Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 42

Heimilisritið - 01.03.1943, Síða 42
skipt í tvo hópa og skyldu þeir starfa sína vikuna hvor. Starfinu átti að haga þannig, að hver og einn meðlimur skyldi velja sér fórnardýr og njósna um það, þá viku sem hann átti að starfa. Veiða átti upp úr þessu fórnardýri eins mikið og kostur var á og færa svo helztu niðurstöður í bók eina mikla, sem nefnd var „Karlmennirnir eins og þeir eru.“ Meðlimirnir máttu hafa venjuleg brögð í frammi til þess að klófesta fórnardýrið, en kossar voru bannað- ir. Fundir skyldu haldnir á hverju þriðjudagskvöldi heima hjá Maju. Allt var undirbúið og við hrópuð- um húrra fyrir bezta klúbbnum í heiminum. Svo leið vika. Maja þurfti að slá priki mörgum sinnum í borðið áður en hún fékk hljóð til þess að setja fundinn. Lilly hafði orðið. Hún fékk gott hljóð og við hlustuðum undrandi. Bókað var eftirfarandi: „Þessi maður er á mjög lágu siðferðisstigi. Hann lokkar ungar stúlkur heim til sín og býður þeim vín. Hann hefur þann andstyggilega vana að segja „litla hjartað" við stúlkur, strax fyrsta kvöldið. Hann lagast þó við nokkra kinnhesta.“ Britta skýrði frá sinni reynslu og lýsti með sterkum litum hinni ógeðs- legu skapgerð syndarans. Heddy var sú næsta. Hún var mjög aumkunarleg á svip. „Jæja, Heddy?“ sagði Maja. „Ja-á — hann, hann kyssti mig“, sagði hún hikandi. „Kyssti hann þig“, hrópuðum við og risum úr sætum. Maja veitti henni þungar ákúrur og minnti hana á, að það væri stranglega bannað að láta kyssa sig. „Já, en ég gat ekkert gert við því“, sagði Heddy með klökkva í röddinni. „Við stóðum og störðum á stjörn- umar, og svo benti hann upp og sagði: „Sko, þarna er Karlsvagn- inn!“ Og svo vissi ég ekki fyrr en hann kyssti mig.“ Við vorum í miklum æsingi. Við höfðum allar heyrt hryllilegar sögur af karlmönnum. Nú hafði ein þeirra gerzt meðal okkar. Vesalings sak- lausa Heddy. Næstu viku áttum við Maja að fara á stúfana. Við settumst inn í litla veitingastofu og fengum okkur kaffi. Brátt kom hár maður inn og bað um kaffi. Hann skotraði augun- um til okkar rétt sem snöggvast, en virti okkur ekki frekara viðlits. „Þennan ætla ég að athuga", hvísl- aði Maja og kleip mig í handlegginn. Við einblíndum á hávaxna manninn, en hann las í dagblaði og leit ekki upp. Eg leit á Maju. Hún var áreiðan- lega ein af spengilegustu heimasæt- um bæjarins — há og grönn, töfr- andi, andlit með klassiskum dráttum, dularfull, tinnusvört augu. Stóri maðurinn stóð upp, borgaði fyrir kafffið og gekk út. Maja lædd- ist út á eftir honum og skildi mig eftir eina. 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.