Heimilisritið - 01.03.1947, Side 44
sakaði heilafellingarnar og skorirn-
ar, fjölda þeirra, dýpt og lögun.
Hann rannsakaði einnig þyngd-
ina. Hún var næstum nákvæmlega
sú sama.
Oft hefur það komið í ljós, að
heili úr fávita er þyngri en heili
gáfumanns. Stundum hefur líka
komið í Ijós, að heilar andlegra
mikilmenna hafa verið mjög létt-
ir. Heilafellingarnar eru hvorki
stærri né fleiri í gáfumanni en
heimskingja.
Nokkru seinna fóru líffærafræð-
ingar og skurðlæknar að rann-
isaka sérstaka hlu'ta heilans, til
þess að reyna að ráða le.yndar-
dóma vitsmunanna. Menn álitu að
framheilinn væri sá hluti. þar sem
æðri gáfur hefðu aðsetur. Um
tíma var það talinn óvggjandi
sannleikur. En vandlegar rann-
sóknir á ennisfellingum heilans í
hinum merka sálfræðing . og há-
skólarektor, Staniey Hall. og hin-
um heimsfræga lækni, Sir William
Osler, og samanburður við ennis-
fellingar í heilum manna með litl-
ar gáfur, sýndu engan teljandi mis-
mun. Auk þess sannaði reynsla
. skurðlæknanna, að jafnvel þótt
mikill hluti fremstu ennisfeiling-
anna eyðilegðist af sjúkdómi. varð
sjúklingurinn ekki fyrir stórvægi-
legum andlegum truflunum.
Lengi efuðust heilasérfræðing-
arnir um, að þeim myndi nokkru
s'inni auðnast að finna vitsmunum
manna nokkurn grundvöll á sviði
líffærafræðinnar. Loks rankaði
einn vísindamaðurinn við sér og
gerði sér ljósa afar mikilvæga stað-
reynd. Hann gerði sér sem sé Ijóst,
að það voru dauðra manna heilar,
sem hann rannsakaði, vélar, sem
ekki störfuðu. Maður getur ekki
dæmt um starfsorku einnar vél-
ar sem stendur kyrr. Stór og sterk-
lega byggð vél þarf ekki endilega
að vera kraftmikil. En það kemur
í ljós þegar vélin fer í gang.
Iíver er orkugjafi heilans, elds-
neytið, sem hugsanastarfið brenn-
ir? Það er blóðstreymið til heil-
ans. Það segir meira um heilaork-
una en vandvirkustu rannsóknir á
hinum dauðu, gráu og hvítu heila-
vefjum. Dr. Henry Donaldson hef-
ur sagt: „Góður heili nýtur sín
ekki vel í manni, sem er hætt við
svima“. í öngviti og dauða yfir-
gefur bæði blóðið og orkan heil-
ann.
Alvarlegasta yfirsjón þeirra, sem
rannsökuðu heilann áður fyrr, var
að kasta burtu heilahimnunni. í
henni eru æðarnar, sem veita nær-
ingu til heilans, og rannsókn á
þessum æðum, stærð þeirra og
kvíslun. segir okkur meira um
heilaorkuna en stærð, þungi og
gerð heilans sjálfs.
Fyrsta raunverulega uppgötvun-
in í sambandi við leyndarmál heila.
afburðarmannsins, var gerð árið
1926 af dr. Hindzie, sem einkum
42
HEIMILISRITIÐ