Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 40
sem heimurinn er gerður úr og
hvernig temja skal þau þannig að
farsæld fylgi.
Nú eru tækifærin meiri en nokkru
sinni fyrr í sögunni. Ég segi þetta
vitandi það, að margir æskumenn
okkar sjá naumast í gegn um sorta
skattabyrða, skuldabagga og ýmissa
annarra örðugleika. Ég segi þetta
þrátt fyrir það, þótt sum gamal-
menni haldi því fram, eins og venju-
lega, að heimur versnandi fari, að
hrunið nálgist og að áður en vari
hverfum við aftur á hestvagnaöld-
ina.
Þetta er gamla sagan, en einhverra
hluta vegna hefur okkur aldrei mun-
að aftur á bak.
Ég hef þá trú, að hver sú þjóð,
sem getur framleitt gúmmí úr olíu,
silki úr kolum, ull úr mjólk, bólstur
úr kaktusum, nærfatnað úr gleri,
og bílgrindur úr baunum — sú þjóð
sé ekki í afturför — heldur fram-
för til auðugra og fullkomnara lífs
og betri, hamingjuríkari daga.
Sannleikurinn og Blysið
T7INU SINNI endur fyrir löngu,
‘~~l hóf Sannleikurinn sig allsnakinn
upp úr hinum djúpa brunni, sem
hann til þess tíma hafði falist í.
Hann var gamall og grettinn og allir
forðuðust hann. Loks mætti hann
Blysinu, sem var glæsilega og rík-
mannlega klætt og sindraði eins og
glitsteinar.
„Góðan daginn, Sannleikur sæll,“
sagði Blysið. „Hvernig stendur á því
að þú ert hér einn á fömum vegi?“
„Já, það er ekki gaman að því“.
sagði Sannleikurinn. „Eg bið alla sem
ég sé um að styðja mig og styrkja,
en bænir mínar eru árangurslausar.
Eg er víst ekki ásjálegur."
Blysið brosti og sagði: „Þegar til
alls kemur, er ég eldri en þú og
þar að auki — get ég fullvissað þig
um — taka mannanna börn venju-
lega vel á móti mér. En — misvirtu
það ekki við mig, Sannleikur minn,
— hversvegna ertu nakinn? Það er
ekki skynsamlegt. Eg kem með til-
lögu. Líttu á slæðuna mína, hversu
síð hún er og víð. Eg skal sveipa
henni um þig og svo skulum við
verða samferða. Við munum bæði
hafa hagnað af því. Mennimir
sem hingað til hafa ekki viljað taka
tillit til mín, bjóða mig velkomið
þín vegna, en heimskingjamir munu
hlusta á okkur bæði, þótt þeir haldi
að þeir hlusti aðeins á mig. Þá verð-
ur vel tekið á móti okkur, allsstaðar.
Sannleikurinn fellst á þetta, og
þau fylgdust af stað. Síðan hafa þau
skipt með sér verkum í samstarfi
sínu. Blysið gleður einfeldningana,
en þeir skynsömu greina Sannleik-
ann á bak við hina glæstu glitslæðu
Blysins og bjóða þau bæði vel-
komin.
38
HEIMILISRITIÐ