Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 8
VEISTU
8
FRÉTTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIMMTUDACUR
1. Hver leiðir stjórnarandstöðuna í
Rússiandi?
2. Hver hefur stofnað fyrirtœkið
Kozy vörur ehf. ásamt dóttur sinni?
3. Hvað heitir nýjasta kvikmynd
Brad Pitt?
SVÖR
ZJOM PP°M
■£ uossnuSDiM jptfrsy iuidadn idxdiv ■i
RAFMACNSLAUST Þúsundir manna eru
án rafmagns og símasambands á þeim
svæðum sem verst urðu úti af völdum
stormsins á dögunum. híéttabiaðið/ap
Eftirköst storms í Noregi:
Þúsundir enn
án rafmagns
norecur Enn eru um 2.500 heim-
ili án rafmagns í Norður-Noregi
eftir að stormurinn Dagmar reið
yfir landið um jólin.
í samtali við fréttaveituna NTB
segir upplýsingafulltrúi Statnetts
að unnið sé hörðum höndum að
því að koma dreifikerfinu aftur
í gang, en um 5.000 voru án raf-
magns framan af degi.
A vef Aftenposten segir að um
20.000 heimili hafi verið án raf-
magns í tvo sólarhringa eftir
óveðrið. Skaðabætur eru í boði
fyrir þau sem hafa verið án raf-
magns í tólf tíma og hækkar stig
af stigi eftir það.
Mikil röskun varð einnig á
fjarskiptum á þeim svæðum sem
illa urðu úti. Aftenposten segir
að rúmlega 21.000 farsímaáskrif-
endur og 7.200 netáskrifendur
Telnor hafi enn verið án sam-
bands í gær. - þj
Hætt verður að niðurgreiða fyrstu tæknifrjóvgun hjá fólki í sparnaðarskyni:
Borga tæknifrjóvgun fullu verði
heilbrigðismál Hætt verður að niðurgreiða fyrstu
tæknifrjóvgun barnlausra para og einhleypra kvenna
um áramót. Þá verður alfarið hætt að niðurgreiða
tæknifrjóvgunarmeðferðir fyrir fólk sem á barn
fyrir, en þátttaka Sjúkratrygginga í þeim tilvikum
hefur verið 15 prósent af kostnaði.
Sjúkratryggingar íslands greiða 65 prósent af
kostnaðinum við aðra til fjórðu tæknifrjóvgunarmeð-
ferð, ef fólk þarf á þeim að halda. Áætlað er að útgjöld
Sjúkratrygginga íslands muni lækka um 30 milljónir
króna á ári vegna þessara breytinga.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur
gefið út reglugerð vegna þessa, en það er nauðsyn-
legt þar sem enginn samningur er í gildi milli Sjúkra-
trygginga og ART Medica, læknastofunnar sem sér
um tæknifrjóvganir hér. Samningurinn rann út fyrr á
EKKI NIÐURGREITT Þrjátíu milljónir króna munu sparast við
breytingar á þátttöku í kostnaði við tæknifrjóvganir.
NORCIPHOTOS/CETTY
árinu og ekki náðust nýir samningar. Þá setti velferð-
arráðherra reglugerð til bráðabirgða. Reglugerðin nú
gildir út árið 2012. - þeb
1.173 bílará dag að meðaltali:
Minni umferð
um Víkurskarð
SAMGÖNGUR Meðalumferð um Vík-
urskarð verður líklega 1.173 bílar
á sólarhring á þessu ári, sam-
kvæmt áætlun Vegagerðarinnar.
Umferðin hefur dregist saman
um 6,6 prósent milli ára. Meira
hefur dregið úr umferð um helgar
en virka daga og dregur Vega-
gerðin þá ályktun að einkaumferð
hafi dregist hlutfallslega meira
saman en atvinnutengd umferð.
Aldrei hafa fleiri bílar farið um
Víkurskarð en í júlí á þessu ári,
þegar 89.208 bílar fóru þar um.
- þeb
Hæsta tilboð í endurskoðun
fjórfalt hærra en lægsta boð
Tveir sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Kópavogs segja „hirð-endurskoðanda“ Samfylkingar, VG og Framsóknar
með „algjörlega óraunhæft“ tilboð í endurskoðun fyrir bæinn. Fullyrðingar þeirra sagðar vera aðdróttanir.
KÓPAVOGUR Tveir bæjarfulltrúar telja að Deloitte hafi boðið óeðlilega lágt til að
tryggja fyrirtækinu endurskoðun fyrir Kópavogsbæ. Deloitte ætli hins vegar að bæta
sér það upp með öðrum verkefnum hjá bænum. fréttablaðib/vilhelm
KÓPAVOGUR Tilboð Deloitte hf. í
endurskoðun Kópavogsbæjar árin
2011 og 2012 var nærri fjórum
sinnum lægra en kostnaðaráætl-
un bæjarins og tilboð Ernst Young
sem bauð hæst.
