Heimilisritið - 01.11.1952, Síða 9

Heimilisritið - 01.11.1952, Síða 9
hausinn, og þá lagði Sæfinnur undir sig tvö salerni og bjó þar síðan, tuttugu ár eða meir. Húsa- leigu galt hann enga, enda aldrei um hana krafinn; auk þess lifði Sæfinnur eftir þeirri ágætu lífs- reglu að láta aldrei af höndum graanan eyri, sem hann á annað borð var búinn að klófesta, enda var það almæli, að Sæfinnur ætti drjúga skildinga. Nýtinn var Sæfinnur svo af bar og safnaði í húsakynni sín alls konar munum, sem fæstum öðr- um þóttu eftirsóknarverðir, varð brátt af safni þessu haugur, sem stöðugt fór stækkandi, og er hann loks var rofinn, um 1890, var hann orðinn mannhæðarhár og vel faðmur á hvern veg. 1 haugn- um fundust rúmar 300 kr. í gulli og silfri, og var það allmik- ið fé í þá daga, enda 20 ára vatnsburðarkaup, auk þess álit- leg fúlga af ógildum peningum: spesíum, ríkisdölum, ríkisortum, mörkum, skildingum o. s. frv. Myntbreytingin 15 árum áður, hafði alveg farið framhjá Sæfinni karli. Peningarnir voru vafðir innan í bréf, hver peningur fyrir sig, bréfunum stundum troðið niður í lausa þumlungana, og þessu síðan potað hér og þar inn í hauginn. Auk peninganna og nokkurra tómra flaskna, var eng- inn sá hlutur í þessu mikla safni, að metinn myndi tveggja aura virði. Þarna voru mörg hundruð skóbætur, mörg hundruð gler- brot, skeljabrot í þúsundatali, mörg hundruð þumalsmakkar, hálfir og þaðan af minni, ógrynni af smápjötlum, hattgörmum, torfusneplum og beinum. Eigandinn stóð lengzt af hljóð- ur og hógvær meðan hervirkið var framið, haugurinn rofinn. En svo fór hann að gefa sig að vinnu með hinum og tína saman hitt og þetta úr haugnum, er honum var sárast um, og reyna að forða því frá glötun þeirri, er hann sá •búna safni sínu, sem hann hafði dregið saman, með elju og atorku í 20 ár. Einhverju smávegis fékk hann að halda sér til hugarhægð- ar, en annars var öllu safninu ekið burt og fórnað Ægi. Ó. H. MÁLAÐAR MYNDIR Þær ganga framhjá málverkasýningu, þegar skólastelpan sagði allt í einu: „O, mamma, mikið væri gaman að fara inn og sjá myndirnar." „Nci, nci,“ sagði móðirin. „Þctta eru ekki raunvci'ulega myndir, þær eru bara málaðar." NÓVEMBER, 1952

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.