Fréttatíminn - 11.03.2011, Síða 53
Borgaryfirvöld sinna stóru
málunum
„Má færa sorpílát nær götu?“
Skipulagsráð borgarinnar hefur sam-
þykkt að fá faglegt álit á því hvort
heimilt sé að færa sorpílát nær götu.
Snyrtimennskan í fyrirrúmi
„Snyrtistofur illa verðmerktar“
Mikill misbrestur er á því að
snyrtistofur birti upplýsingar um verð
á þeirri þjónustu og vörum sem þær
bjóða upp á.
Ekki fullreynt með heims-
meistarakeppnina
„Dýrkeypt áskrift að HM í mars“
Hann var ekki ýkja sáttur þegar honum
barst rukkun fyrir áskrift að sportrás-
inni fyrir marsmánuð.
Var verið að borga út?
„Bankastjórar hunsa þingnefnd“
Bankastjórar Arion banka og Íslands-
banka mættu ekki á fund viðskipta-
nefndar sem þeir höfðu verið boðaðir á.
Þarf ekki að
stofna
styrktar-
sjóð?
„Steinþór
launalægst-
ur banka-
stjóra“
Steinþór
Pálsson,
bankastjóri
Landsbankans,
er með 1,1 milljón
króna í laun á mán-
uði. Hann er launalægstur bankastjóra
þriggja stærstu bankanna.
VG á heimavelli
„Ofurlaunum mætt með viðeigandi
sköttum“
Þingflokkur Vinstri grænna samþykkti
ályktun á fundi „að gefnu tilefni“ eins
og segir í tilkynningu frá þingflokknum.
Í ályktuninni segir að mæta verði ofur-
launum með viðeigandi sköttum.
Timburmenn?
„Húsleit hjá Byko og Húsasmiðjunni“
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjór-
ans og Samkeppniseftirlitið hafa gert
húsleit í húsnæði Byko, Húsasmiðj-
unnar og Úlfsins byggingarvara.
Kennt eða kennt um?
„Gengu út þegar Oddný kom í
ræðustól“
Á fagráðstefnu reykvískra kennara,
sem haldin var á Hótel Nordica, stóð
stór hluti fundarmanna upp og gekk úr
salnum þegar Oddný Sturludóttir, for-
maður menntaráðs Reykjavíkurborgar,
kom í ræðustól.
Vikan sem Var
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te
Nicotinell er
samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
®
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að
draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir nikótíni. Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta eða að draga
úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum
innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp - ert með
hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi eða með
barn á brjósti máttu einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
Gegn krabbameini í körlum
Í mars renna 100 kr. af hverjum seldum pakka af Nicotinell
beint til átaksins Mottumars
100 KRÓNUR