Heimilisritið - 01.11.1952, Page 30
hafa verið lögð hér inn skrifleg
skilaboð til yðar. Frá dömu.“
,,Dömu ?“
,,Já, og hún hefur verið hér á
hverju kvöldi í viku. Gjörið þér
svo vel!“
,,Þakka yður fyrir, má ég sjá.“
Hann var óstyrkur, þegar hann
las:
,,Herra minn og meistari.
ViljiÖ þér Veita mér vi&tal
þar og þegar er þér ósfyiS ? Þá
muniÓ þér gera aÓdáanda
, ,Völundarhúss ástarinnar“
mjög hamingjusaman.
SvariÖ mér poste resante —
o. s. frv.
Bréfið fékk mjög á monsieur
Pinchol.
,,Hver afhenti yður þetta ?"
spurði hann skjálfraddaður.
,,Dama, sagði ég, mjög falleg
stúlka með stór, brún augu —
grönn ,og vel klædd."
,,Og hún vildi finna mig?“
,,Já, þarna sjáið þér, hvernig
það er að vera þekktur og dáður
rithöfundur. Það er bara verst að
þér skuluð ekki vera yngri."
bætti hún við með hreinskilni
hinnar fullþroska konu.
Rithöfundurinn leit kuldalega
til hennar, kvaddi hana stuttara-
lega og fór.
„Stelpubjálfi," tautaði hann
og gkálmaði eftir gangstéttinni,
,,eins og aldurinn hafi nokkra
þýðingu, þegar um frægan mann
er að ræða. Hugsa sér, að frægð
og ást skyldi koma til mín sam-
tímis. Það táknar algera byltingu
í lífi mínu.“
PINCHOL hafði byrjað rithöf-
undarferil sinn, þegar hann fyrir
þrjátíu árum hafði verið fulltrúi
í ráðuneyti nokkru, með lítil laun.
Hann hafði aflað sér aukatekna
með því að selja ljóð og smásög-
ur í tímarit.
Nýlega hafði saga, sem hann
hafði fengið birta í tímariti útf á
landi, vakið svo mikla athygli, að
hún hafði verið kvikmynduð und-
ir nafninu ,,Völundarhús ástar-
innar."
Þessi heppni óx honum mjög
í augum, en þegar ástarguðinii
virtist ætla að taka þátt í leikn-
um, hækkaði sólin enn meir á
himni.
,,Hún dáir mig . . . hún elsk-
ar mig!“ hrópaði innri rödd f
brjósti hans. ,,Hún vill vera syst-
ir mín og ástmey í einni og sömu
persónu . . . ástmey mín . . . hin
langþráða. — En hvernig í skoll-
anum á ég að taka á móti
henni?“
Eftir löng heilabrot og mikið
hugarstríð ákvað hann að taka á
móti henni heima hjá sér. Hann
hugðist standa hnarreistur f
vinnustofu sinni, innan um allar
28
HEIMILISRITIÐ