Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 61
Eruð þér góð húsmóðír?
f ESIÐ eftirfarandi spurningar og
■L“' svarið þeim af einlægni. Þér fáið
2 stig fyrir hverja spurningu sem
þér svarið játandi, 1 stig fyrir hverja
þeirra, sem þér getið ekki svarað
ákveðið og ekkert stig fyrir þær sem
þér svarið neitandi.
Ef þér fáið samtals 21—28 stig,
eruð þér prýðileg húsmóðir. Ef þér
fáið 8—20 stig, er naumast þörf fyr-
ir manninn yðar að kvarta, en ef
þér fáið færri en 8 stig verðið þér
að breyta um vinnubrögð og betra
yður til muna.
1) Munið þér ávallt eftir afmælis-
degi mannsins yðar?
2) Eigið þér erfitt með að sigrast
á löngun yðar í nýjan kjól, ef þér
þurfið hans ekki með, en hafið hins-
vegar peninga til kaupanna?
3) Þykir yður ekki síður vænt um
manninn yðar nú, en þegar þér vor-
uð trúlofuð?
4) Getið þér stillt reiði yðar, ef
hann hefur orð á því að hatturinn,
sem yður langar í, sé of dýr?
5) Hafið þér miðdegismatinn allt-
af tilbúinn þegar maðurinn yðar
kemur heim?
6) Getið þér stillt yður um að
segja vinkonu yðar frá því, ef eitt-
hvert ósamkomulag hefur orðið milli
yðar og mannsins yðar?
7) Eruð þér svo dugleg að mat-
reiða, að maðurinn yðar hrósar yður
fyrir matinn?
8) Gætið þér þess að aldrei vanti
hnappa á föt mannsins yðar?
9) Fylgið þér manni yðar jafnt að
málum í blíðu og stríðu?
10) Eruð þér jafn umhyggjusöm
um útlit yðar inni sem úti?
11) Leyfið þér manninum yðar að
fá sér neðan í því, ef hann langar
til þess?
12) Má maðurinn yðar vera á
skyrtunni inni?
13) Ef maðurinn yðaf er þreyttur
og er illa við að fara út, sitjið
þér þá heima, jafnvel þótt yður
langi til þess að fara út?
14) Varizt þér að snerta nokkuð
á skrifborði mannsins yðar eða í
hirzlum hans?
SPURNING AR oó SV0R
AÐ er ætlunin að birta hér fram-
vegis, undir fyrirsögninni
„Spurningar og svör“, ýmsar spurn-
ingar frá lesendum. Svör við þeim
verða birt um leið.
Ritstjóra þessa dálks er í sjálfs-
vald sett, hvaða spurningum hann
svarar, en mun þó reyna að leysa úr
flestum þeim vandamálum, sem
send verða til úrlausnar.
Öllum er frjálst að spyrja og nota
dulnefni. Ef spyrjandinn óskar held-
ur að fá bréflegt svar, þarf hann
að senda burðargjald og heimilis-
fang sitt. Þagmælsku um nöfn er þá
heitið.
HEIMILISRITIÐ
59