Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 21

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 21
ríkja á Lava-He á meðan þú lifir. En þú skalt engum giftast fyrr en þú hittir mann, sem hefur sama lit- arhátt og þú, og mannslíkanið sem þú berð á brjósti þér.“ Allt líf sitt hafði hana dreymt um þennan ókunna hvíta mann, sem átti að koma til hennar yfir hafið. Hún hafði ennþá aldrei fyrr litið hvítan mann augum. Og nú var hann kominn, ennþá yndislegri og dásamlegri, en hún hafði nokkurn- tíma vogað sér að vona. Og nú var fylling draumanna að nálgast, lík- amning spádómsins fyrir höndum, spádómur töframannsins, sem löngu var látinn. Menn hennar höfðu þeg- ar heilsað hvíta manninum sem konungi sínum, beygt sig í duftið fyrir honum þegar hann gekk við hlið hennar, karlmannlegur og yfir- litsbjartur. Og þó va'r hann svo eirðarlaus og óhamingjusamur, að því er virtist. „Hversvegna ertu svona ólimdar- legur, herra?“ Hann leit á hana alvarlegur. „Við höfum verið alltof lengi í Lava-He, drottning“, sagði hann ró- lega.. „Eg bíð aðeins eftir skipi, sem gæti flutt mig heim.“ Hún greip andann á lofti og sperrti upp augun. „Þig langar í burtu frá Lava-He?“ stamaði hún. „Já — auðvitað Vao“, sagði hann dálítið undrandi. „Heimili mitt er þarna í fjarska — heimili mitt og verkefni mín. Eg á mikið starf ó- unnið þama handan við hafið.“ Hún þagði litla stund. Hún leit á hann með augnaráði, sem lýsti undr- un og næstum því ótta. Hún gat ekki skilið það, að hann sem guð- irnir höfðu sent, gæti talað um að yfirgefa Lava-He. Rauðar varir hennar skulfu. „En það eru verkefni fyrir þig hérna einnig", sagði hún viðkvæmt. Hann sneri snögglega höfðinu að henni og sagði: „Hérna?“ „Já, sannarlega — herra minn.“ Hún settist upp og horfði á hann með hinu einkennilega seiðmagnaða augnaráði, sem að hálfu leyti heill- aði hann, en að hinu leytinu vakti andúð hans á henni. „Skilur þú það ef til vill ekki, að þegnar mínir tigna þig, drottnari minn! Hefur þú ekki tekið eftir því, hvernig þeir lúta þér í auðmýkt og kyssa duftið í spori þínu. Veizt þú, að þú ert sá, sem spádómur guðanna hefur sagt fyrir, að þú ert sá, sem við höf- um beðið eftir öll þessi ár?“ Hann starði á hana í skelfingu blandinni undrun. „Eg skil ekki“, sagði hann. „Hlustaðu þá á — og ég skal segja þér frá spádómi guðanna.“* Hann hlustaði, og meðan hún tal- aði komst hann að því, í hvílíkri hættu hann var. Hann skildi að sú hætta, er hann stóð andspænis, var einhver sú alvarlegasta, sem hann hafði komist í. Hér átti hann við að eiga óútreiknanleg öfl, magn- aða hjátrú þessara frumstæðu eyj- arskeggja. Hann hlustaði og virti HEIMILISRITIÐ 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.