Heimilisritið - 01.11.1952, Síða 18
af skrifstofunni. Eitt andartak
stirðnaði svipur hans, en svo
brosti hann góðlátlega:
,,Góðan daginn, Betty, hvernig
líður?“ spurði hann.
Henni lá við að fá tár í augun;
hann var svo hlýlegur í viðmóti.
,,Ágætlega,“ svaraði hún.
Faðir hennar horfði ástúðlega
á hana, eins og hann væri að
reyna að bæta sér upp að hafa
ekki fengið að sjá hana svo lengi.
,,Það gleður mig,“ sagði hann
hægt. Og bætti við :
,,Þig vantar ekkert . . . pen-
inga á ég við ?“
,,£g hef nóg,“ sagði Betty og
reigði sig.
En hún hafði ekki nóg, og á
heimleiðinni gerði hún alvöru úr
hugmynd, sem hún hafði lengi
velt fyrir sér. Hún heimsótti John
Winters í verzlun föður hans.
Betty hafði íhugað, hvað hún
helzt gæti gert, og komizt að
þeirri niðurstöðu, að prjónaskap-
ur væri hið eina, sem hún væri
verulega dugleg við. Þegar hún
fór frá John Winters, höfðu þau
samið um, að verzlunin seldi all-
ar peysur, sem hún prjónaði.
Þetta reyndist góð hugmynd,
því eftirspurnin eftir peysum
hennar varð brátt svo mikil, að
hún varð að fá stúlku til að
hjálpa sér.
Hún sat og prjónaði seint eitt
kvöld, þegar Robert kom heim.
Hann var mjög þreytulegur,
fannst henni, þegar hún sá hann :
,,Hvers vegna situr þú alltaf
og hamast við að prjóna ? ‘ ‘ spurði
hann.
,,Af því það borgar sig,“ svar-
aði hún án þess að líta upp.
,,Peysurnar mínar eru seldar hjá
Winters, og það gengur svo vel,
að ég hef fengið stúlku til að
hjálpa mér.“
Það vottaði fyrir stolti hjá
henni, þegar hún sá, hversu undr-
andi hann varð. ,,£g hélt ekki,
að við værum svona illa stæð,“
sagði hann.
,,Við tvö getum auðvitað séð
um okkur,“ svaraði hún, ,,en ég
verð að hugsa um barnið. Það
kostar ekki svo lítið að ala barn.“
,,Nú, jæja, auðvitað,“ sagði
hann rámum rójni. ,,Hvað kostar
eiginlega að ala barn?“
,,Hvað það kostar að ala
bam!“ Hún lyfti mögru, fölu
andlitinu og starði á hann. Hana
langaði til að hrópa: Barnið mitt
kostar mig allt — föður og móð-
ur, heimili mitt, sjálfsvirðingu
mína!
En hún stillti sig og svaraði ró-
lega: ,,£g hef ekki fengið að vita
það nákvæmlega ennþá, en það
mun vera nokkur hundruð dollar-
ar.“
,,Það eru . . . það eru miklir
16
HEIMILISRITIÐ