Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 58

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 58
VASABOKIN Á MEÐAL fjölkvænismanna, eink- ■r*’ um Múhameðstrúarmanna, tíðkast það, að kona biðji mann sinn um að kvænast fleiri konum. Stafar þessi bón oftast af því, að konan á of erfitt við bústörfin. Ef maðurinn verður ekki við þessari ósk, getur konan krafizt skilnaðar. A MERÍSKT tímarit (Colliers) full- ** yrðir, að 90% af öllum skyrtum, sem framleiddar eru í heiminum, séu með áföstum flibba. Fyrir 20 árum, segir sama tímarit, voru hinsvegar aðeins 20% af skyrtum með áföstum flibba. Eftir þessu að dæma, erum við íslendingar 15—20 ár á eftir tízkunni í þessu efni. /^RAFSKRIFT í kirkjugarðinum í Síðumúla í Borgarfirði: „Hér er öldungur æruverðugur til hvíldar borinn hinsta sinni, að kvöldi líf- dagsins langa og merka. Enn andi lifir hjá lifanda guði. Það er heið- ursbóndinn Halldór Pálsson. Hann var fæddur 20. apríl 1773, giptur 11. júlí 1800 yngisstúlku Þórdísi Einars- dóttur. Hún var fædd 1772, andaðist 7. júní 1852 og nú hvílir hér hans við síðu, er hún sælli sambúð gladdi í 6 ár og 50. Hann deyði 7. júlí 1863. Ástkær faðir, afi og lang- afi 92 afkomenda, hvurra 47 eftirlif- andi fagna hans frelsisstund, en 45 samgleðjast honum á sælunnar landi. Sælir eru þeir sem drottni deyja. E. G. E.“ IV'ANADA er þriðja stærsta land jarðarinnar. Rússland og Kína eru stærri. Mikill hluti landsins er auðn eða afar strjálbyggður. íbúar eru aðeins tíu milljónir. Lítið eitt fleiri en í London einni. Aðalútflutningsvara Kanada- manna er korn, einkum hveiti. Einn- ig er mikið flutt út af timbri, grá- vöru, málmum og fiski. Timburiðn- aður þar hefur aukizt afar mikið við hina auknu pappírsnotkun í heiminum. Helstu viðskiptalönd eru Bretland og Bandaríkin. ■\TOKKRIR hlutar af líkamanum * ' lifa í klukkustundir, jafnvel daga, eftir að maðurinn er nár. Það er hægt að finna lifandi sellur í á- kveðnum líffærum meira en tveim vikum eftir andlát mannsins. A LGENGUSTU flugvélasprengj- '**' urnar eru um þessar mundir eitt tonn að þyngd. Hafa þær að ýmsu leyti reynst jafnvel og betur en fjög- urra og átta tonna sprengjur. Áætl- að hefur verið að ef einni slíkri sprengju er kastað til jarðar úr flug- vél, sem fer með 500 km. hraða í 6000 metra hæð, nægi hún til þess að lyfta einu tonni 10 kílómetra í loft upp. 56 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.