Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 45
Veðurspádómar dýranna
OÝFLUGUR sjá rigningu fyrir af
meiri nákvæmni en nokkur önn-
ur dýr. Það bregst ekki, að ef von
er á rigningu fer ekki nokkur bý-
fluga úr laup sínum. Og þær sem
eru að safna hunangi fljúga heim,
hvort sem þær hafa fyllt eða ekki.
Ef höfrungar leika sér á yfirborði
hafs í nánd við skip, þá er stormur
í aðsigi.
Ef kóngulær skríða í hópum um
veggi, boðar það rigningu.
Vatnafiskar synda venju fremur
nær yfirborði vatns, þegar von er á
rigningu.
Flugur eru oft mjög áleitnar á
milli skúra eða rétt áður en rign-
ing skellur á.
Hundar veVða latir og syfjaðir
þegar rigning er í aðsigi og eta þá
oft gras. Ennfremur er sagt að hund-
ar spangóli um nætur og grafi hol-
ur á daginn, ef veðrabrigði eru í
nánd.
Nautgripir spá regni þegar þeir
sleikja framlappirnar og sumir segja
þegar þeir liggja á hægri hlið.
Kettir verða venju fremur syfjaðir
fyrir rigningu og sleikja sig þá mjög
vandlega.
Mýflugur spá góðu og stöðugu
veðri, þegar þær sveima í þykkum
mekki um sólarlagsbil. Ef þær
fljúga mjög hátt að kvöldi, er von
á þurrki og hita, en rigningu ef þær
fljúga lágt og stinga svo að svíður
sáran undan.
Maðkar og sniglar koma oft upp
á yfirborð jarðar skömmu fyrir rign-
ingu.
Hrafninn flýgur árla og hefur hátt, *
ef dagurinn verður hlýr, en fljúgi
hann lágt og láti lítinn, má búazt
við rigningu. Þegar hrafninn dvelur
við ár og vötn, einkum ef hann baðar
sig oft, er mikil úrkoma væntanleg.
Svínin spá regni ef þau róta upp
gólfsallanum, svo framarlega sem
hann er þurr. Þegar þau hlaupa
fram og aftur og reka trýnið upp í
loftið hrínandi, er það merki þess að
þau eigi von á stormi.
Ef svanir synda rösklega móti
vindi, er það öruggt tákn þess að
rigning sé í aðsigi.
Þegar fiðrildi fljúga snemma að
morgni, verður fagurt veður um dag-
inn.
Uglur væla mikið á næturþeli, ef
veðrabrigði eru í nánd.
Endur spá regni ef þær fljúga
þannig, að afurhlutinn er ofan í
vatninu. Einnig ef þær kafa oft og
hafa mikinn hávaða í frammi.
HEIMILISRITIÐ
43