Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 6

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 6
Þegar einhver heldur því fram, að hann hafi borið kvenmann á bakinu þrjár mílur, hvort sem það nú er í björtu eða dimmu, og þegar það svo bætist við, að kvenmaðurinn þekkir burðarmanninn ekki aftur, þá bend- ir allt til þess, að atburðurinn sé gott efni í sögu. En þegar kvenmaðurinn er sjálf Lady Sylvia Clavering og karlmaðurinn slíkur sem sessunaut- ur minn, þá verða líkindin að stað- reynd. Merton er maður, sem erfitt er að lýsa. Varla eru margir staðir til í heiminum, sem hann þekkir ekki eins vel og fæðingarbæ sinn. Hann veit deili á öllu og ber skyn á allt. Við þekktumst fremur lítið, þegar þetta gerðist, en þó hafði ég komist að raun um það, að hann kunni að segja frá og var hreinskilinn í hví- vetna. — Blessaðir segir mér nánar frá þessu. Hann hikaði andartak og varð hugsandi á svip. — Ég held að það sé ekkert því til fyrirstöðu, svaraði hann hægt. Það eru tíu ár síðan það gerðist. — Var það ekki einmitt um það bil þegar hún giftist? spurði ég. Hann kinnkaði kolli. — Hún var einmitt að eyða hveitibrauðsdögun- um. Jæja, ef yður langar til þess að heyra um þetta allt, þá er bezt að við förum í klúbbinn minn. — Já, já, það skulum við gera, sagði ég. Við skulum fara strax. Svo borgaði ég reikninginn og við hröðuðum okkur í klúbbinn. — Eruð þér nokkuð kunnugur í Afríku? spurði hann, þegar við vor- um seztir og höfðum dregið hæg- indastólana okkar að arinum. Við vorum einir í herberginu. — Eg hef komið til Egyptalands og dvalið stuttan tíma í Suður- Afriku. Annað ekki. — Jamm. Þetta skeði á Vestur- strönd Afríku, í brezkri nýlendu, sagði hann þegar hann hafði komið pípunni sinni í lag. Og þó ég hafi dvalið á mörgum misjöfnum stöðum um ævina, hefi ég aldrei komið í annað eins hundabæli — nokkúr kofaskrifli niður við sjó meðfram rykugum götum — Um það bil þrjár mílur upp frá þorpinu var fúl mýri, er var eins og upphitað rúm fyrir malaríusýkla. Um þessar mýrar lá vegurinn frá þorpinu og að lágum hæðum. Það er naumast hægt að tala um veg, því að oft virtist manni hann glatað- ur. Og flugurnar sveimuðu eins og ský, þar til komið var upp á hæðirn- ar. Merton glotti. — Mér er yfirleift ómögulegt að skilja, hvernig nokkur hvítur maður gat haldið lífi þar stundinni lengur. Og sannleikurinn er sé, að þeir voru fáir, sem það gerðu. Eina orsökin til þess að Nwambi, eins og þorpið var nefnt, hafði risið upp, var sú, að þama var sæmileg höfn. Loftslagið var skárra þegar komið var Upp fyr- ir mýrarnar. Hinir innfæddu áttu töluverð viðskipti í Nwambi, og 4 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.