Heimilisritið - 01.03.1943, Side 58
VASABOKIN
Á MEÐAL fjölkvænismanna, eink-
■r*’ um Múhameðstrúarmanna,
tíðkast það, að kona biðji mann sinn
um að kvænast fleiri konum. Stafar
þessi bón oftast af því, að konan á
of erfitt við bústörfin. Ef maðurinn
verður ekki við þessari ósk, getur
konan krafizt skilnaðar.
A MERÍSKT tímarit (Colliers) full-
** yrðir, að 90% af öllum skyrtum,
sem framleiddar eru í heiminum, séu
með áföstum flibba. Fyrir 20 árum,
segir sama tímarit, voru hinsvegar
aðeins 20% af skyrtum með áföstum
flibba. Eftir þessu að dæma, erum
við íslendingar 15—20 ár á eftir
tízkunni í þessu efni.
/^RAFSKRIFT í kirkjugarðinum í
Síðumúla í Borgarfirði: „Hér er
öldungur æruverðugur til hvíldar
borinn hinsta sinni, að kvöldi líf-
dagsins langa og merka. Enn andi
lifir hjá lifanda guði. Það er heið-
ursbóndinn Halldór Pálsson. Hann
var fæddur 20. apríl 1773, giptur 11.
júlí 1800 yngisstúlku Þórdísi Einars-
dóttur. Hún var fædd 1772, andaðist
7. júní 1852 og nú hvílir hér hans
við síðu, er hún sælli sambúð
gladdi í 6 ár og 50. Hann deyði 7.
júlí 1863. Ástkær faðir, afi og lang-
afi 92 afkomenda, hvurra 47 eftirlif-
andi fagna hans frelsisstund, en 45
samgleðjast honum á sælunnar
landi. Sælir eru þeir sem drottni
deyja. E. G. E.“
IV'ANADA er þriðja stærsta land
jarðarinnar. Rússland og Kína
eru stærri. Mikill hluti landsins er
auðn eða afar strjálbyggður. íbúar
eru aðeins tíu milljónir. Lítið eitt
fleiri en í London einni.
Aðalútflutningsvara Kanada-
manna er korn, einkum hveiti. Einn-
ig er mikið flutt út af timbri, grá-
vöru, málmum og fiski. Timburiðn-
aður þar hefur aukizt afar mikið
við hina auknu pappírsnotkun í
heiminum. Helstu viðskiptalönd eru
Bretland og Bandaríkin.
■\TOKKRIR hlutar af líkamanum
* ' lifa í klukkustundir, jafnvel
daga, eftir að maðurinn er nár. Það
er hægt að finna lifandi sellur í á-
kveðnum líffærum meira en tveim
vikum eftir andlát mannsins.
A LGENGUSTU flugvélasprengj-
'**' urnar eru um þessar mundir eitt
tonn að þyngd. Hafa þær að ýmsu
leyti reynst jafnvel og betur en fjög-
urra og átta tonna sprengjur. Áætl-
að hefur verið að ef einni slíkri
sprengju er kastað til jarðar úr flug-
vél, sem fer með 500 km. hraða í
6000 metra hæð, nægi hún til þess að
lyfta einu tonni 10 kílómetra í loft
upp.
56
HEIMILISRITIÐ