Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 8

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 8
hvern einasta morgunn klukkan ell- efu, stundvíslega, og fékk þrjú tvö- föld ginstaup. Stundum sagði hann nokkur orð, með hinum viðfeldna semingi sínum. En oftar sat hann þögull og einn við borð, teygði fram fæturna og horfði út á hafið. En hvaða morgunn sem var, mátti spegla sig í skónum hans. Þegar ég hafði verið þarna eitt- hvað mánaðartíma, man ég eftir því, að ég sagði einu sinni við hann, þegar hanh' kom að afgreiðsluborðinu eft- ir þriðja snafsinum: — Það hlýtur að taka skolli langan tíma að bursta skóna sína svona vel á hverjum morgni. Er það ekki James? — Jú, svaraði hann, beygði sig yf- ir borðið beint fyrir framan mig og leit í augu mér. Hefurðu nokkuð frekar að segja um útlit mitt eða klæðnað? Hann er svo hvatskeytslegur að mér brá. — James, sagði ég, mig varðar ekki vitund um útlit þitt. Og fyrst við erum tveir einir, siðmenntaðir menn, hérna inni í fyrsta flokks ný- tízku hóteli, þá skulum við ekki vera að rífast. Hann glotti letilega. — Heldurðu ekki? sagði hann. Gæti skemmt okkur. Jæja, kannski það sé rétt hjá þér. Og dagamir liðu, hver öðrum verrj. Það kom fyrir að ég bölvaði við borðið mitt, eins og götustrákur. En ég heyrði James aldrei bölva. Hann var ávallt kaldur, háðskur, óaðfinnanlegur og ómannblendinn. Líklega var það rétt af honum — sennilega hafa örlögin verið honum svo þungbær, að tilgangslaus blóts- yrði voru lítils virði. Eg held að það hafi einungis kom- ið fyrir í eitt skipti, er við töluðum saman, að hann vék talinu ofurlítið að sér. Það var síðla kvölds og við voru tveir einir eftir. Eg var að fár- ast yfir því, að það skyldi hafa hent mig það ólán, að lenda á þessum hryllilega stað peningalaus með öllu. Og eftir nokkra stund sagði hann: — Myndi þér nægja eitt þúsund? Eg starði á hann orðlaus. — Þús- und pund? stamaði ég. — Já, ég ímynda mér að ég geti útvégað þér þau. Hann einblíndi beint fram fyrir sig. — Þó veit ég það ekki. Eg er farinn að venjast þér og þú verður að vera hérna eitt- hvað lengur. Við skulum athuga málið. — En í guðanna bænum, hrópaði ég, áttu við það, maður, að þú dvelj- fir hérna þrátt fyrir það að þú get- ’ur rétt hendina út eftir þúsund sterl- ■ingspundum? — Það er engu líkara. Finnst þér það ekki? Hann hellti í glasið sitt. ,;Það hefur litla þýðingu, hvar þú dvelur, Merton, þegar þú getur ekki verið þar, sem þú myndir selja vist- arvon þína í Himnaríki fyrir að fá að vera. Og líklega er bezt að velja þann stað, þar sem styzt er að enda- lokunum. Hann teygaði glasið í botn og gekk út. 6 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.