Heimilisritið - 01.03.1947, Síða 36

Heimilisritið - 01.03.1947, Síða 36
þeim Víbekku í hug að trúlofast myndi Vera ekki gera minnstu at- hugasemdir við það. Að öllu at- huguðu hlaut stúlkan að hafa úr- skurðarvald, án áhrifa annarra. Lífið hafði kennt henni að slíkt var happadrýgst. Hvað viðvék þessum dularfulla, miðaldra manni, þá lá engin vissa fyrir því að nauðsynlegt væri að taka þetta svo alvarlega. Það var sumar og dansinn í veitingahúsinu gat auðveldlega vakið hýrt augna- tillit og ástaróra. Vera var ekki blindur áhangandi þeirrar skoðun- ar, að ávallt bæri að blanda sér í málefni æskunnar. í flestum til- fellum óskar æskan þess, að gera sjálf upp sín mál, og afskipti á ó- heppilegum tíma geta hæglega úti- lokað hverskonar trúnað. En undir öllum kringumstæðum hlaut hún að láta sem hún skildi meðalgöngu frú Helmersen. „Að sjálfsögðu er maður við- kvæmur fyrir börnum sínum“, sagði Vera, — „og nauðug vildi é,g' horfa á, að Víbekka lenti í vand- ræðum. En haldið þér að þetta sé svo alvarlegt í raun og veru?“ „Eg er smeyk um það, frú Busch. Til dæmis veit ég, að Ví- bekka hefur haft mjög leynileg stefnumót við hann. Því hefur írena sjálf trúað mér fyrir“. Vera gat varla leynt hæðnis- brosi við umhugsunina um svo „mjög leynileg stefnumót“! „Hafið þér hugmynd um hver maðurinn er?“ „Já, það er mjög ríkur kaup- sýslumáður. Nafn hans er Gústaf Ernberg. Hann býr í veitinga'hús- inu“. Um leið og Vera heyrði nafnið varð svipur hennar grafalvarlegur. Hún stóð á fætur. „Ég er yður------mjög þakklát, frú Helmersen, og jeg held-----að við ættum að fara báðar niður í veitingahús!" Vera stóð við hlið frú Helmer- sen á svölum hins stóra danssals í veitingahúsmu. Hún sá, hvar Gústaf Ernberg dansaði við Ví- bekku. Vissulega var það hann. Auðvitað hafði hann breytzt. Hann var orðinn grár í vöngum og augnaumbúnaðurinn talaði sínu máli um hin mörgu ár sem voru liðin síðan. — En annars hlaut hún að játa, að hann hafði haldið sér mjög vel. Hann var grannur, sólbrenndur og augsýnilega mjög góður dansmaður. Það gat ekki talizt neitt athugavert, að hann skyldi dansa við kornunga stúlku. — En þessi unga stúlka var dóttir hennar. — Víbekka var klædd ljósgrænum kjól og hafði blóm í hárinu. Glampi augna hennar varð ekki msiskilinn. Hún bar með sér töfrakennda hrifni. Ósjálfrátt lokaði Vera augunum. í nokkur augnablik var sem árin 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.