Gunnar I. Birgisson og Aðal-
steinn Jónsson úr Sjálfstæðis-
flokki bókuðu á sfðasta bæjar-
stjórnarfundi að þeir teldu tilboð
Deloitte „algjörlega óraunhæft“.
Tilboð fyrirtækisins var 8,6 millj-
ónir króna. Kostnaðaráætlun var
hins vegar 32,8 milljónir og tilboð
Ernst Young rúmlega 33,7 millj-
ónir. KPMG bauð 13,3 milljónir
og PWC bauð 23,7 milljónir.
Gunnar og Aðalsteinn sögðu til-
boð Deloitte vera svipaða upphæð
og þyrfti til að endurskoða fyrir-
tæki með nokkur hundruð milljóna
króna veltu. Kópavogsbær velti
hins vegar yfir tuttugu milljörð-
um króna og sé með 7.000 reikn-
ingslykla.
„Annaðhvort verður endurskoð-
unin nánast engin eða hins vegar
fær fyrirtækið (Deloitte) önnur
verkefni hjá bænum til að bæta sér
upp lágt tilboð. Eins og alkunna er
eru Deloitte hirð-endurskoðendur
Samfylkingar, Vinstri-grænna 'og
Framsóknarflokks, sérstaklega
eftir pantaða skýrslu frá þeim í
janúar 2009 um viðskipti Frjálsrar
miðlunar við Kópavogsbæ," bók-
uðu Gunnar og Aðalsteinn og
vísuðu þar til skýrslu um fyrir-
tæki dóttur Gunnars.
Fulltrúar meirihlutans höfnuðu
fullyrðingum Gunnars og Aðal-
steins. „Bókun af þessu tagi
dæmir sig sjálf, uppfull af
dylgjum. Við berum fullt traust
til allra þeirra aðila sem buðu í
verkið en tökum einfaldlega til-
boði lægstbjóðanda,“ bókuðu
Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn
Karlsson og Pétur Ólafsson úr
Samfylkingu, Rannveig Ásgeirs-
dóttir úr Lista Kópavogs-
búa, Erla Karlsdóttir úr Næst-
besta flokknum og Ólafur Þór
Gunnarsson úr VG.
Þá hafði Ómar Stefánsson úr
Framsóknarflokki einnig athuga-
semdir við framlag sjálfstæðis-
mannanna tveggja. „Þær aðdrótt-
anir Gunnars og Aðalsteins um
að endurskoðun Deloitte verði
nánast engin og að fyrirtækið fái
önnur verkefni hjá bænum eða að
það sé hirðendurskoðendur hjá
Framsóknarflokknum og ein-
hverjum öðrum flokkum dæma
sig sjálf og hafa ekkert með
útboðið að gera,“ bókaði Ómar.
Eftir þessar bókanir og nokk-
ur orðaskipti samþykkti bæjar-
stjórnin gegn atvæðum Gunnars
og Aðalsteins að semja við Delo-
itte um endurskoðunina. Meðal
þeirra sem greiddu atkvæði með
samningunum voru hinir tveir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á á
fundinum, þau Ármann Kr. Ólafs-
son og Karen Halldórsdóttir.
gar@frettabladid.is
CRJSPY
[CWCMAir:
LYNGHAGII GÆR Unnið var við snjómokstur I húsagötum I öllum hverfum Reykja-
víkur í gær. fréttabuðið/stefAn
Hátt í 30 snjómoksturstæki að störfum síðustu daga:
Snjómokstur gengur vel
samgöngur „Núna í dag [í gærj og
síðustu tvo daga höfum við verið
að vinna í húsagötunum og erum
loks að ná tökum á þeim. Við telj-
um að á morgun [í dag] takist
okkur loks að ná yfir allt saman,“
segir Þorsteinn Birgisson, yfir-
maður þjónustumiðstöðvar Fram-
kvæmda- og eignasviðs Reykjavík-
urborgar.
Fjölmennur hópur starfsmanna
Reykjavíkurborgar hefur unnið
við snjómokstur síðustu daga en
þegar mest lét voru rúmlega 30
snjóruðningstæki í notkun á götum
og gangstígum. Snjókoma síðustu
daga hefur hins vegar gert verk-
efni þeirra erfiðara en í gærnótt
var ekki snjókoma sem gerði
hópnum kleift að hefja snjómokst-
ur strax klukkan sex um morgun-
inn.
„Við höfum lagt mesta áherslu
á stofnleiðir og strætisvagnaleið-
ir þannig að húsagöturnar hafa
orðið aðeins eftir. Við unnum hins
vegar í öllum hverfum í gær og
erum að ná tökum á þessu,“ segir
Þorsteinn.
Þorsteinn segir að fjöldi fólks
hringi inn daglega vegna slæmrar
færðar í húsagötum. Hann segir
fámennan hóp vera með læti en
ilestir sýni starfinu mikinn skiln-
ing og þolinmæði.
Spurður hvort menn verði klárir
í áframhaldandi mokstur haldi
áfram að snjóa næstu daga segir
Þorsteinn það alveg klárt, vaktin
verði staðin. - mþi