Heimilisritið - 01.11.1952, Blaðsíða 25
ekki heldur óvilhallar Rommel.
..Vísindi11 stjörnuspádómanna
byggjast á geislaverkunum ann-
arra hnatta á jörðina, einkum
miðað við tímanlega afstöðu
þeirra við jarðarhnöttinn. Til
dæmis vermir sólin okkur, og
hitinn, sem frá henni stafar hef-
ur rnjög afdrifarík áhrif á allar
okkar lífshræringar. Tunglið
vedur flóði og fjöru — og hví
skyldi það ekki einnig geta haft
áhrif á líkama okkar, sem er
a. m. k. 70% vatn?
Hér fer á eftir stuttorður út-
dráttur úr stjörnuspádómabók
eftir Louis de Wohl, merkan,
svissneskan stjörnuspámann.
★
Fólk fætt 21. marz til 20. apríl.
ARIES — merki hrútsins. Þcssu
merki ræður Marz. Börnum hrútsins
hættir við að láta augnablikstilfinningar
ráða fyrir sér, þau eru þróttmikil og ein-
ráð. Þau eru íþróttamenn, en skortir
þolsæði. Merki hrútsins er karlkyns
merki, og konur, sem fæðast undir þessu
merki, hljóta líka eins konar karlmann-
legan þrótt. Þær cru oft fagrar, en sú
fegurð er ögrandi.
Hvert merki hefur nokkra annmarka
s'arðandi heilsufar manna: Undir merki
hrútsins cru taugarnar mesta skaðræðis-
atriðið — einkum taugarnar í höfði og
maga. Höfuðverkur, sem á rót sína að
rekia til tauganna, er mjög algengur, svo
og fjarsýni og meðfæddir gallar á aug-
um, en nærsýni er sjaldgæft.
*
Fólk fætt 21. apríl tl 20. maí.
TAURUS — merki nantsins. Merki
þessu ræður Venus. Þetta fólk er at-
hafnasamt og stífsinna, en jafnframt
gætið í ráðstöfunum sínum. Það er
trygglynt í vináttu og ást og það er
hagsýnt, þó ekki ágjarnt eða nískt. Oft
er það umburðarlynt, þegar um er að
tefla meiri háttar mál, en þröngsýnt
varðandi smámuni. Það er ekki sérlega
næmt, en gleymir hins vegar trauðla því,
sem það hefur lært á annað borð. Það er
duglegt kaupsýslufólk og byggir alltaf
á traustum grunni; og það kann vel að
meta jarðnesk gæði: góðan mat, fagurt
heimili, örugg afkomuskilyrði. Konur,
sem fæddar eru undir þessu merki, eru
oft mjög fagrar og ganga smekklega til
fara.
Hclztu veikleikar þessa fólks, hvað
heilsuna snertir, er að leita í kverkum
og hálsi.
★
Fólk tætt 21. maí til 21. júní.
GEMINI — tvíburamerkið. Merkúr
ræður tvíburamerkinu, og fólk, sem fætt
er undir þessu merki, er fyrst og fremst
greindarfólk. Það hefur ríka hæfileika
til að semja sig að umhverfinu, en er
allyfirborðskennt og umgengst sannleik-
ann oft af nokkurri léttúð. Ræðumenn
góðir og oft afbragðs vísindamenn, en
skiptir oft um áhugamál og unir sér
sjaldan lengi f einu við sama viðfangs-
efni. Því þykir gaman að ferðalögum,
öru og tilbreytingasömu lífi og er öðr-
um fremur fólk hins mikla hraða vorra
tíma. Hvað stjórnmálum við kemur, er
því frjálslyndi í blóð borið. Konur, sem
fæddar eru undir þessu merki, eru fljót-
ar að skilja hlutina og greindar, og þær
eru venjulegast háar og grannar, og svo
er og um karlmennina. Helztu ann-
NÓVEMBER, 1952
23