Fréttablaðið - 29.12.2011, Side 30
MARKAÐURINN
29. DESEMBER 2011 FIMMTUDAGUR
Aukið líf færist í Kauphöllina
í lok árs hafa komið fram vísbendingar um aukinn þrótt á fjármálamarkaði. í desember fór fyrsta nýskráningin í Kauphöllina eftir hrun fram
auk þess sem íslandsbanki gaf út sértryggð skuldabréf. Enn er þó lítil velta á hlutabréfamarkaði og ríkið allsráðandi á skuldabréfamarkaði.
KAUPHÖLUN í DESEMBER Bjöllunni í Kauphöllinni var hringt tvisvar í desember eftir að
hafa verið óhreyfð frá bankahruni. Á myndinni er Páll Harðarson (til hægri), forstjóri
Kauphallarinnar, ásamt Finni Árnasyni, forstjóra Haga. fréttablaðið/ova
FJÁRMÁLAMARKAÐIR Velta á hlutabréfamarkaði tvöfaldaðist á árinu 2011 en er þó enn
einungis brot af þvi sem hún var fyrir hrun. Velta minnkaði á skuldabréfamarkaði á árinu
2011 þótt ágæta ávöxtun hafi verið að fá I verðtryggðum bréfum. fréttablaðið/pjetur
FRÉTTASKÝRING
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
Hinn 15. desember síð-
astliðinn hófust við-
skipti með bréf í
Högum í Kauphöll-
inni. Urðu Hagar þar
með fyrsta fyrirtækið til að vera
skráð í Kauphöllina frá banka-
hruni. Sjö dögum fyrr lauk al-
mennu útboði á 30 prósenta hlut í
fyrirtækinu en seljandi var Eigna-
bjarg, dótturfélag Arion banka.
Eftirspurn eftir hlutunum reynd-
ist mikil og tóku um 3.000 aðilar
þátt í útboðinu. Bárust tilboð fyrir
um 40 milljarða króna, sem er átt-
falt hærri upphæð en sem nemur
verðmæti hlutarins, sem var seld-
ur á 4,9 milljarða króna á genginu
13,5, auglýstu hámarksgengi.
„Þessi áhugi staðfestir það sem
við höfum fundið; að það er mik-
ill áhugi hjá fjárfestum að koma
inn á hlutabréfamarkað. Þeir eru
orðnir óþreyjufullir að fá fleiri
fjárfestingarkosti og þessi skrán-
ing skemmir auðvitað ekki fyrir,“
segir Páll Harðarson, forstjóri
Kauphallarinnar, og heldur áfram:
„Þetta er líka gleðilegt fyrir okkur
í Kauphöllinni. Það má segja að
þetta ár hafi markað ákveðin
kaflaskil hjá okkur, þar sem hlut-
irnir hafa virkilega farið að ger-
ast á bak við tjöldin. Mikill undir-
búningur hefur verið unninn við
að búa í haginn fyrir nýskráning-
ar og nú sjáum við þá vinnu bera
ávöxt þótt næsta ár verði vissulega
viðburðaríkara."
Búist er við fjölda nýskráninga í
Kauphöllina á næstu misserum en
talið er að á annan tug fyrirtækja
hafi áhuga á skráningu á næst-
unni. Þannig er stefnt að því að á
bilinu 40 til 50 félög veröi skráð í
Kauphöllinni árið 2015.
„Við reiknum með því að á fyrri
hluta ársins komi inn fjárfesting-
arfélögin Horn og Reginn. Síðan
hafa Nl, Eimskip, Reitir og Skýrr
tilkynnt skráningarfyrirætlanir
opinberlega. Og við vitum að fleiri
eru að huga að þessum kosti mjög
alvarlega en hafa kannski ekki
tilkynnt sín áform opinberlega,“
segir Páll og bætir því við að fimm
eða fleiri skráningar gætu átt sér
stað á árinu 2012 og svo yrði þeim
dampi haldið áfram inn í árið 2013.
Það var þó ekki einungis á hluta-
bréfahliðinni sem aukið líf færð-
ist í Kauphöllina. Rúmri viku áður
en viðskipti hófust með Haga var
bjöllunni í Kauphöllinni nefnilega
einnig hringt, í fyrsta sinn frá
bankahruni. Var tilefnið útgáfa ís-
landsbanka á sértryggðum skulda-
bréfum. Voru það fyrstu verðbréf-
in sem fjármálafyrirtæki gefur út
eftir hrun. Fékk bankinn heimild
fyrir útgáfu skuldabréfa að verð-
mæti 10 milljarða króna eh gaf út
bréf að verðmæti 4 milljarða.
Innlán hafa verið undirstaða
fjármögnunar íslensku bankanna
frá hruni en allir stefna þeir að því
að fá aukna breidd í fjármögnum.
Þannig hyggst Arion banki feta í
fótspor íslandsbanka og gefa út
skuldabréf á alþjóðlegum markaði
á næsta ári. í útgáfu Islandsbanka
voru bréfin seld til breiðs hóps fag-
fjárfesta en eftirspurn var talsvert
umfram framboð. Páll Harðarson
segist eiga von á því að fleiri fyrir-
tæki fylgi í kjölfarið.
