Heimilisritið - 01.03.1947, Page 63
TIL MINNIS
fyrir husmóðurina
Þeir sem ganga í hvítum fötum sýnast
stærri en ella, og þeir sem eru í svörtum
fötum virðast smækka.
Það er hægt að spara allt að 60%
eldsneyti með þvi að strá hnefafylli af
salti yfir kolin um leið og kveikt er upp.
eða bætt á eldinn. Saltið brennur ekki
en orsakar kraftmikinn hita.
Ef þú hefur þurrt hár skaltu forðast
öll hárvötn, sem innihalda spíritus. Nudd-
aðu heldur hároliu eða góðu brillantine
inn i hársvörðinn á hverjum morgni.
I staðinn fyrir mölkúlur má nota appel-
sínuhýði til vamar gegn melflugum.
Hengið ekki stóra mynd yfir lítinn hús-
mun, lieldur mynd sem liæfir honum og
er ekki breiðari en hann.
Ef herbergið er lítið virðist það stærra
ef gluggakarmar, hurðir og listar eru mál-
aðir í sama lit og loftið.
Óhreinindum má oft ná af veggfóðri
með því að nudda blettina með nýlegu
fransbrauði.
Notaðu aldrei of mikla sápu eða of
mikinn sóda, þegar þú þværð þvott, því
það gerir illt verra.
Myglubletti er bezt að ná af leðurskóm
með glyserínsblöndu eða mjög þynntri kar-
bólsýru. Skórnir þurfa að þorna vel áður
en þeir eru svo burstaðir.
Ef húsgögn þín eru einföld máttu ekki
hafa veggfóðrið íburðarmikið lieldur í
stíl við hsúgögnin.
Ef tveir gluggar eru hvor við annars
hlið getur verið mjög smekklegt að tjalda
þá eins og uin einn glugga sé að ræða.
Einnig að láta óinnrammaðan spegil á
vegginn milli þeirra.
Það er áriðandi að ná burtu blekblett-
um svo fljótt sem unt er, helst áður en
þeir þorna. Þá er efnið þanið yfir skál, og
volgu vatni liellt yfir blettinn nokkra
stund.
Berjið aldrei dúnsængur. Viðrið þær oft
og burstið með mjúkum bursta.
Ráða má bót á braki í skósólum, með
því að bera línolíu á sólasaumana.
Ryðblettum er hægt að ná af straujárn-
um með því ’að hita þau, bera á þau hvítt
vax og nudda svo blettina með léreftspoka
sem í er velblautt matarsalt.
Mörg smáborð skapa vinalegt heimili.
HEIMILISRITIÐ
61