Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 50

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 50
koma upp um mig. Vertu nú vænn Joel, sagði ég og reyndi að hlæja. Gleymdu þessu. Þú átt bara að muna eftir því, sem hefur verið gaman að, þessi kvöld, sem við höf- um átt saman. Hann tók fastar utan um mig. — Susy, við erum bæði einmana. Viltu koma með mér — svo að okk- ur veitist lífið léttara. Eg leit á hann. — Joel, þú átt við....... — Viltu giftast mér Susy á morg- un? Og koma svo með mér og sjá um heimilið okkar? Aftur lokaði ég augunum. Kona Joels. Alltaf að vera hjá honum. Kona Joels. Eg gat ekki svarað af hamingju. Þá eyðilagði Joel þessa stund fyr- ir mér. Hann hélt áfram: — Við söknum bæði Körlu. En ef við erum saman getum við betur mætt söknuðinum. Þegar Karla hvarf á braut, skildi hún ekki eftir mikið rúm handa annarri konu í hjarta mínu. En alla þá ást, sem ég get veitt nokkurri núlifandi konu, get ég veitt þér. Ætlarðu að koma með mér? Hvað annað gat ég gert. f gegnum þann' sársauka, sem orð hans ollu mér, fann ég enn meiri kvöl er ég hugsaði til þess að yfirgefa hann. — Já, Joel, hvíslaði ég. Hann tók mig í faðm sinn, þrýsti mér að sér og varir okkar mættust. Kossinn eyddi öllum efasemdum mínum. Ást mín til Jqels var eins og logandi gullstraumur, sem rann um æðar mínar. Joel hlýtur að hafa haft svipaðar tilfinningar. Hann kyssti mig marga, langa ástarkossa og at- lot hans voru blíð og innileg. Eg ætl- aði að vinna alla ást Joels, því að ég gat ekki hugsað mér að deila henni með nokkrum. Á þessu augna- bliki mátti dáin systir mín ekki einu sinni eiga hluta af ást hans — og hún hafði reyndar ekki ætlað sér það. — Joel! hvíslaði ég eftir nokkra þögn. Joel, ástin mín! Hann leit í augu mér og ég sá að hann var dálítið ringlaður. — Susy! sagði hann hrærður. Susy, hjartað mitt. Eg hef ekki haft hugmynd um, hvað þú ert lík henni Körlu. Það er næstum þvi eins og að Karla sé komin aftur. Eg hefði átt að vera glöð og á- nægð þetta kvöld, en ég var það ekki. Eg held að maðurinn sé þann- ig gerður. Hann er ágjam. Fáum klukkutímum áður hefði ég verið á- nægð, ef Joel hefði ekki þurft að fara aftur og ég hefði haft mögu- leika til þess að fá að vera í nær- veru hans. Nú vildi ég allt. Eg vildi ást Joels alla og óskipta. Eg fullyrti með sjálfri mér, að ég gæti ekki staðið við hlið Joels til lengdar ef hann ímyndaði sér Körlu við hina hlið sína. Þegar ég kom heim, tók ég upp bréfið, sem Karla hafði skrifað Joel. Eg las það tvisvar og mér ógnaði er ég hugsaði um þann sársauka, sem 48 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.