Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.03.2011, Qupperneq 24

Fréttatíminn - 11.03.2011, Qupperneq 24
Heyrst hafði í gegnum fjar- skiptabúnað að tali banar væru að undirbúa árás á okkur. Við vissum ekkert hvað til væri í þessu en gátum auð- vitað ekki annað en flúið sam- stundis.“ Á slaug hefur unnið á átakasvæðum víðsveg- ar um heiminn undan- farin fimmtán ár. Hún menntaði sig í hjúkrunarfræði til að geta ferðast og fór fyrst sem sendifull- trúi Rauða krossins til Suður-Súdans þegar hún var 29 ára. Þá til að bjarga heiminum enda nýútskrifuð og full af eldmóði. „Yfirmaður minn þá var svo elsku- legur að kippa mér niður á jörðina og út- skýra fyrir mér að ef ég yrði svo heppin að upplifa örfá augnablik í svona langri dvöl sem gætu skipt máli þá ætti ég að vera ánægð með ferðina. Þetta breytti viðhorfi mínu til starfsins sem sendifull- trúi, sem í raun krefst þess að maður skilji eftir þau gildi og viðhorf sem maður hefur lært í sínu eigin samfélagi. Þeim er yfirleitt kollvarpað í svona ferð- um. Ég sá fljótt að heimurinn var grár en ekki svarthvítur. Aðallega lærði ég á dvölinni í Súdan að ég þyrfti að þroskast meira áður en ég færi í næstu ferð.“ Fangarnir stjórnuðu fangelsinu Áslaug fór næst til Georgíu þar sem hún starfaði í harðsvíruðu fangelsi í eitt ár og hafði það að markmiði að þjálfa upp inn- lent heilbrigðisstarfsfólk. „Fangelsið var gróðrarstía fyrir berkla og sums staðar var alveg hrikalegur aðbúnaður. Þangað voru allir berklaveikir fangar í landinu fluttir og við önnuðumst meðferðina á þeim.“ Áslaug segist hafa kynnst föngunum mjög vel og stéttaskipting fangelsisins birtist henni fljótt. „Foringjar fanganna stjórnuðu fangelsinu algjörlega en fanga- verðirnir réðu engu. Foringjarnir bjuggu í rosalega flottum klefum með sturtu og sjónvarpi og öllum búnaði. Þeir gátu fengið til sín vændiskonur og hvað sem þeim datt í hug.“ Áslaug segir fangelsisyfirvöld hafa verið fullkomlega máttlaus gagnvart valdaskiptingunni og lítið hafi þýtt að reyna að breyta henni. „Næsti hópur var hinn þögli meirihluti en neðstir í virðingarstiganum voru sam- kynhneigðir og kynferðisglæpamenn sem bjuggu við algjörlega ömurlegar aðstæður. Samkynhneigð var ólögleg í Georgíu á þessum tíma og þeir voru hafðir tuttugu saman í klefa og látnir vinna öll skítverkin í fangelsinu.“ Fannstu aldrei fyrir hræðslu við að vinna í svona umhverfi? „Ég fann aldrei fyrir neinu nema þakk- læti frá föngunum fyrir starf Rauða krossins,“ segir Áslaug en viðurkennir að það hafi stundum birst á undarlegan hátt. „Einu sinni var ég rænd utan fang- elsisins og taskan mín með lyklum að fangelsinu var tekin af mér. Þetta spurð- ist fljótt út og einn daginn var ég kölluð inn til foringjans í fangelsinu sem við sáum eiginlega aldrei. Hann hafði frétt af þessu og sagði mér að enginn fengi að koma svona fram við hans konur. Hann sagðist hafa sambönd utan fangelsisins og var óbeint að bjóðast til að láta ganga í skrokk á þeim sem hefði rænt mig. Ég gat auðvitað ekki annað en afþakkað hjálpina en þetta var mjög merkileg upp- lifun. Ég fékk svona guðföðurtilfinningu fyrir þessum manni sem hafði ofboðs- lega persónutöfra og virkaði algjörlega ósnertanlegur.“ Fangelsaðir án dóms og laga Næsta verkefni Áslaugar var að ferðast um norðurhluta Íraks og hafa reglulegt eftirlit með aðstæðum fanga í tæplega þrjátíu fangelsum. „Þetta var á valdatíma Var skotmark talibana Áslaug Arnoldsdóttir flúði átakasvæði í Pakistan þegar talibanar hugðust gera árás á hana og aðra sendifulltrúa Rauða krossins. Í við- tali við Þóru Tómasdóttur lýsir hún vinnu sinni með föngum, sameiningu splundraðra fjölskyldna og hjúkrun á stríðshrjáðum svæðum. Saddams Hussein en nokkur ár voru liðin frá Persaflóastríðinu. Í fyrsta sinn fannst mér ég kynnast alvöru grimmd en hún fólst ekki endilega í pyntingum á föngum eða lélegum aðbúnaði þeirra, heldur hittum við menn sem höfðu verið fangelsaðir án dóms og laga og vissu ekkert hversu lengi þeim yrði haldið. Menn sem voru í haldi eingöngu skoðana sinna vegna. Stórt hlutverk Rauða kross- ins var að sjá til þess að menn fengju málsmeðferð og dóma. Við komum á tengslum á milli fanga og fjölskyldna og það var rosalega gefandi að geta flutt föngum fréttir af fjölskyldum þeirra. Stundum var komið á heimsóknum og Rauði krossinn borgaði þá far fyrir fjöl- skyldur sem bjuggu langt í burtu.“ Í fangelsunum fylgdist Áslaug með því að fangarnir fengju mat, kæmust í sturtu og sá til þess að mikið veikir fangar yrðu sendir á sjúkrahús utan fangelsanna og fengju sérhæfðari læknisaðstoð. „Þá fóru oft af stað mjög sérstakar samningaviðræður þar sem fang- elsisyfirvöld voru sannfærð um að fangarnir myndu reyna að flýja. Mikilvægur liður í starfi okkar var að ná því í gegn og koma á sam- skiptum við sjúkrahús utan veggja fangelsanna. Stundum komu líka upp farsóttir eins og kólera og þá þurftum við að útvega lyf og það sem skorti. Fangelsin voru alltaf neðst á forgangslista stjórnvalda yfir þá sem fengu lyf við slíku.“ Þótt fangarnir hafi verið þakk- látir fyrir starf hennar voru fang- elsismálayfirvöld ekki alltaf jafn spennt fyrir eftirliti Rauða kross- ins. „Vegna alþjóðasamninga urðu þeir að hleypa okkur inn og leyfa okkur að sjá allt sem við vildum sjá. Þeir höfðu því aðeins eitt vopn gegn okkur. Ég heimsótti fangana inn í klefa ásamt annarri konu sem var túlkur. Fangaverðirnir voru ekkert að flýta sér að opna fyrir okkur þegar heimsóknunum lauk og þetta fannst mér auðvitað mjög Áslaug hefur unnið á gjörgæsludeild Landspítalans í mörg ár og starfar þar þegar hún er ekki sendifulltrúi Rauða krossins. Áslaug Arnolds- dóttir að störfum í Pakistan eftir sjálfsmorðsárás. Starfsmenn Rauða krossins veittu fræðslu um heilbrigðismál í Úganda. 24 viðtal Helgin 11.-13. mars 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.