Heimilisritið - 01.03.1943, Side 61

Heimilisritið - 01.03.1943, Side 61
Eruð þér góð húsmóðír? f ESIÐ eftirfarandi spurningar og ■L“' svarið þeim af einlægni. Þér fáið 2 stig fyrir hverja spurningu sem þér svarið játandi, 1 stig fyrir hverja þeirra, sem þér getið ekki svarað ákveðið og ekkert stig fyrir þær sem þér svarið neitandi. Ef þér fáið samtals 21—28 stig, eruð þér prýðileg húsmóðir. Ef þér fáið 8—20 stig, er naumast þörf fyr- ir manninn yðar að kvarta, en ef þér fáið færri en 8 stig verðið þér að breyta um vinnubrögð og betra yður til muna. 1) Munið þér ávallt eftir afmælis- degi mannsins yðar? 2) Eigið þér erfitt með að sigrast á löngun yðar í nýjan kjól, ef þér þurfið hans ekki með, en hafið hins- vegar peninga til kaupanna? 3) Þykir yður ekki síður vænt um manninn yðar nú, en þegar þér vor- uð trúlofuð? 4) Getið þér stillt reiði yðar, ef hann hefur orð á því að hatturinn, sem yður langar í, sé of dýr? 5) Hafið þér miðdegismatinn allt- af tilbúinn þegar maðurinn yðar kemur heim? 6) Getið þér stillt yður um að segja vinkonu yðar frá því, ef eitt- hvert ósamkomulag hefur orðið milli yðar og mannsins yðar? 7) Eruð þér svo dugleg að mat- reiða, að maðurinn yðar hrósar yður fyrir matinn? 8) Gætið þér þess að aldrei vanti hnappa á föt mannsins yðar? 9) Fylgið þér manni yðar jafnt að málum í blíðu og stríðu? 10) Eruð þér jafn umhyggjusöm um útlit yðar inni sem úti? 11) Leyfið þér manninum yðar að fá sér neðan í því, ef hann langar til þess? 12) Má maðurinn yðar vera á skyrtunni inni? 13) Ef maðurinn yðaf er þreyttur og er illa við að fara út, sitjið þér þá heima, jafnvel þótt yður langi til þess að fara út? 14) Varizt þér að snerta nokkuð á skrifborði mannsins yðar eða í hirzlum hans? SPURNING AR oó SV0R AÐ er ætlunin að birta hér fram- vegis, undir fyrirsögninni „Spurningar og svör“, ýmsar spurn- ingar frá lesendum. Svör við þeim verða birt um leið. Ritstjóra þessa dálks er í sjálfs- vald sett, hvaða spurningum hann svarar, en mun þó reyna að leysa úr flestum þeim vandamálum, sem send verða til úrlausnar. Öllum er frjálst að spyrja og nota dulnefni. Ef spyrjandinn óskar held- ur að fá bréflegt svar, þarf hann að senda burðargjald og heimilis- fang sitt. Þagmælsku um nöfn er þá heitið. HEIMILISRITIÐ 59

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.