Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 31

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 31
heyrt að Downing væri frekur við kvenfólk. Á meðan hún lagfærði kjólinn, sem þrýstist að grannvöxnum líkama hennar, gekk Downing með þjón- inum út úr forsalnum. En hann kom von bráðar aftur og horfði ánægður og brosandi á Jolette Jeffreys, eins og hún væri fágætur listmunur, sem hann hefði keypt til þess að skreyta stofuna með. „Ito segir að kvöldverðurinn sé tilbúinn", sagði hann. „Má ég fylgja yður inn í borðstofuna?" Hann lagði spikaðan handlegginn utan um mitti hennar, en hún vék undan í flýti. „Þér megið ekki láta svona.“ Hún reyndi að hlæja til þess að að vera varkár. Hún hefði aldrei árætt í ferðalagið, ef öll sund hefðu ekki verið lokuð. En hún gat ekki þolað atlot þessa roskna og gróf- gerða auðkýfings. Samt hafði hún ekki efni á því að móðga millj- ónamæring, sem sagður var ráða miklu hjá kvikmyndafélögunum. „Ekki of köld — ekki of feim- in“, sagði hún við sjálfa sig. Hann settist við hlið hennar við borðið, en ekki andspænis henni, og flutti sig smátt og smátt nær henni. Kvöldverðurinn hófst með eocktail, smurðu brauði, styrjuhrognum og rjómarétti. Svo kom hver rétturinn öðrum betri. Jolette vék sér svolítið til hliðar, þegar Downing var kominn svo nærri henni, að hún fann hné hans snerta sig. Hún fór að tala um skrautið á borðinu og kræsingamar. „Ekkert er of gott eða vandað handa yður,“ sagði hann. „Eg sagði Ito, að hann mætti ekkert spara í kvöld." Jolette þorði ekki að drekka nema lítið af kampavíninu. Hún hafði heyrt sögur af stúlkum, sem hefðu drukkið of mikið, þegar þær voru einar með karlmönnum. Hugsunin varð að vera skýr. „Eigum við ekki að snúa okkur að því, sem við ætluðum að tala um“, sagði Jolette í léttum tón. „Eg má ekki vera lengi, því að þá verður ótt- ast um Jolette litlu.“ „Jolette er fallegt nafn“ sagði Downing ofurlítið loðmæltur. Hann hellti í sig hverju koníaksstaupinu á fætur öðru. „Vínið veitir augum yðar gljáa og mýkir hjarta yðar, Jolette Jef- freys!“ „Eg heiti Jolette", sagði hún, „en Jefferson hljómar betur en Jeffreys, í kvikmyndum, finnst yður það ekki?“ „Kvikmyndir! Alltaf þessar fjand- ans kvikmyndir!" hreytti Downing út úr sér. „Þér viljið helst ekki tala um annað en kvikmyndir." „Nú, en þér lofuðuð mér að tala við mig um það, hvernig þér gætuð hjálpað mér, ef ég kæmi hingað til kvöldverðar. Og það veit sá sem allt veit, að ég þarf að fara að vinna. Óheppnin hefur elt mig.“ „Já, þér eigið það sannarlega skil- ið, að eiga góða daga“, sagði Down- ing. „En segið mér nú meira frá yður HEIMILISRITIÐ 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.