Heimilisritið - 01.11.1952, Page 5

Heimilisritið - 01.11.1952, Page 5
Hann var þá orðinn einsöngv- ari kirkjukórsins, og presturinn hafði gefið honum talnaband með dýrustu perlum að launum fyrir söng hans. Presturinn hafði einn- ig sagt, að guð hefði tekið rödd hans í þjónustu sína til að básúna út hið heilaga orð. Ég veifaði til systkina minna og mömmu, um leið og lestin brunaði af stað með mig í áttina til glötunarinnar. Já, glötunarinnar — að vísu voru árin, meðan frænka mín lifði, full af hamingju og áhyggju- leysi. Frammistaða mín á tónlist- arskólanum var með ágætum, og frænka var í sjöunda himni. Einn góðan veðurdag kom dauðinn í heimsókn til hennar, og ég kom að henni látinni í rúminu. Harmur minn var óskaplegur. Eg byrjaði að drekka. Ég sinnti ekki tónlistarnáminu, en notaði allar stundir til þess að sitja á kránni og drekka. Þegar ég hafði drukkið upp allt það fé, sem ég hafði erft eftir frænku mína, fór ég að stela. Ég laumaðist út á stærstu götur borgarinnar og hnupplaði peningaveskjum og öðru verðmæti. Eitt kvöldið brá ég mér út á eina af aðalgötum bæjarins og hafði hugsað mér að ná svo miklu að ég gæti keypt mér farmiða eitthvað út úr landinu. Ekki hafði NÓVEMBER, 1952 ég gengið lengi eftir götunni, þeg- ar ég kom auga á fatlaðan mann í hjólastól. Hann fitlaði við strengina á gítar, sem hvíldu á hnjám hans, og raulaði lagstúf. Mér varð allt í einu starsýnt á manninn. Þetta var vinur minn frá bernskuárunum. Grátandi af gleði féll ég á hné við stólinn. Hann leit undrandi á mig, en svo lifnaði yfir andlitinu. ,,Maurice!“ hrópaði hann. Hann lagði gítarinn frá sér og greip hendur mínar. Síðan spurði hann mig í þaula. Þegar ég loks hafði leyst úr öll- um spurningum hans, sagði ég: ,,Jean, segðu mér, hvernig varðstu — ég meina — —“ ,,Orkumla?“ greip hann fram í fyrir mér, og skugga brá yfir andlit hans. ,,Það var í kirkjunni hérna um árið, þegar jarðskjálft- arnir voru sem mestir heima. Kirkjan hrundi ofan á okkur við messu — ég var sá eini, sem slapp lifandi.“ ,,Nú skulum við tala um eitt- hvað skemmtilegra,“ sagði ég. ,,Ekki hér,“ sagði hann, „komdu heldur heim til mfn, ég á hús skairmt héðan.“ Eftir beiðni hans ýtti ég hon- um af stað og heim að litlu húsi, sem hann benti mér á. Eg ýtti honum upp að tröppunum og bar hann inn. Þetta var ‘allra snotr- 3

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.