Heimilisritið - 01.11.1952, Qupperneq 15

Heimilisritið - 01.11.1952, Qupperneq 15
Hún fann, að hún fölnaði og það fór hrollur um hana. Hún klemmdi aftur augun og sneri sér til veggjar. En brátt fór hún fram úr og fleygði öllum fötunum, sem hún hafði verið í um nótt- ina inn í skápinn. Hún var nýbúin að klæða sig og á leið niður stigann, þegar síminn hringdi. ,,Ert það þú, Betty ?“ heyrði hún rödd Roberts syrja. ,,Já, víst er það ég, Robert.“ ,,Eg var ekki viss um það.“ Röddin er eitthvað svo annarleg. ,,Hvernig líður litlu stúlkunni minni í morgun ? . . .“ Það var eitthvað nærgöngult við málróm hans, sem kom óþægilega við hana. „Hringdirðu til mín einungis til að spyrja um það ?“ Hann hló glaðlega: ,,Nei, ég hef líka töskuna þína — litla gulltösku. Eg skal koma með hana í kvöld.“ ,,Nei, nei,“ hrópaði hún skelfd. ,,Eg vil ekki fá hana.“ „Víst viltu það. Eg kem með hana.“ „Nei, fleygðu henni. Ég vil aldrei sjá hana framar. . . .“ Hún lagði símann frá sér. Svo gekk hún upp í herbergi sitt og læsti. Ut úr skápnum tók hún græna silkikjólinn og fór að klippa hann í smátætlur. . . . ÞREMUR mánuðum síðar kom Betty síðdag einn út frá gömlum lækni í úthverfi borgarinnar. Með þungum skrefum gekk hún að sporvagninum og ók með honum heimleiðis. 1 símaklefa hringdi hún til Roberts Graham. „Það er Betty,“ sagði hún. „Eg þyrfti að tala við þig núna strax.“ „Það er heldur óvænt, að þér skyldi detta það í hug,“ sagði hann dálítið hæðnislega. „Þú hefur ekki viljað sjá mig þrjá síð- ustu mánuðina." „Nei, en nú vil ég það. . . .“ Og svo ákváðu þau að hittast í litlu veitingahúsi eftir tuttugu mínútur. Þegar þau voru setzt, kveikti hún sér rólega í sígarettu, áður en hún sagði: „Eg er með barni — þínu barni." Fyrst starði hann eins og lam- aður á hana, svo fór hann að hlæja. „Það er ekki efnilegt,“ sagði hann. Svo varð hann alvar- legúr: „Hvað viltu að ég geri ?“ Betty greip báðum höndum um borðröndina og horfði í augu hon- um: „Ég vil, að þú giftist mér,“ sagði hún. „Við verðum að leigja okkur íbúð. Barnið okkar verður að eiga heimili.“ Hann horfði lengi á hana undr- andi. Hún talaði af slíkri festu og rósemi, að honum fannst mik- ið til um. NÓVEMBER, 1952 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.