Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 35

Heimilisritið - 01.03.1943, Blaðsíða 35
ar eins og elding. Já, þetta villidýr ætti að deyja. Annaðhvort jókst henni skyndilega afl, eða kraftar hans minnkuðu, því að henni íókst með snöggu átaki að hrinda honum frá sér. Hann tók nokkur skref aft- ur á bak og riðaði. Hún var laus! Hún leit til dyr- anna, sem láu út að garðinum. Hún gæti ekki flúið þá leið, því að hann myndi von bráðar elta hana uppi. En það var einn möguleiki til, ef hún var snör. Hann hafði enn ekki náð jafnvæginu, en stóð eins og blindur maður upp við stólbak. f örvæntingu og reiði réðist Jolette á hann og hrinti honum af öllu afli. Hann datt og kom með höfuðið nið- ur á hvasst horn á spönsku borði í fallinu. Svo lá hann hreyfingar- laus. Jolette vissi að hún mátti engan tíma missa, ef henni átti að auðnast undankoma áður en hann risi aftur á fætur. Þó gat hún ekki hreyft sig. Það var eins og hún væri lömuð. Hann lá þarna grafkyrr á bakinu með útrétta arma og fótlggi. Henni fannst andlit hans svo ein- kennilega óviðfeldið. Það stakk svo í stúf við skraut og fegurð herberg- isins. Hörundslitur hans hafði verið rauður, en var nú náfölur. Henni datt í hug, hvort ljósið ylli þessum litbrigðum, en þá tók hún eftir því, að þau vörpuðu rauðleitri birtu. Hún leit á handleggi sína og hend- ur, sem voru rauðleit í rafljósinu. En hann lá þarna undarlega fölur. Augu hans voru opin, en þau sáu hana ekki, heldur störðu hreyfingar- laus og sljó upp í loftið. Hann hlaut að hafa fallið í öngvit. En einmitt það var bezt fyrir hana. Hún nálg- aðist hann varlega. Hún mundi allt í einu eftir skrítnu atriði, sem hún hafði endur fyrir löngu orðið sjónar- vottur að. Hún hafði séð mús sleppa, sem köttur hafði náð, en skríða svo hægt aftur í áttina til kattarins. Hún hafði verið hissa á þessari heimsku músarinnar, en þó bjargað þessu litla sefjaða dýri frá því að lenda í klóm kattarins. Nú stóð hún í sporum músarinnar, en sá var munurinn, að enginn var nálægur henni til hjálpar. Dowing hafði dottið þétt upp að snjóhvítum ísbjarnarfeldi. Sér til skelfingar sá Jolette skyndilega, að feldurinn litaðist rauður út frá sári á höfði Downings. Hún óskaði þess af alhug, að mað- urinn hreyfði sig, þótt ekki væri nema litla fingur. Hún myndi hafa örðið himinlifandi af fögnuði, ef hann hefði litið á hana, þótt augna- ráðið yrði bæði ásakandi og fúl- mannlegt. Þá myndi þún óðara taka sprettinn út úr þessu þögula og and- styggilega húsi. Hún var hætt að hata þennan mann. Ætti hún að kalla á Ito, til þess að aðstoða húsbónda sinn? Nei, ekki fyrr en þessi ótti, ótti sem hún vissi ekki af hverju stafaði, væri lið- in hjá. „Vaknið þér!“ sagði hún. „Down- ing! Vaknið þér! Svarið þér mér!“ HEIMILISRITIÐ 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.