„Það er þó að vissu leyti erfiðara
að spá fyrir um þróun á skulda-
bréfahliðinni. Ríkið mun áfram
gefa út en það verður sennilega í
minni mæli en í ár, þar sem fjár-
þörf ríkisins er að minnka. Á
fyrirtækjahliðinni er eiginlega
ótrúlegt annað en að hlutirnir
komist á skrið samhliða annarri
þróun á fjármálamarkaði," segir
Páll og bætir því við að aðdrag-
andi skuldabréfaútgáfna sé yfir-
leitt talsvert .styttri en nýskrán-
inga á hlutabréfum. Þá bætir hann
við að Kauphöllin stefni að því að
kynna ýmsar nýjungar á skulda-
bréfamarkaði á næstunni, sem
stuðli vonandi að meira lífi.
Enn lltið að gerast (hlutabréfunum
Einungis sex fyrirtæki mynda nú
úrvalsvísitölu íslenska hlutabréfa-
markaðarins; Icelandair, Marel og
Össur ásamt þremur færeyskum
fyrirtækjum. Hinn 2. janúar næst-
komandi koma Hagar hins vegar
inn í vísitöluna í stað færeyska
flugfélagsins Atlantic Airways.
Heildarmarkaðsvirði þessara fé-
laga eru rúmir 250 milljarðar.
Vísitalan stóð rétt fyrir jól í
915,5 stigum og hafði þá lækk-
að um 1,6 prósent frá ársbyrj-
un. Þótt sú lækkun bendi til við-
burðalítils árs hefur gengi fyrir-
tækjanna verið ólíkt. Þannig hefur
hlutabréfaverð Icelandair Group
hækkað um 63,8 prósent á meðan
BankNordik hefur lækkað um 43,0
prósent. Hlutir í Marel hafa eins
hækkað um 24,5 prósent á árinu
en hlutir í Össuri lækkað um 6,9
prósent.
Velta á hlutabréfamarkaði var
samtals rúmir 57 milljarðar á
árinu út nóvember. Tvöfaldaðist
veltan frá árinu áður en er þó enn
aðeins brot af veltunni fyrir hrun.
Væntar nýskráningar munu lík-
lega stuðla að meiri veltu en ljóst
er að hlutabréfamarkaðurinn
getur vaxið talsvert áður en hann
fer að reisa sér hurðarás um öxl.
Skuldabréfamarkaðurinn líflegri
Skuldabréfamarkaðurinn hefur
verið talsvert líflegri en hluta-
bréfamarkaðurinn síðustu misseri
FRETTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN UFIÐ SJONVARP
TAKTU VISI
Á HVERJUM
M0RGNI!
visir
/ ‘Rá^Lbjdu't (Lxi^iíajnmtu
af frdttum og fjórofni
visir
FJARMALAMARKAÐIR
Skuldabréfavísitölur
3. jan. '08 3. jan.'09 3. jan.'10 3. jan.'11
Vikuleg velta á skuldabréfamarkaði i milljö. króna
150
120
fN CN <N ÍN <N
Þróun hlutabréfamarkaðar 2004 til 2011
o O zz ~ m ZZ :=
O o O O O O o
<N (N fN fN CN 04 fN
O (vj CN «X> 00 Ö
(N <N fN <N T";
(N fN 1 ■— '— •— <N
* Oamla ún/alsvlsitalan (v. ás)
■ Úrvalsvlsitala verðvlsitala
(OMX16) (v. ás) 500
■ Mánaðaiíeg velta I milljörðum
króna (h. ás)
Þróun hiutabréfamarkaðar 2009 til 2011
Úrvalsvísitala verðvlsitala .-..........
1.200
•20
HEIMILD: SEÐLABANKIISLANDS
og velta margföld. Fyrstu ellefu
mánuði ársins 2011 var mánaðar-
leg velta 218 milljarðar króna að
meðaltali. Það er þó heldur minni
velta en í fyrra, þegar hún var
236 milljarðar á mánuði. Heild-
armarkaðsvirði skráðra skulda-
bréfa er um 1.820 milljarðar króna
og óx markaðurinn um tæpa 130
milljarða á árinu. Langstærstur
hluti markaðarins eru skuldabréf
útgefin af ríkissjóði eða íbúða-
lánasjóði. Lítill hluti eru bréf út-
gefin af sveitarfélögum og Lána-
sjóði sveitarfélaga og þá eru við-
skipti með fyrirtækjabréf hafin
aftur í mýflugumynd eins og
áður var vikið að. Alls voru nýir
skuldabréfaflokkar skráðir fyrir
116 milljarða á árinu en auk þess
voru eldri flokkar stækkaðir um
230 milljarða.
Á fyrri hluta árs 2011 lækkaði
verð á meðallöngum og löngum
óverðtryggðum ríkisskuldabréf-
um nokkuð en á haustmánuðum
snerist þróunin við. Verð á stutt-
um óverðtryggðum ríkisskulda-
bréfum sveiflaðist nokkuð fyrri
hluta árs án þess að víkja lengi
frá stöðunni í upphafi. í ágúst
lækkaði verðið hins vegar skarpt
í tengslum við ákvörðun peninga-
stefnunefndar Seðlabankans um
að hefja vaxtahækkunarfasa.
Verðtryggð skuldabréf ríkissjóðs
og íbúðalánasjóðs hafa hins vegar
hækkað nokkuð í verði á árinu,
ekki síst síðustu mánuði. Þann-
ig hefur tíu ára vísitalan hækkað
um meira en 16 prósent á árinu og
fimm ára vísitalan hefur hækkað
um 18 prósent.
Áfram er búist við þ.ví að hiti
og þungi viðskipta á skuldabréfa-
markaði verði með ríkisskulda-
bréf þótt bundnar séu vonir við
að fyrirtækjaútgáfum fjölgi.