Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 19

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 19
Lava-He, nema Vao drottning bjóði svo. Kom og seg mér frá því, sem gerizt í hinum dularfulla heimi hin- um megin við hafið, ó, þú ókunni maður!“ Hún lagði höndina á handlegg \ hans. Bruce vék aftur á bak og sagði ákveðinn: „Eg er ekki sá eini sem öldurnar köstuðu á land á Lava-He, drottn- ing!“ Vao leit upp og horfði í fyrsta sinn á stúlkuna, sem stóð á milli tveggja svertingja, titrandi eins og lauf í vindi og starði með augun galopin af skelfingu á hina hvítu drottningu. í fyrsta skipti veitti Vao henni nú eftirtekt. Á broti af sekúndu hvarflaði augnaráð hennar um grannan vöxt hennar, og föla smá- gerða andlitið, sem var umgirt þykku, dökku, stuttkliptu hári. Svo ypti hún öxlum. „Eg þarfnast hennar ekki“, sagði hún kæruleysislega, „það er alltof mikið af kvenfólki á Lava-He.“ Hún kipptist við þegar maðurinn snerti snögglega handlegg hennar. „Mér hefur verið trúað fyrir þess- ari stúlku, drottning — hún er sú, sem ég ætla að giftast, án hennar myndi ég fremur kjósa dauðann en lífið.“ Vao leit hvössum augum á hann og næstum ósýnilegum, tvíræðum skugga brá yfir svip hennar. At- h.vgli hennar beindist aftur að stúlk- unni, og í þetta skipti bar augna- ráð hennar ekki vott um, að henni stæði á sama um hana, svo ypti hún aftur öxlum. „Nú, jæja“, sagði hún og sneri sér að stóra manninum sem hún kallaði Make-ci-ia. „Farðu með hana upp í kvenna- bústaðinn." „Getur hún ekki dvalið í yðar nærveru, drottning?“ Vao hnyklaði hinar bogadregnu augnabrúnir sínar. „Eg hef sagt þér, að ég þarfnast hennar ekki“, sagði hún óþolinmóð. „Það er of mikið af kvenfólki á Lava-He. Þær eru illviljaðar. Þær valda mörgum erfiðleikum. En fyrst þú óskar þess, skal verða séð fyrir henni í bústað kvennanna.“ Hún þagnaði, en .þegar hún sá á- hyggjusvipinn á hvíta manninum, bætti hún við hughreystandi: „Það skal verða séð vel fyrir henni — því lofa ég.“ „En —“ Vao klemmdi skyndilega fast sam- an varirnar og það komu hættulegir gneistar í augu hennar. „Hver ert þú sem andmælir Vao hinni almáttugu?“ spurði hún eftir örstutta þögn. „Viltu þá þrátt fyrir allt, að ég drepi þessa konu, ósvífrii ókunni maður? Eg hef sagt, að hún fái góða meðferð í bústað kvenn- anna, og ég er Vao!“ Rödd hennar hækkaði er hún mælti siðustu orðin og hinn granni líkami hennar virtist titra af með- vitundinni um það vald, sem hún hafði. Á þessari stundu var hún drottningin, mikilfengleg í mætti HEIMILISRITIÐ 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.