Heimilisritið - 01.03.1947, Side 19

Heimilisritið - 01.03.1947, Side 19
Sfúlkan hinum megin við ganginn Ilann ájormaði og drýgði glæpinn af dæmafárri nákvœmni og kald- rifjaðri rósemi. Ilonum sást aðeins yfir eitt atriði, og fiað hefði ef til vill ekki komið að sök, ef hún hefði ekki orðið á vegi lians. ★ Smásctga eftir DAVID EVANS * RICHARD Carton hafði setið í þrjár klukkstundir við snarkandi arineldinn. Ilann hallaði höfðinu aftur og dró andann djúpt. í þess- ar þrjár stundir hafði hugur hans skoðað sérhvert atriði í því áformi, sem hann hafði sett sér, og nú þurfti hann frernur öllu öðru að fá sér vænan whiskysopa. Hann rétti út höndina eftir glas- inu, setti það á munn sér og tæmdi með velþóknun, eins og maður, sem unnið hefur til hjartastyrk- ingar eftir langa mæðu. Þarna, sem liann sat, myndi eng- um hafa til hugar kornið, að hann væri mesti smyglari í Englandi. Og þó stjórnaði þessi ungi, fölleiti maður smyglaraflokki, sem lög- reglunni hafði ekki tekizt að stöðva í þrjú ár. Og, hugsaði Carton, ég skal ekki láta stöðva mig nú, þeg- ar ég hef næstum náð því marki, sem ég setti mér. Carton hafði gefið sjálfum sér þrjú ár. Á þeim tíma ætlaði hann að sanka saman auðævum, svo að hann þyrfti ekki framar um æv- ina að tefla á tvær hættur. Hann vissi, að það var erfitt að fremja glæpi til lengdar af slíkri varkárni, að ekki gæti hugsazt að spor fynd- ust, sem lögreglan gæti rakið. Hann vissi, að hversu umhyggjusamlega sem hann skipulagði fyrirtæki sín, var þó ætið einhver áhætta þeim samfara. Heppni þurfti til, hversu mikla hæfileika sem maður kynni að hafa, til þess að geta gert ráð fyrir öllum möguleikum fyrirfram. Fjtít mánuði síðan hafði sá at- HEIMILISRITIÐ 17

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.