Fréttatíminn - 11.03.2011, Qupperneq 42
12 viðhald húsa Helgin 11.-13. mars 2011
A1 Málun ehf. er fyrirtæki sem sérhær sig í öllu
sem við kemur málaraiðninni, s.s. nýmálun, lökkun,
sandspörtlun, málun friðaðra húsa, viðar- og
marmaramálun, endurmálun inni jafnt sem úti.
660 - 1787
A1 Málun
a1malun@a1malun.is
Tilboð eða tímavinna.
Við gerum þér tilboð
að kostnaðarlausu!
G óður undirbúningur í hví-vetna er mjög mikilvægur fyrir viðhald húseigna og
einnig það að velja góðan og ábyrg-
an verktaka. Of mörg dæmi eru um
viðhaldsframkvæmdir sem farið
hafa illa af stað og endað illa og
er í flestum tilfellum um að kenna
slælegum undirbúningi og einnig
röngu vali á verktökum. Það er
skammgóður vermir að spara á und-
irbúningsstiginu. Þar er grunnurinn
lagður og ef hann er veikur er ekki
við góðu að búast.
Hvernig á að standa að undir-
búningi?
Ekki er til nein einhlít regla um það.
Verk eru mismunandi og aðstæður
sömuleiðis. Í fjöleignarhúsum þarf
að liggja fyrir óyggjandi og lögleg
ákvörðun. Þegar hún liggur fyrir
er rétt að fá hlutlausan sérfræðing
til að meta ástand hússins og við-
gerðarþörf. Í því ástandsmati felst
yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt
sundurliðun verkliða með áætluðum
magntölum. Húseigendur eru hvatt-
ir til að snúa sér til tæknimanna og
fyrirtækja sem framkvæma slíkt
mat en framkvæma þau ekki sjálfir
eða fá fúskara til þess.
Sé um minni verk að ræða er hægt
að óska eftir tilboðum frá verktaka,
viðHald Góður undirbúninGur er lykilatriði
Undirbúningur og
framkvæmdir
Húseigendum ber að forðast eins og heitan eldinn að eiga viðskipti við aðila sem ekki hafa fullnægj-
andi fagréttindi og réttindi til að starfrækja fyrirtæki.
Án fullgilds
reiknings
hefur húseig-
andi ekkert í
höndunum.
byggð á magntölum og verklýsingu samkvæmt
ástandsmati. Við stærri verk eru úttektaraðil-
arnir jafnan fengnir til að fullgera útboðs- og
verklýsingu og standa að útboði. Mikilvægt er
fyrir eigendur að gæta þess að viðurkenndir
meistarar standi fyrir viðhaldsverkum þar sem
slík verk eru oft mjög vandasöm. Þá er ekki
síður mikilvægt að leitað sé til hæfra ráðgjafa
er hafa næga þekkingu til úttekta.
Svartir sauðir
Í þessum geira eða bransa eru því miður margir
svartir sauðir sem oft hafa enga eða takmark-
aða fagþekkingu á viðgerðum. Þessir aðilar
bjóða gjarna töfralausnir, bæði í efnum og að-
ferðum. Húseigendur þurfa að varast þessa að-
ila. Yfirleitt stenst fátt, enginn verksamningur
er gerður og jafnvel er um að ræða vinnu án
reiknings, sem er ekki eingöngu ólöglegt held-
ur stórvarasamt. Án fullgilds reiknings hefur
húseigandi ekkert í höndunum sem sannar
hvað gert var eða að viðkomandi verktaki hafi
yfirleitt komið nálægt verkinu og húsinu.
Reikningslaus viðskipti eru lögbrot og
stórvarasöm
Því miður eru töluverð brögð að reikningslaus-
um viðskiptum og virðast sumir húseigendur
telja sig spara á því. Rétt er að ítreka að yfirleitt
ofmetur verkkaupi hag sinn í þeim viðskipt-
um. Verkkaupi stendur eftir án nokkurs eða
veikburða réttar gagnvart verktaka og ábyrgð
á verki er engin. Einnig er mikilvægt að benda á
að virðisaukaskattur fæst aðeins endurgreiddur
af vinnu við nýsmíði, endurbætur og viðgerðir
á húsnæði, ef reikningar frá verktaka eru full-
gildir.
Forðist fúskara, vandið val verktaka
Húseigendum ber að forðast eins og heitan eld-
inn að eiga viðskipti við aðila sem ekki hafa
fullnægjandi fagréttindi og réttindi til að starf-
rækja fyrirtæki. Að velja verktaka er ekki auð-
velt verk. Alls ekki er víst að sá sem býður lægst
sé með hægstæðasta tilboðið. Notar hann rétt
efni? Er hann vandaður og traustur? Má treysta
því að hann hafi fjárhagslegt bolmagn til að
ljúka verkinu? Er hann með langan skuldahala
á eftir sér? Afla þarf upplýsinga um þessi at-
riði þegar verktaki er valinn. Skoða ber alla
þætti sem þýðingu geta haft en ekki bara ein-
blína á tilboðsfjárhæðina. Það er hægurinn á
fyrir ábyrgðarlausa fúskara að bjóða lágt og
lofa miklu. Um það vitna sorglega mörg dæmi.
aðkoma byggingarfulltrúa
Vegna steypuviðgerða, sem hafa í för með sér
niðurbrot og endurgerð hluta burðarvirkja,
klæðninga og gluggaskipta verður að afla
byggingarleyfis. Ef fyrirhugaðar eru viðgerðir
á sprungum og múr nægir að tilkynna það til
byggingarfulltrúa með skriflegri greinargerð
um eðli verksins, hver hafi með því eftirlit og
sjái um framkvæmd þess. Þess er krafist að
iðnmeistarar standi fyrir framkvæmdum slíkra
viðhaldsverka. Þeir skulu hafa sérþekkingu
á viðhaldsvinnu og árita yfirlýsingu hjá bygg-
ingarfulltrúa um ábyrgð sína.
Virðisaukaskattur fæst aðeins endurgreiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og
viðgerðir á húsnæði ef reikningar frá verktaka eru fullgildir. Ljósmynd/Hari
Heilræði
til HúsfélaGa
1.
Fá hlutlausan sérfræðing
til að meta ástand eignar-
innar og viðgerðarþörf.
2.
Við minni verk er hægt
að óska eftir tilboðum
frá verktökum byggð á
magntölum og verklýs-
ingu. Við stærri verk fer
yfirleitt fram útboð.
3.
Meta þarf tilboðin í sam-
hengi við útboðsgögnin,
heildarverð, einingaverð,
uppsetningu tilboðsins og
verktíma.
4.
Þegar ákveðið hefur verið
hvaða tilboði skal taka,
er gengið til samninga
við viðkomandi verktaka.
Seint verður nægjanlega
brýnt fyrir fólki mikilvægi
þess að gera skriflegan
samning við verktaka
hvort sem um lítil eða stór
verk er að ræða.
5.
Eftirlit með framkvæmd
þarf að vera vel skilgreint
og í föstum farvegi og oft
er ráðinn til þess óháður
aðili.
6.
Lokauppgjör fer fram
eftir að verki telst
lokið. Mikilvægt er að
taka út framkvæmdina og
frágang á verkinu áður en
lokagreiðsla fer fram.