLF
KORT
IÐ FY
LGIR M
EÐ ÁR
SÁSK
RIFT
TRYG
GÐU Þ
ÉR ÁS
KRIFT
Í SÍM
A 595
6000
EÐA Á
SKJA
RGOL
F.IS
FÖSTUDAG KL. 19:00 – 23:00
LAUGARDAG KL. 17:00 – 23:00
SUNNUDAG KL. 17:00 – 23:00
Í BEINNI UM HELGINA:
TIGER Á HEIMAVELLI Í FLÓRÍDA!
50 BESTU
KYLFINGAR HEIMS
Á EINU STERKASTA MÓTI ÁRSINS
Rannsókn Meint innheRjasvik
Nokkur meint
innherjasvik
kærð til sérstaks
FME kannar verðbréfaviðskipti með hlutabréf í íslensku bönkunum
í aðdraganda hrunsins
F jármálaeftirlitið hefur kært nokkur tilvik um meint innherjasvik til embættis sérstaks saksóknara. Þetta staðfestir
Sigurður Valgeirsson, upplýsingafulltrúi eftir
litsins, í samtali við Fréttatímann. „Fjármála
eftirlitið hefur kannað mörg verðbréfaviðskipti
með hlutabréf í íslensku bönkunum í aðdrag
anda hrunsins, þar á meðal viðskipti innherja,
og fundið dæmi um slík viðskipti. Nokkur
tilvik um meint innherjasvik hafa verið kærð
til embættis sérstaks saksóknara en önnur eru
enn í athugun,“ segir Sigurður. Hann segist
hvorki geta tjáð sig um nákvæman fjölda kæra
til sérstaks saksóknara né heldur hvers eðlis
hin meintu innherjasvik eru, hvort um sé að
ræða fruminnherja, sem störfuðu eða stjórn
uðu í bönkunum, eða svokallaða tímabundna
innherja sem höfðu á einhverjum tímapunkti
upplýsingar sem leiddu til þess að þeir voru
innherjar.
Dæmi um mann, sem grunur leikur á að
hafi verið tímabundinn innherji, er Baldur
Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu. Baldur, sem hefur verið
ákærður af embætti sérstaks saksóknara fyrir
innherjasvik, sat í nefnd um fjármálastöðug
leika á vegum stjórnvalda í aðdraganda hruns
ins og leikur grunur á að hann hafi nýtt sér
upplýsingar úr nefndinni þegar hann seldi bréf
sín í Landsbankanum fyrir 192 milljónir um
miðjan september 2008, þremur vikum fyrir
hrun.
Nokkur tilvik um meint innherja
svik hafa verið kærð til embættis
sérstaks saksóknara en önnur eru
enn í athugun.
Embætti sérstaks saksóknara hefur fengið nokkrar kærur frá Fjármálaeftirlitinu
vegna mögulegra innherjasvika.
Baldur Guðlaugsson
er ákærður fyrir
innherjasvik.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Vátryggingafélag Íslands skilaði
204 milljóna króna hagnaði á árinu
2010 samkvæmt ársreikningi sem
félagið birti á miðvikudaginn. Vá
tryggingastarfsemi félagsins skilaði
600 milljóna króna hagnaði á árinu
en fjárfestingarstarfsemi tæplega
300 milljóna króna tapi. Þetta er
töluvert verri afkoma en árið 2009
þegar hagnaður var tæplega 1,2
milljarðar króna.
VÍS er stór hlut
hafi í Vefpressunni,
hvar Björn Ingi
Hrafnsson er útgef
andi. Það félag rekur fjölmörg vef
svæði og keypti meðal annars ný
lega vefsvæðið eyjan.is. Guðmundur
Örn Gunnarsson, forstjóri félagsins,
var með rétt tæpar tuttugu milljónir
í árslaun eða um 1,7 milljónir í mán
aðarlaun. óhþ
vÍs ÁRsReikninguR
Meðeigandi í Pressunni
hagnast um 200 milljónir
Vátryggingastarfsemi félagsins skilaði 600 milljóna króna hagnaði
Helgin 11.-13. mars 2011